Harmonikublaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 14
Rakarinn síkáti
VIUi Valli á ísafirði
Hjónin Gudný Magnúsdöttir og Vilberg Vilbergsson.
VilbergVilbergsson erfæddurá Flateyri 26.
maí árið 1930. Frá unga aldri hefur tónlistin
alltaf skipt miklu máli í lífi Villa, eins og
víða hefur komið fram.
Árið 1950 hófVilli rakaraiðn, sem hann
hefur starfað við síðan og er enn í fullu
starfi í dag. Þar sem Villi er glettinn og gam-
ansamur maður og hefur góða frásagn-
arhæfileika, er oft á tíðum glatt á hjalla á
rakarastofunni.
Ég spurði Villa hvernig lífið og tilveran væri
í dag?
- Égerhamingjusamurmaðuroglánið hefur
leikið við mig. Það er ekki síst að þakka
konu minni Guðnýju Magnúsdóttir, sem er
að mínu mati betri helmingurinn. Hún hefur
stutt mig með ráðum og dáð f gegn um
tíðina. Afkomendur okkar eru 4 börn, 8
barnabörn og4 barnabarnabörn, alltsóma-
fólk.
Um árabil hefur Villi verið að leika sér með
liti og pensla að mála myndir, sem bera
vott um listamannseðli hans, í þessu sem
öðru.
- Hafið þið farið í skipulagðar ferðir með
Harmonikufélaginu?
- Við Guðný höfum notið þess að ferðast
með Harmonikufélagi Vestfjarða bæði á
landsmót og einnig þegar H.V. hefur heim-
sótt nokkur harmonikufélög. Það er alltaf
gaman þegar hópurinn ferðast með rútu,
þá eru sagðar góðar sögur og brandarar frá
því að lagt er af stað þar til komið er á
áfangastað. Ég vil sérstaklega nefna vin
minn Ásgeir S. Sigurðsson heiðursmann
og húmorista, hann er einn af stofnendum
H.V. og hefur gegnt formennsku í félaginu
af dugnaði og samviskusemi til fjölda ára.
Með honum í stjórninni hefur einatt verið
duglegt fólk, þar má t.d. nefna Frosta Gunn-
ars, Sæmund Guðmunds, Inga Jóhanns,
Pétur Bjarna, Ásvald Guðmunds og fleiri.
- Ert þú enn að spila á dansleikjum?
- Nei, hin síðari ár hef ég verið að leika
dinnermúsik, auk þess að spila djass með
góðum félögum svo sem Ólafi Kristjáns,
Magnúsi Reyni og fleirum. Síðast en ekki
síst má geta þess að Villi Valli er ætíð reiðu-
búinn að hjálpatilef Harmonikufélagið þarf
þess með.
14
- Nú hefur þú samið mörg lög, hefur þú gefið
eitthvað út af þeim?
- Já, árið 2000 kom út hljómdiskurinn Villi
Valli, með 13 lögum eftir mig. Árið 2008
kom svo annar diskur, í tímans rás, á honum
eru 9 lög eftir mig, ásamt 2 lögum eftir
Hoagy Carmichael. í júlf kemur út diskur á
vegum Byggðasafns Vestfjarða. Þarleikég
á harmoniku með Tómasi R. Einarssyni, Páli
Önundarsyni, Matthíasi M. Hemstock og
söngkonunni Jóhönnu Þórhallsdóttur.
- Værir þú til í að Ijá lesendum blaðsins
nótur að lagi eftir þig?
- Já það væri mér sönn ánægja.
Þegar landsmót S.Í.H.U. var haldið á ísafirði
árið 2002 var Harmonikusafn Ásgeirs S.
Sigurðssonar formlega opnað. Af því tilefni
frumftutti Villi Valli ásamt félögum sínum
lag eftir sig er hann nefndi Vals fyrir Ásgeir,
og fylgja hér nótur að því lagi. Um leið og
ég þakka Villa Valla fyrir Ijúfar móttökur á
heimili þeirra hjóna, langar mig að geta
þess að í 2. tölublaði 13. árgangs af blaðinu
Harmonikan tók Hilmar E. Hjartarson þáver-
andi ritstjóri blaðsins viðtal við listamann-
inn Villa Valla frá ísafirði, um uppvaxtarár
hans á Flateyri, tónlistina í lífi hans og
fleira.
Frosti Gunnarsson