Harmonikublaðið - 01.05.2012, Qupperneq 12

Harmonikublaðið - 01.05.2012, Qupperneq 12
Grasrótin - heimsókn á leikskóla 30. mars sl. kl. 09:00 að morgni, fórum við Hjálmará leikskólann Klambra sem erstað- settur rétt við Sjómannaskólann í Reykjavfk. Til stóð að f hópinn bættist formaðurSam- bands ísl. harmonikuunnenda Gunnar Kvaran, en þegar klukkuna vantaði tíu mínúturíníu ogGunnarekki mætturvarég alveg viss um að hann hefði sofið yfir sig, ég ætlaði nú bara að sætta mig við það en hugsaði honum samt þegjandi þörfina. En viti menn, fimm mfnútum fyrir níu birtist Gunnar lafmóður og sagðist hafa þurft að leggja bílnum langt frá leikskólanum og labba með harmonikuna langar leiðir eða heilan hring f kringum húsið. Jæja nú spenntum við á okkur nikkurnarog stormuðum inn í samkomusal leikskólans þarsem börnin biðu spennt eftir ballinu þvf nú átti að halda Harmonikuball. Við höfum verið í mjög góðu samstarfi við starfsfólk leikskólans og vorum búin að leggja til að þær kenndu börnunum fjóra dansa þ.e. Skó- smíðadansinn, Óla skans, Karl kom út og Tvö skreftil hægri. Einnig vorum við búin að biðja starfsfólkið að kenna þeim að syngja Kátirvoru karlar en áðuren þau sungu það sögðum við þeim söguna um þessa kátu karla á Akranesi sem fóru að veiða fiskinn og svo framvegis, því það er nauðsynlegt börnunum svo og reyndar öllum öðrum að skilja það sem þau eru að syngja um eða það sem erverið að lesa fyrir þau og seinna þegar þau fara svo að lesa sjálf þá mun þetta hjálpa þeim með lesturinn og skilninginn. Hófst nú ballið og var hrein snilld að sjá hvað starfsfólkið hafði verið duglegt að kenna þeim að dansa. Leikskólinn Klambrar erorðinn nokkuð fastur liður íokkar heim- sóknum á leikskólana ásamt leikskólanum Vinagerði, má segja að við höfum tekið þá í nokkurs konar fóstur og er fyrirhugað að heimsækja þá í sumar og spila í garðinum hjá þeim. Ég er alveg sannfærð um það að þetta er besta leiðin til kynningar á harm- onikunni en það verður að vera f fullu samráði við starfsfólkið á leikskólunum. Best væri hér á höfuðborgarsvæðinu að nokkrar grúppur tækju þetta verkefni að sér eða færu á tvo eða þrjá leikskóla og tækju þá jafnvel í nokkurs konar fóstur, því það er óvinnandi verk að tvær eða þrjá manneskjur geti tekið þetta að sér að nokkru viti þar sem um 100 leikskólar eru á svæðinu. Við höfum gert töluvert af því að spila á etliheimilum í borginni og það er alltaf jafn gaman að sjá glampann sem kemur íaugun á þessu aldraða fólki og þó svo það geti lítið sem ekkert hreyft sig, þá flæðir stór- streymi minninganna um hugann og gefur lífinu meira gildi. Þetta vil ég sjá hjá ungu börnunum sem eiga lífið framundan, þegar árin fara að færastyfir hjá þeim þá geti þau í minningunni hugsað hlýtt til þessara gleðistunda. Og kannske kveikir þetta ein- hvern neista í lítilli sál. En nú var ballið búið og kominn tfmi til að halda út f vorið eftir góðar stundir og kaffi- bolla. Gunnar tók nú forystuna og við gengum í humátt á eftir honum en nú vandaðist heldur betur málið þegar við komum að útidyrunum, þá kom í Ijós að hurðarhúnninn var svo hátt uppi (en það gert til að börnin komist ekki út), og þar sem Gunnar er svo stuttur í annan endann eins og menn vita þá reyndist það honum ekki nokkur leið að ná upp íhurðarhúninn. En það sannast nú á Gunnari að margur er knár þótt hann sé smár og þarna upplýstist það svo sannarlega að stærðin skiptir máli. Nú voru góð ráð dýr, því ekki mátti særa stolt Gunnars sem var svo ákveðinn í því að opna fyrir okkur hurðina og hleypa okkur út í vorið. Við tókum þvf til okkar ráða og gripum undir sitt hvorn fótinn á honum og lyftum honum upp svo hann gæti náð í hurðarhúninn og opnað hurðina. Þegar út var komið blasti bíli Gunnars við eða svo að segja við innganginn íhúsið, þannigað morgunganga Gunnars með harmonikuna var algjör óþarfi. En það er svo sem allt í lagi að fara út að ganga með harmonikuna sína, sumir fara bara út með hundana, já því ekki það. Við gengum glöð og ánægð út í vorið og það er gott að byrja daginn á þennan hátt að gleðja aðra og vera sáttur sjálfur. Lesendum blaðsins og öllum þeim sem áhuga hafa á harmonikutónlist sendi ég mínar bestu sumarkveðjur. Guðrún Guðjónsdóttir Harmonikufélagi Reykjavíkur Harmonikuviðgerðir Tek að mér viðgerðir á harmonikum Gunnar Kvaran sími: 824-7610 12

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.