Fréttir - Eyjafréttir - 25.09.2008, Blaðsíða 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 18. september 2008
Umhverfisviður-
kenningar 2008
I síöustu viku var upplýst hverjir
hlutu viðurkenningar fyrir
snyrtimennsku í ár. Það eru um-
hvefisnefnd Vestmannaeyjabæjar
og Rotaryklúbbur Vestmanna-
eyja sem standa að viðurkenn-
ingunum.
Fyrir vel heppnaðar endurbætur
á húseign fengu Helga Jónsdóttir
og Arnór Hermannsson, Vest-
mannabraut 69 viðurkenningu.
Fallegasta garðinn eiga Ingibjörg
Hjálmarsdóttir og Júlíus Oskars-
son, Ashamri 16.
Snyrtilegasta húsið og garðinn
eiga Guðrún Jóhannsdóttir og
Þórarinn Sigurðsson, Illugagötu
15a. Snyrtilegasta fyrirtækið er
Smart, Vestmannabraut 30, í
eigu Lindu Hannesdóttur og
Gíslal ngólfssonar.
Frá afhendingunni.
'■>' ■ S 11 ii
Grunnskóli Vestmannaeyja:
Fyrsti grunnskólinn sem setur
skákkennslu á stundaskrá
Börn í 1. til 5. bekk Grunnkóla
Vestmannaeyja læra nú skák í
skólanum og er það trúlega í
fyrsta skipti sem skák er kennd
sem námsgrein á grunnskólastigi
á Islandi. Skákennslan kom
óvænt upp á en nemendur fá
kennslu í skák í stað danskennslu
fram að áramótum.
„Þetta virðist hafa tekist vel og
krakkarnir eru mjög ánægðir ,“
sagði Sigurlás Þorleifsson, að-
stoðarskólastjóri GV þegar hann
var spurður út í nýja námsefnið.
„Danskennarinn er í fæðingar-
orlofi og við veltum því fyrir
okkur hvað við gætum sett inn í
staðinn Þá datt okkur í hug að
prufa skákkennslu þar sem við
höfum góðan skákkennara.
Hugmyndin er að vera með
skákkennslu fram að áramótum
og þá tekur danskcnnslan við. Ef
reynslan verður góð þá getur allt
eins verið að við verðum áfram
með skákennslu næsta vetur.
Skákstarf í sumum grunnskólum
er mjög öflugt en ég held að þetta
sé fyrsti grunnskólinn sem setur
skákkcnnslu á stundaskrá en
nemendur í 1. til 5. bekk fá eina
kennslustund á viku. Þetta er
liður í að efla skáklistina en
Taflfélag Vestmannaeyja hefur
unnið mjög gott starf í Eyjum og
vonandi verður þetta til að efla
okkur enn frekar,“ sagði Sigurlás
en Björn Ivar Karlsson kennir
krökkunum skák í skólanum.
Viltu vita
meira um
lundann?
Því föstudaginn 29. september
viður í Miðstöðinni, Strandvegi 30,
staddur Jóhann Oli Hilmarsson
með kynningu á bók sinni Lundinn.
I bókinni eru margar nýjar
upplýsingar um lundann og einnig
margar frábærar myndir. Allir sem
vilja vita meira um lundann eru
hvattir til að mæta. Eftir kynningu
verður létt spjall um lundann, þen-
nan frábæra fugl, og menn geta
skipst á skoðunum því hér eru
margir sem þekkja vel til hans.
Kynnir Pcíll Scheving.
Hin ríkisrekna fiskveiðiráðgjöf hefur brugðist
Á pallborði, Árni, Einar Kr. Þorgerður Katrín, Skapti Örn Ólafsson og Þórlindur Kjartansson, formaður SUS.
Karlaleikfimi
í Týsheimili
Leikfimin er byrjuð! Tímar á mánudögum
og miðvikudögum kl. 18.50 til 20.00.
Kári
VEIÐIFÉLAGIÐ HEIMAEY
Lokahóf veiðifélags Heimaeyjar verður haldið í Blíðukró
kl.20 laugardaginn 27. september.
Farið yfir líðandi sumar og framhaldið rætt.
Mætum snyrtilegir þar sem stefnt er að því að taka
mynd sem nota á í jólakort til annara lundaveiðimanna
á næstu jólum.
Stjórnin
Á sunnudaginn lauk í Vestmanna-
eyjum milliþingi SUS, Sambandi
ungra sjálfstæðismanna, en það
hófst seinnipart föstudags.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, þau
Árni M. Mathiesen, Einar Kristinn
Guðfinnsson og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir sátu í pallborði á
þinginu og svöruðu fyrirspurnum
frá ungum sjálfstæðismönnum.
Rúmlega 100 ungir sjálfstæðismenn
tóku þátt í þinginu sem lauk með
því að samþykkt var stjórnmála-
ályktun milliþingsins.
Um sjávarútveg segir að hann
gangi nú í gegnum mikið umrótar-
skeið. „Niðurskurður aflaheimilda í
þorski á síðasta ári hefur komið
þungt niður á greininni. Að mati
SUS er ljóst að hin ríkisrekna
fiskveiðiráðgjöf hefur brugðist.
Brýnt er að fleiri aðilar komi að
rannsóknum og fiskveiðiráðgjöf
þannig að fram fari vísindaleg
umræða og gagnrýni hverju sinni
um ákvörðun um heildarafla. Ekki
er síður mikilvægt fyrir sjávarútveg
og byggðir landsins að vikið verði
nú þegar frá skattlagningu á
fyrirtæki í sjávarútvegi umfram
önnur fyrirtæki með svonefndu
auðlindagjaldi. Mikið óréttlæti er
að mismuna atvinnugreinum með
þessum hætti sem í þokkabót
kemur af mikilli hörku niður á
sjávarbyggðir á landsbyggðinni,"
segir m.a. í ályktun SUS
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480878-0549 - Vpstmanimoyjiun. Bitstjórk Ómar Gairlarsson.
Blaðamenn: GnSbjörg Signrgcirsdóttir og Júlíns Ingason. tþróttir: Júlíns Ingason.
ÁbyrgSarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn Eyjapicnt . Vostmannaoyjiim. ASsetnr ritstjómar: Stnindvegi 47.
Simai: 481 1300 & 481 3310. MyndritL 481-1293. NetfangAafpóstur: fi-ottir@oyjalivttir.is.
Yeffang: http/Avwvv.eyjafivttir.is
FRÉTTTR koma út alla fimmtudaga. Blaðið or solt i áskrift og oinuig i lausasölu ú Klotti,
TYistinum, Toppnum, Vöruval, Horjólfi, Idughafiia rvorsl un i u n i, Krónunni, Isjakannm,
vorslun 11-11 og Skýlinu í Friðarhöfn.. FRETTTK oru prentaðar í 8000 ointökum.
FRÉTTER oru aðilar að Samtökum bæjar- og lióraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritiui,
notkun Ijósniynda og annað or ólioiinilt ncnia lioimilda sé gotiö.