Harmonikublaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 7
»# %M?5
PWP
'v/wftW
«p
HERMOOUR BIRGIR ALFREÐSSON 80 ARA
Einn af mörgum kynlegum kvistum meðal
harmonikuunnenda er íslenskur Dani, sem
hefur vakið athygli okkar harmonikuunnenda
um árabil. Hann hefur starfað sem leikfimi-
kennari danskra eldri borgara um árabil, en
er fyrst og fremst eins konar bókstafstrúar
harmonikuunnandi. Þetta er að sjálfsögðu
Hermóður Birgir Alfreðsson.
Hann fæddist á Norður Jótlandi þann 13. júní
1932. Þar ólst hann upp til futlorðinsára, en
1957 hleypti hann heimdraganum og flutti
norður að Skriðu í Hörgárdal, þar sem hann
starfaði sem vinnumaður um tíma. Veturinn
1958-59 skaust hann þó til Ollerup á Fjóni og
lauk þar leikfimikennaraprófi. Hann var síðan
fyrir norðan í nokkur ár en flutti fljótlega til
Reykjavíkur og þar bjó hann, allt til þess að
hann flutti aftur til Jótlands haustið 1984.
Hermóður tók sér ýmislegt fyrir hendur í
Reykjavík. Hann las af mælum Rafmagnsveitu
Reyjavíkur, var einnig húsvörður í Hábæ á
Skólavörðustíg. Þá var hann dyravörður hjá
Guðjóni Matthfassyni á dansleikjum íBraut-
arholti 4, en þar uppi á fjórðu hæð, stóð Guð-
jón fyrir dansleikjum um árabil. Rauði
þráðurinn var þó harmonika og dans. Honum
var ekkert heilagt þegar þetta tvennt átti í
hlut. Hann kenndi dans íSilfurtunglinu, starf-
aði í Félagi harmonikuunnenda á upphafs-
árum þess og stofnaði sfðan Þriðja klúbbinn
1981, ásamt nokkrum fleiri valinkunnum
harmonikuunnendum.
Þrátt fyrir að Hermóður hafi yfirgefið klakann
fyrir tæpum þrjátiu árum, er hann mikill
íslendingur, sem kemur hér reglulega og
heldur yfirleitt tvær skemmtanir á ári hér í
Djúpinu við Hafnarstræti. Þær skemmtanir
eru engum öðrum skemmtunum líkar. Þar
stjórnar meistari Hermóður á sinn óformlega
og gamansama hátt, en ekki fer honum fram
í íslenskunni blessuðum. Þarna er leikið á
harmonikur, þó sá þáttur hafi fengið minna
vægi í seinni tíð. Happadrætti er stór liður í
skemmtuninni og vinningarnir að sjálfsögðu
harmonikudiskar að stórum hluta, þó sokkar,
vettlingar, öskubakkar, sælgæti og nærbuxur
fljóti með til bragðbætis. Ekki má gleyma sölu-
mannsþætti Hermóðs. Hann er ótrúlega
magnaður þegar kemur honum. í gamla daga
fór hann um landið og seldi plötur Guðjóns
Matthíassonarf hlössum. Ef þú lesandi þess-
ara lína sérð eldri mann á harmonikumóti,
trúlega í
rauðum buxum
og svartri
skyrtu, þar
sem glittir í
Camelpakka í
brjóstvasanum,
bjóða harmon-
ikudiska, sem
þú mátt alls
ekki vera án, þá
getur þú sagt:
„Gaman að sjá
þigHermóður."
Hann hefur um árabil ritað greinar í harmon-
ikublöð á íslandi og í Noregi enda ótrúlega
frjór og áhugasamur. Hann átti sinn þátt í að
fá Sören Brix á landsmótið í Neskaupstað
öllum til ómældrar gleði.
Þegar Hermóður dvelur á íslandi heldur hann
yfirleitt til hjá góðvini sínum, Þóri Magnússyni
trommara, en þeirra vinátta nær yfir nokkra
áratugi. Hermóður er vinamargur á íslandi
enda öllum ógleymanlegur. Honum eru hér
með sendar þakkir og bestu hamingjuóskir,
með von um langlífi. Friðjón Hallgrimsson
Málninsarbúðin
Sindragata 14 400 ísafirði
Sími: 456 4550
Þarf að fara að mála?
Við eigum málninguna
og verkfærin fyrir þig!