Harmonikublaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 16
VOPNAFJARÐAR
Þann 18. ágúst skruppu 28 félagar í Harmonikufélagi Þingeyinga
til Vopnafjardar og héldu dansleik. Var ferðin fín og andinn frábær,
eins ogalltaf þegar harmonikuunnendur koma saman. Þórgrímur
Björnsson var fararstjóri og sagði gamansögur af böllum f gamla
daga og hlöðustefnumótum. Hann gat þess einnig að hann væri
ívandræðum með beltið sitt. Þetta stóðst Sigríður ívarsdóttir ekki
ogþarmeðvarhafinn hinn hefðbundni vísnaleikursem erorðinn
fastur liður í rútuferðum hjá okkur.
Ferðalag hefjum við eina ferð enn
ágætt að vera hér saman.
Og leggja í hann með lausgirta menn
Ijómandi verður það gaman.
Ásgeir ad segja frá vegöxlunum sem hann lagði
Hólmfríður Bjartmars, bætti við:
Að leggja upp í ferðalag er alltaf ósköp gaman
með eina græna flösku, sú er ekki Ijót.
Formaðurinn Ijúfur og lausgirtur að framan
mig langar til að bjóð'onum á hlöðustefnumót.
íferðinni varSigríður með hækju oghöfðu menn orð á hvort ekki
væri tími til kominn að bóndi hennar fengi sér kaupakonu til að
létta henni störfin ogtókÁrmann vel íþað. Þurfti Ffa auðvitað að
stríða Sigríði á þessu.
Ármann falbýðurýmis störf
sem eru frúna að þreyta.
Að hlífa Sigríði er sjálfsagt þörf
og svo er gaman að breyta.
Og Sigríður svaraði:
Um Sigga efalaust fiðringur fer
er fréttir af þessu hjá Manna
Fía óánægð ekur sér
ætlar slíkt Sigga að banna.
Og Fía bætti við:
Ef fallega ráðskonu ræður hann
sem rangt er að meina kalli.
Ræð ég auðvitað ungan mann
svo ekki á jafnréttið halli.
Og Þorgrímur svaraði með braghendu:
Sigga og Fía segja margt um sína kalla.
Ætla þeir hafi ótal galla
og ólmir vilji konur spjalla.
Á austurleið skoðuðum við bæinn á Burstafelli og héldum svo á
HótelTanga, þarsem okkar beið veisla. Dansleikurinn íMiklagarði
var hinn ánægjulegasti nema aðsókn minni en við hefðum óskað.
Aðsóknin var aðeins spör
en auðvitað var mikið fjör.
Er héldum við svo heim á leið
hölt var Sigga en Ármann skreið.
Fía
Og þessu svaraði Þórgrímur svona:
Hópurinn hér er af gamalli gerð
í glæðunum lifir víst enn.
Líklega verður hin Ijúfasta ferð
fyrir lausgirtar konur og menn.
Gef ég hér fullt af góðum ráðum
gigtveikt er liðið eins og þú sérð,
Held að þurfi að hanna bráðum
hentuga rútu í svona ferð.
Sigrídur
' YWKL/iŒBBTf VWBDáVBBBTí V
ŒBBTíY
Harmonikuviðgerðir
Tek að mér viðgerðir á harmonikum
Gunnar Kvaran sími: 824-7610
16