Harmonikublaðið - 01.05.2012, Page 21

Harmonikublaðið - 01.05.2012, Page 21
Fréttir frá Félagi harmoniku- unnenda f Skagafirði Félag harmonikuunnenda í Skagafirði F.H.S var stofnað 21. febrúar árið 1992, það er því 20 ára um þessar mundir. Þess verður minnst á Fjölskylduhátíð harmonikuunnenda, sem verður haldin að venju í Húnaveri um Jóns- messuhelgina 22. - 24. júnf 2012. Þetta verður í 15. skipti sem þessi hátíð er haldin í Húnaveri. Þessi liðnu 14 ár hefur verið samstarf hjá H.U.H. og F.H.S. með hátíðina, en vegna breyttra aðstæðna hjá H.U.H. stendur F.H.S. eitt að þessari hátíð. Hátíðin verður með svipuðum hætti ogverið hefur. Dansleikurá föstudagskvöld með Geirmundi og Jóa, afmælisskemmtidagskrá og kaffiveitingar á laugardeginum og svo dansleikur á laugar- dagskvöld þar sem hljómsveitir félagsins leika fyrir dansi. Þar sem þetta er 20 ára afmæli F.H.S og í 15. skiptið sem hátíð er haldin í Húnaveri þótti við hæfi að halda upp á tvöfalt afmælisár. Mun félagið því bjóða upp á kaffiveitingar í tilefni áfangans í Húnaveri á laugardeginum að lokinni skemmtun. Hittumst hress og kát að vanda, þessa björtustu helgi sumarsins. Manstu gamla daga Félag harmonikuunnenda íSkagafirði hefur tvö síðustu árin staðið fyrir sýningum sem bera heitið „Manstu gamla daga“. Sýning- arnar njóta styrks frá Menningar- ráði Norðurlands vestra. Árið 2011 voru tekin fyrir árin 1962 -1964. í sýningum þessum er sögumaður sem segir fréttir og gamansögurfrá þessum tfma héðan úr Skagafirð- inum. Söngvarar og hljómsveit flytja vinsælustu dægurlögin frá þessumtíma. Settarvoru upptvær sýningar f Bifröst á Sauðárkróki og ein í Höfðaborg á Hofsósi fyrir fullum húsum. Vegna fjölda áskorana var efnt til aukasýn- ingar f Bifröst og var þá einnig húsfylli. Farið var með sýningu til Siglufjarðar tengt sfld- arævintýrinu, var hún sett upp í Bátahúsinu um borð f vélbátnum Tý. Var sögumaður þá búinn að fá góðar sögur og fréttir frá Siglu- firði frá þessum tíma til að flétta inn í sýn- inguna. Núna árið 2012 hafa staðið yfir æfingar á „Manstu gamla daga 3“. Verið er að tvinna saman gamansögur, fréttir og vinsælustu dægurlögin árin 1964 - 1966. Sýningar þessar verða í Bifröst á Sauðárkróki þann 15., 17., og 18. maí kl. 20:30 og í Höfðaborg á Hofsósi en tímasetning þar er ekki alveg ákveðin. í sýningunni koma fram eftirfarandi: Sögumaður er Björn Björnsson fv. skóla- stjóri. Söngvarar- Dagbjört Jóhannsdóttir og Róbert Óttarsson. Hljómsveitina skipa: Aðal- steinn Isfjörð - harm- onika, saxofónn og klarinett, Guðmundur Ragnarsson - bassi, Jón Gfslason - harm- onika, Kristján Þór Hansen - trommur, Sigfús Benediktsson - gftar og Rögnvaldur Valbergsson - hljómborð og gítar. Þessi skemmtun hefur mælst vel fyrir, flytjendum verið klappað lof í lófa og menn haft gaman af upprifjunum á sögum og dægurlögum frá þessum tíma. Mun þessi skemmtun því vera komin til þess að vera árlegur viðburður hjá félaginu. Hægterað panta miða hjá Gunnari R. Ágústs- syni í sfma 891-6120 ogí 453-5304. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Kær kveðja. Félag harmonikuunnenda í Skagafirdi Gunnar R. Ágústsson Janúarskemmtun Harmonikufélags Þingeyinga og Kveðanda 7. janúar kl. 21- 02 var hin árlega skemmtun okkar haldin á Breiðumýri. Góður hópur félaga og gesta mætti og skemmti sér vel. Byrjað var á að hita mannskapinn upp með dansi, en Kveðandi tók svo við. Nokkrir Kveðandafélagar fluttu skemmtitegar vísur við góðar undirtektir. Friðrik Steingrímsson kom með aukavfsu út frá efni Kveðandafélaga. Þá var dansað aftur góða stund, en tekin pása undir miðnætti og haldið bögglauppboð, sem Stefán Þórisson stjórnaði af sinni alkunnu snilli og var það hin besta skemmtun. Aftur var svo dansað til kl. 2 og fóru allir saddir og sælir heim, þar sem stór hluti af uppboðinu var allskonar Ijúfmeti. Sigurður Ólafsson 21

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.