Fréttir - Eyjafréttir - 25.09.2008, Síða 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 25. september 2008
BlogghQlmar
Eyjamaður vlkunnar:
Kirkjur bazjarins:
Magnús Bragason:
Er súluball
framtíðin?
Lundaballið hefur verið haldið í
tugi ára. Margar
hefðir hafa skapast í
kringum ballið,
margar skemmti-
legar og aðrar síðri
eins og þegar Bjam-
areyingar syngja.
Stóru veiðifélögin
sjö skiptast á að standa fyrir ball-
inu, þ.e. að sjá um skreytingar og
skemmtiatriði. Reyndar hafa menn
oft fengið aðstoð við það síðar-
nefnda frá Ystaklettsmönnum, sem
hafa oft skemmt gestum með
hegðun sinni. En sagan og hefðin
er skemmtileg og það hefur sýnt sig
að fólk kann að meta þessa hátíð.
Fjöldi þeirra sem mæta hefur marg-
faldast síðari ár.
En svo er það framtíðin!! Nú lítur
allt út fyrir það að lundaveiði verði
bönnuð eða alla vega mjög tak-
mörkuð á næsta ári. Þá verður ekki
til lundi fyrir ballið. Hins vegar
hefur súlan verið að fjölga sér.
Þannig að við gætum breytt þessu í
Súluball! Hellisey er eina eyjan þar
sem er súla, af þeim eyjum sem
hefur staðið fyrir Lundaballinu.
Þannig að hér eftir verður þetta
alltaf í umsjón Helliseyinga og
heitir Súluballið.
Bjarnareyingar fara offari á heim-
síðunni sinni. Þar sannast hátt
hreykir....sér!!!
http.V/maggibraga. blog. is/blog/mag
gibraga/
Helgi Gunnarsson:
Bakkafjöru-
ævintýri * * * *
Mig langar að vekja máls á sam-
göngumáli sem virðist stefna í
ævintýri eins og nýju fötin keis-
arans, en ég vitna í grein sem
Grímur Gíslason skrifar í Fréttir
þann 18. september, mér sýnist að
stjórnsýslan í samgöngumálum
okkar Islendinga sé að klúðra svo-
kölluðu ferjumáli all svakalega. Sé
allt satt sem Grímur skrifar um,
allavega er ekki byrjað að smíða
nýtt skip og eftir því sem mér
sýnist þá er nýjasta útboð jafndýrt
og tilboð Vinnslustöðvarinnar og
Vestmanneyjabæjar frá þvf í vor.
Þannig að ég skil ekki hvað er í
gangi hjá Siglingamálastofnun,
annað en stjórnsýslusukk, eftir
grein Gríms að dæma þá eru ein-
hverjir hagsmunir þar á ferð innan
Siglingarstofnunar fslands eða
annarstaðar í stjómkerfmu.
Eitt mesta klúðrið hjá Samgöngu-
ráneytinu var að láta NAVIS koma
að þessu máli, en það eru sömu
aðilar og klúðruðu Grímseyjar-
ferju, sem var nú frægt, það er
alveg með ólíkindum hvað sam-
fylkingarmaðurinn Kristján Möller
Iætur embættismenn vaða upp með
hverja vitleysuna á eftir annari. Mig
langar að endingu að þakka Grím
Gíslasyni fyrir góðar greinar sem
hann hefur skrifað í gegnum tíðina
og það sýnir hvað hann er mikil
eyjamaður og góður drengur.
http://helgigunnars.blog.is/blog/hel
gi/
Mold og skítur kom fyrir vikur
Umhverfts- og skipulagsnefnd Vest-
mannaeyjabæjar og Rotaryklúbbur
Vestmannaeyja afhenti umhverfis-
verðlaun fyrir árið 2008, síðasta
fimmtudag. Fallegasti garðurinn er
í eigu Ingibjargar Hjálmarsdóttur
og Júlíusar Óskarssonar, Áshamri
16. Það útheimtir mikla elju og
vinnusemi að rækta garðinn sinn og
fallegur garður er bæjarprýði.
Ingibjörg Hjálmarsdóttir er Eyja-
maður vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Hjálmfríður Ingibjörg
Hjálmarsdóttir
Fæðingardagur: 02.04.1955
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar
Fjölskylda: Maðurinn Júlli og
synimir Daði og Hjálmar
Draumabíllinn: Honda
Uppáhaldsmatur: Fiskur
Versti matur: Þetta er erfitt, oftast
hægt að þræla flestu í sig
Ingibjörg er Eyjamaður vikunnar.
Uppáhaids vefsíða: Heimaslóð.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Rokk og ról;
Aðaiáhugamál: Útivera og
Skógræktarfélagið.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Engan, fer aldrei á miðilsfundi.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Hjálmar í körfunni.
Ertu hjátrúarfull: Nei.
Stundar þú einhverja íþrótt:
Nei.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir
og fræðsluþættir
Hvenær byrjaðir þú að taka
garðinn í gegn: 1999 byrjuðum
við að moka upp vikri og setja í
staðin mold og skít.
Þurftirðu að skipta um jarðveg:
Það þarf að skipta um jarðveg all-
staðar þar sem eithvað annað en
gras á að vera hér í vesturbænum.
Hvað er lóðin stór og hvað ert þú
með margar tegundir: Hún er
stór og tegundirnar eru margar.
Matgazðingur vikunnar:
Mexíkóbrauð ‘a la Rakel
Ég vil byrja á að þakka Heiðrúnu
mágkonu minni og Gunna fyrir að
treysta mér til að vera sælkeri
vikunnar. Ég er mikill sælkeri og
elska að borða góðan mat, eftirrétt-
irnir þykja mér þó oftar en ekki
bestir. Ég hef ákveðið að setja fram
uppskrift sem ég samdi fyrir síðasta
saumaklúbb og kellurnar mínar
voru rosa hrifnar.
Mexico brauð ‘al La Rakel
Þetta er uppskrift fyrir 2 stk. rúllu-
brauð
Vi kassi niðurskornir sveppir
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
Vi hvítlauk
4 tómatar
Slatti af svörtum ólífum
2 msk Hot Chiliisósa (mexíkósk)
1 '/2 -2 krukkur af Hot Mexico sósu
1 poki Dorritos flögur að eigin vali,
Rakel Björk matgœðingar vikunnar.
(rosa góðar í þennan chilli
flögurnar).
Rifinn ostur
'/2 msk majones
Aðferð: Saxa allt grænmeti niður.
Tómatar skornir niður og tekið
innan úr þeim, þeir svo skomir
smátt. Jukkinu og flögunum er öllu
blandað saman nema majonesinu
og smá tekið frá af osti til að setja
ofan á brauðið. Þetta er smurt inn í
brauðið og osti stráð yfir, brauði
rúllað upp. Majonesi smurt á brauð
og osti stráð yfir. Til skreytingar er
flott að strá papriku kryddi eða
chilli dufti yftr ostinn ofan á
brauðinu.
Hitað í ofni á 200°c þangað til
ostur er farin að brúnast.
Þetta er svo borið fram með
sýrðum rjóma og flögum, rosa gott
að drekka einn ískaldan með!
Mig langar svo til að skora á
vinkonu mína og klúbbfélaga hana
Salome Yr til að verða næsti mat-
gæðingur vikunnar. Ég veit að hún
lumar á flottum uppskriftum.
Verði ykkur að góðu.
Steindór Jónsson - Árnað heilla hundrað ára
100 ára afmæli á
í dag, miðviku-
daginn 24. sep-
tember, Steindór
Jónsson, fæddur
1908 að Steinum
Austur Eyja-
fjöllum. Sonur
hjónanna Jó-
hönnu Magnús-
dóttur og Jóns
Einarssonar er þar bjuggu.
Árið 1920 flutti móðir hans, sem
þá var orðin ekkja, til Vestmanna-
eyja með fimm börnum sínum,
tengdasyni og tveimur barnabörn-
um. Um þær mundir voru fyrstu
bifreiðamar að koma til Vest-
mannaeyja. Steindór var einn af
fyrstu mönnum sem hóf bifreiða-
akstur í Eyjum í fyrstu hjá
beinaverksmiðjunni Heklu er síðar
varð Lifrasamlag Vestmannaeyja.
Þegar Bifreiðastöð Vestmannaeyja
var stofnuð 1929 gerðist Steindór
þar meðlimur. Þar starfaði hann til
ársins 1940 er hann flutti til
Reykjavíkur og hóf störf hjá Land-
símanum. Þar var hann undir stjórn
Einars bróður síns er var að leggja
símalínur víða um land.
Síðar gerðist hann bifreiðavirki og
vann lengst hjá Landleiðum.
Áður en Steindór hóf bifreiða-
akstur vann hann við gerð hafnar-
garðsins á Hörgeyri. Síðar var sett
listaverk á garðsendann sem jafn-
framt er leiðbeiningarmerki fyrir
sjómenn. Listaverkið er eftir son
Steindórs, Grím Marínó. Víða má
sjá listaverk eftir hann, stór og smá
er setja mikinn svip á Eyjarnar.
Steindór er nú vistmaður í Sunnu-
hlíð í Kópavogi. Hann er vel ern en
sjón og heyrn eru farin að daprast.
Ættingjar og vinir ætla að
samfagna með honum á afmælis-
daginn.
Magnús Guðjónsson,
Illugagötu 5 Vestmannaeyjum.
Gamla myndin:
Hér er enn mynd úr ljós-
myndasafni Kjartans
Guðmundssonar. Páll
Steingrímsson síðar
frægasti náttúruvernd-
arsinni þessa lands, situr
fyrir ásamt félögum
sínum úr skátunum. Páll
er neðst á myndinni til
hægri. En hverjir eru
félagar hans? Hvenær
var myndin tekin og við
hvaða tækifæri? Þar
skortir okkur þekkingu,
þó ýmsar tillögur hati
borist um einstaka dren-
gi á myndinni. Nú er enn
leitað til lesenda Frétta -
enda aðeins einu sinni
komið fyrir að greið svör
hafi ekki borist. Þá var auglýst eftir mynd af Axel Einarssyni listamanni og hefur engin slík fundist.
Lesendur sem luma á upplýsingum um myndina sem hér birtist eru vinsamlegast beðnir um að líta við hjá
okkur á Bókasafninu eða hringja til okkar í síma 481 1184.
landakirkja
Fimmtudagur 25. september
Kl. 10.00. Foreldramorgunn, kaffi
og spjall, gengið inn frá Skólavegi.
Kl. 20.00. Fundur hjá æskulýðs-
félaginu í KFUM&K-húsinu
Kl. 20.00. Æfmg hjá kirkjukór
Landakirkju.
Föstudagur 26. september
Kl. 13.00. Æfmg hjá Litlu læri-
sveinunum, yngri hópur.
Kl. 14.00. Æfing hjá Litlu læri-
sveinunum, eldri hópur.
Sunnudagur 28. september
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta.
Söngur og gleði em allsráðandi.
Mýsla og Músapési kíkja í heim-
sókn og skoðað verður í fjársjóðs-
kistuna. 6-8 ára starf byrjar uppí
kirkju á sama tíma og heldur áfram
í fræðslustofunni.
Kl. 14.00. Messa. Kór Landakirkju
syngur. Sr. Guðmundur Örn
Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt Guðnýju Bjarnadóttur
djákna. Fermingarbörn lesa ritn-
ingarlestra. Kaffi og spjall í safn-
aðarheimili eftir messu.
Kl. 15.15. Guðsþjónusta á
Hraunbúðum.
Kl. 15.30. NTT-starf í fræðslu-
stofunni.
Kl. 17.00. ETT-starf í fræðslustof-
unni.
Kl. 20.30. Fundur hjá æskulýðs-
félaginu í safnaðarheimili
Landakirkju.
Mánudagur 29. september
Kl. 19.30. Vinir í bata, andlegt
ferðalag fyrir konur og karla á
öllum aldri. Opinn kynningarfundur
í fræðslustofunni.
Kl. 20.00. Vinnufundur hjá
Kvenfélagi Landakirkju.
Þriðjudagur 30. september
Kl. 14.20 og 15.10.
Fermingarfræðsla í fræðslustofunni.
Kl. 20.00. Fundur hjá æskulýðs-
félaginu í safnaðarheimili Landa-
kirkju.
Miðvikudagur 1. október
Kl. i 1.00. Helgistund á Hraun-
búðum.
KI. 13.00, 13.45 og 14.30.
Fermingarfæðsla í fræðslustofunni.
Kl. 20.00. Aglow í safnaðarheimili
Landakirkju.
Huítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Bænaganga. Biðjum um
blessun.
Laugardagur
KI: 20.30 Brauðsbrotning. Þökkum
dauða Jesú.
Sunnudagur
Kl: 13.00 Samkoma Guðni Hjálm-
arssson prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir
Bænastundir alla virka morgna
kl: 7.30, verið velkomin.
Aðventkirklan
Laugardagur
Vertu velkominn að rannsaka með
okkur Biblíuna kl. 10:30. Sérstök
dagskrá fyrir börnin.
Sjáumst!