Harmonikublaðið - 01.05.2012, Qupperneq 8

Harmonikublaðið - 01.05.2012, Qupperneq 8
Minning *JL* Benedikt Ingvar Helgason 1 J Benedikt Ingvar Helgason var fæddur á ísólfsstöðum á Tjörnesi 30.9.1926 og lést 12.1. 2012. Benedikt var sonur Helga Ólafssonar bónda og útgerðarmanns á ísólfsstöðum og konu hans Hólmfríðar Benediktsdóttur. Hann var elsturfimm systkina en þau voru aukBene- dikts.Þorbjörg, Þórhildur.Ólafur Eiður og Árni Þórhallur. Benedikt ólst upp á ísólfs- stöðum til tíu ára aldurs en þá flutti fjöl- skyldan til Húsavíkur. Á Húsavík gekk Benedikt í skóla, lauk þar gagnfræðaprófi og bjó þar síðan alla ævi. Benedikt var mjög fjölhæfur maður, féll aldrei verk úr hendi og lagði gjörva hönd á margt. Hann vann við verslunarstörf íaldar- fjórðung, var meðal annars verslunarstjóri f Hrunabúð á Húsavík, en aðal áhugamál Benedikts var alla ævi tónlist. Benedikt kvæntistst árið 1950 Ástu Ottesen og eignuðust þau fjögur börn. Þau eru; Hólm- fríður Sigrún, Pálmi, Jónína Helga og Ingi- björg Sara. Ásta lést árið 1980. Seinni kona Benediktsvar Anna Sigfúsdóttirog lifir hún mann sinn. Eftir að Bennni fluttist á Húsavík kynntist hann Gertrud Friðriksson, gegnum skáta- starf ogvakti hún áhuga hans á tónlist. Má segja að þá hafi hann hafið tónlistarnám sitt, á eigin vegum, því hann var algerlega sjálfmenntaður. Hann byrjaði á að kaupa gftar, lét sfðan smfða fyrir sig rafmagnsgítar og keypti svo saxofón. Ef menn dáðust að leikni hans á hljóðfærin, svaraði Benni hógvær: „Þetta er bara lagni“. En þetta þrennt lét Benni ekki nægja. Hann keypti sér líka hnappaharmoniku og lék á hana fyrir dansi. Fyrstu hljómsveitina stofnaði Benni með Steingrími Birgissyni á æskuár- unum ogtóksfðan þáttífjölmörgum hljóm- sveitum. Hann var einn af stofnendum Lúðrasveitar Húsavíkur og hann stjórnaði Sólseturskórnum. Hann gekkíHarmoniku- félag Þingeyinga 1983 og var strax kosinn ívarastjórn. Benni útsetti og raddsetti lög fyrir félagsmenn og spilaði með Stráka- bandinu á gítar um tíma. Hann stjórnaði félagshljómsveit Harmonikufélagsins árin 1984-1986 og stjórnaði henni líka á lands- mótum síðar. Benni hvatti til geisladiska- útgáfu félagsmanna og vann við diskaút- gáfu félagsins ogvar alltaf boðinn og búinn að starfa fyrir félagið ef með þurfti. Sfðast en ekki síst kenndi Benni tónlist við Tónlistarskóla Húsavíkur og í nágranna- byggðum og eru þeir orðnir margir nem- endurnir sem hann hefur kennt. Er mér óhætt að fullyrða að ævistarf Benna hafi haft mikil áhrif á tónlistarlíf í Þingeyjar- sýslum. Við félagar í Harmonikufélagi Þingeyinga þökkum fyrir ótal ánægjustundir, frábært starf í þágu félagsins og harmonikutón- listarinnar. Við sendum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Harmonikufélags Þingeyinga. Hólmfrídur Bjartmarsdóttir og Kristján Kárason. f Minning JL Hafsteinn Sigurðsson . j Látinn er Hafsteinn Sigurðsson tónlistar- kennari í Stykkishólmi. Hann var fæddur íStykkishólmi 14. nóvem- ber 1945 og lést í Reykjavík 1. mars 2012. Mér var illa brugðið þegar ég sá lát Haf- steinn Sigurðssonar í Stykkishólmi auglýst. Að vera á sextugasta og sjöunda aldursári þykir ídag ekki tiltakanlega hár aldur, fram- undan ættu að vera skemmtileg ár þar sem tími gæfist til að sinna áhugamálum en brauðstritið að baki. Haddi var ákaflega vandaður tónlistar- maður og án efa einn besti harmoniku- leikari íslendinga. íStykkishólmi var hann potturinn og pannan í tónlistarlffi staðar- ins. Hann lék í hljómsveitum bæjarins árum saman ogyfirleitt þótti fara best á að hann stjórnaði, enda hvers manns hugljúfi, þægilegur f fasi og mjög fær útsetjari. Haddi hafði mörg járn í eldinum og hafði trésmíðaréttindi auk tónlistarskólanáms- 8 ins. Þá togaði sjórinn í hann, enda af sjó- mönnum kominn, eins ogfleiri við Breiða- fjörðinn. Hann naut þess að róa til fiskjar og sjómennskan var honum jafn eðlileg og hljóðfæraleikurinn. Harmonikuunnendur tóku ofan þegar minnst var á Hadda. Ég man fyrst eftir honum seinni hlutann á síðustu öld og háttvísi hans var mér sérlega minnisstæð. Hann hafði óvenjulega góða nærveru. Það var alltaf jafn notalegt að hitta Hadda, hvort sem var á tónleikum, í útilegum eða niður á bryggju. Það var ein- hver stóisk ró sem fylgdi honum og þess háttar fylgir aðeins mjög fáum. Hann stóð fyrir harmonikufélagi í Stykkishólmi, sem m.a. átti fulltrúa á landsmóti 1993. Kærar þakkir Haddi fyrir allt sem þú gerðir fyrir harmonikuna á íslandi. Mfnar innitegustu samúðarkveðjur til eiginkonu og fjölskyldu. Blessuð sé minning Hafsteins Sigurðs- sonar. Friðjón Hallgrímsson

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.