Harmonikublaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 6
Fyrsta harmonikuhátíð sumarsins var í höndum okkar Húnvetninga
og Dalamanna 15.-17. júní ífélagsheimilinu Ásbyrgi, Laugarbakka,
Miðfirði.
Hátíðin tókst með miklum ágætum, þar sem H.U.H. sá um spila-
mennskuna á föstudagskvöld, en vegna harmonikuleysis hjá
H.U.H.fengum við hina frábæru hljómsveitSveinsSigurjónssonar
til að spila fyrir okkur. Stórsveit Nikkólínu spilaði síðan á laugar-
dagskvöldið með glæsibrag. Á dansleikjunum var hin besta stemm-
ing og mikið fótafjör.
Á laugardag fóru flestir harmonikuleikarar í handverkshúsið og
spiluðu fyrir gesti og gangandi, en þar var haldinn sérstakur
prjónadagurogvakti það milda lukku gesta að fá þessa heimsókn,
síðan fór hópurinn í kaffihlaðborð hjá harmonikufélögunum í
Ásbyrgi. Þar var einnig harmonikusýning á vegum E.G. tóna að
vanda.
Aðstaðan í Ásbyrgi er alveg Ijómandi góð, heitt vatn á tjaldstæð-
inu, sturtur, heitur pottur og lítil sundlaugvið húsið, allttil afnota
fyrir hátíðargesti eins og hver vill án aukakostnaðar.
Þetta er önnur hátíð H.U.H. og Nikkólínu íÁsbyrgi, en sú fyrri var
haldin árið 2009. Þar sem þetta hefur lukkast svona Ijómandi vel
hjá okkur, stefnum við full bjartsýni áÁsbyrgi helgina 14.-16. júní
2013.
Með bestu kveðju og þökk fyrir frábært harmonikusumar,
Sólveig Inga og Ásgerður Jónsdóttir.
Myndir: Valur Haraldsson
A
'L
almomkusafn
ÁSGEIRS S. SIGURÐSSÍÍNAR
býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða, ísafirði.
Símanúmer: 456-3485 og 863-1642