Harmonikublaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 20

Harmonikublaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 20
HARTMANNSSONAR Harmonikuunnendur búa nokkuð vel að hagyrðingum. Þeir eru dreifðir um landið. Einn er sá sem á létt með að snara saman. Þetta er Birgir Hartmannsson, harmoniku- leikari á Selfossi. Hann er reyndar fæddur Fljótamaður og þar með Skagfirðingur. Hann sendi blaðinu þetta um daginn. Rísla ég í minja meis, margt er gleymsku ofid. Allt er nú sem ádur reis, orðid lint og dofið. Eitthvað harmonikutengt: Með nikku stendur hann og stappar fæti. Lagið ekki líkist neinu, líkt og hann spili tvö í einu. Dumpar hann á dískantinn og dregur belginn. Hljómarnir þó hvergi passa, hann hittirsjaldan á rétta bassa. Syngurmeð afsannri listog seiminn dregur. Þar er komið þriðja lagið, þessi piltur kann sko lagið. Eina bögu vilégtilfæra, sem éggerði íþeim tilgangi að Iffga upp á ballauglýsingu hjá H.F.S. Harmonikur hljómum strá, handleiknar afsnilli. Áheyrendur fiðring fá í fætur og þar á milli. Þessi vísa hlaut þó ekki náð fyrir augum æðri máttarvalda félagsins og hefur því legið óbætt hjá garði. Að lokum er svo ein, sem ég tel ekki þarfnast skýringa. Þó hann stappi fast með fótunum, sem fleiri gera. Fimastur á fölskum nótunum, mér finnst hann vera. Munaðarleysinginn í Reykjanesbæ býr harmonikuleikari, sem lengi hefurstarfað ÍFélagi harmonikuunn- enda á Suðurnesjum. Sá heitir Konráð Óli Fjeldsted. Honum er ýmislegt til lista lagt annað en að leika á harmoniku, meistari í bifreiðaviðgerðum ásamtfleiru. Það mun hafa verið seint á síðustu öld að hann brá sér af bæ, eins og gengur og gerist. Þegar hann sneri til baka nokkrum klukkustundum síðartók hann eftir því að í ganginum rétt inn við dyrnar stóð harmon- ika. Hann innti frúna eftir hvort hún kann- aðist við gripinn, en hún kom einnig af fjöllum. Harmonikunni var nú fundinn staður og Konni beið þess að einhver hringdi. Eftir nokkrar vikur ákvað Konni að líta á gripinn og sá þá að ýmislegt var að, sem mætti jafnvel laga. Nikkan var gömul og fölsk, auk fleiri atriða, sem líta þurfti á. Smám saman tókst honum að gera við það sem hann réði við, en beið svo með afgang- inn. Bar nú ekkert til tíðinda. Vestur á ísa- 20 firði hafði Ásgeir Sigurðsson fengið þá grillu að stofna harmon- ikusafn. Hann hafði látið þetta spyrjast út og fengið mjög jákvæðar undirtektir. Þegar harm- onikan hafði verið hjá Konna í á þriðja ár, ákvað hann senda hana til ísafjarðar. Þar var hún boðin velkomin og hlaut virðingarsess. Leið nú árið. Þá bar svo við að maður sem Konni kannaðist lítil- lega við kom í heimsókn til hans og eftir kaffisopa og spjall sagði maðurinn: „Varstu eitthvað búinn að líta á harmonikuna, sem ég kom með“. Hvaða harmoniku ? spurði Konni og kom af sömu fjöllum og þremur árum áður. „Nú sem ég setti inn í ganginn hjá þér“. Eftir langa mæðu áttaði Konni sig. „Þú meinar þetta hálfónýta hró, sem var sett inní ganginn fyrir þremur árum?“ Maðurinn játti því og sagðist hafa fundið nikkuna í rusli og ákveðið að láta líta á hana. „Ja“, svaraði Konni, „ég gaf hana á harmonikusafnið á ísafirði og ég ræð þér eindregið frá því að reyna að ná henni þaðan.“ Maðurinn hló þá ógurlega og sagðist hæstánægður með þessa ráð- stöfun, enda hefur ekki frést af neinum, sem reynt hafi að ná harmoniku af safni Ásgeirs Sigurðssonar. Ritstjórinn

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.