Fréttir - Eyjafréttir - 13.11.2008, Side 12
12
Fréttir / Fimmtudagur 13. nóvember 2008
Landslið rithöfunda á Safnahelgi:
Metnaðarfull og spennandi dagskrá
-Þar gátu allir sem hafa áhuga á bókmenntum fundið eitthvað við sitt hæfi
Skoðun
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
gudbjorg @ eyjafrettir. is
Sannkölluð bókmenntaveisla fór
fram um helgina þegar úrval rithöf-
unda sótti Eyjamar heim og las úr
verkum sínum fyrir bæjarbúa.
Guðrún Eva Mínervudóttir, Guðjón
Friðriksson og Auður Jónsdóttir
lásu upp í Safnahúsi á laugardag.
Einar Kárason og Hallgrímur
Helgason lásu í Herjólfsbæ um
kvöldið og á sunnudag lásu Sjón og
Ulfar Þormóðsson upp úr verkum
sínum. Dagskrá Safnahelgar var því
metnaðarfull og spennandi og allir
sem hafa áhuga á þókmennlum gátu
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Myndlist og ritlist
Veislan hófst á laugardag þegar
Guðrún Eva Mínervudóttir las upp
úr nýjustu bók sinni Skaparanum
við opnum myndlistarsýningar Sig-
urdísar Arnarsdóttur í anddyri
Safnahúss.
Fyrr en varði voru gestir mynd-
listarsýningarinnar komnir inn á
heimili brúðugerðarmanns sem
steikti gamalt hakk úr ísskápnum,
eftir mikla vinnutörn. Það mátti
næstum finna lyktina, í fyrstu af
hráu og ólystugu hakkinu sem batn-
aði til mikilla muna eftir að það
hafði verið steikl og fært í betri bún-
ing. Sveinn, ein af aðalpersónunum,
lítur út um gluggann og sér unga
konu sem er skipta um dekk á bíln-
um sínum fyrir utan. I framhaldinu
fer hann út til að aðstoða hana og
býður inn til sín. Þannig hefjast
kynni þeirra. Eftir að Guðrún Eva
hafði lesið úr bók sinni færðu gestir
sig inn á Bókasafnið og biðu spennt-
ir eftir fleiri sögum.
Guðjón Friðriksson kynnti ævisögu
Olafs Ragnars Grímssonar sem
kemur út á næstu dögum. Guðjón er
einn færasti ævisagnaritari þjóðar-
innar og hefur hlotið íslensku bók-
menntaverðlaunin oftar en nokkur
annar. Guðjón las ekki upp úr bók-
inni enda kom fram að útgefandinn
vildi sjálfur ráða þvf hvað bærist úl
um efni hennar enda eru þar upp-
lýsingar um það sem gerist á bak við
tjöldin í heimi stjórnmálanna.
Útrásin fær sinn skerf enda hefur
Olafur stutt hana dyggilega, auk
þess sem lesendur kynnast einkalífi
forsetans, sigrum hans og sorgum.
Vetrarsól
Auður Jónsdóttir steig síðan á stokk
og las upp úr skáldsögunni Vetrar-
sól. Aður en Auður hóf lesturinn
sagði hún að þetta væri þriðja bók
hennar sem fjallaði m.a. um sam-
skipti fullorðins einstaklings og
bams. I Vetrarsól situr aðalpersónan
uppi með tíu ára gamlan son sam-
býlismannsins sem er fjarri góðu
gamni á ísafirði.
Auður leiddi áheyrendur inn í
heim Sunnu sem lítur á sig sem
hálfgerða þeytipíku hjá útgáfu-
fyrirtæki sem gefur m.a. út glæpa-
sögur. Sunna er ekki alveg sátt við
sína stöðu og fram kemur að aðal-
glæpasagnahöfundur landsins er
gamall skólafélagi sem var ekki hátt
skrifaður í vinkvennahópunum á
ámm áður.
Eigendur bókaforlagsins senda
hana á glæpasagnanámskeið þrátt
fyrir að hún hafi takmarkaðan
áhuga. Sunna virðist litlu ráða í
heimi karlmanna en í kaflanum sem
var lesinn virtust gráalvarlegar stað-
reyndir í líft persóna verða einhvern
vegin grátbroslegar. I bókinni
hverfur vinkona Sunnu og lífhenn-
ar sjálfrar verður einna líkast glæpa-
sögu.
Guðrún Eva las aftur upp úr Skap-
aranum fyrir áheyrendur á Bóka-
safninu. Nú var Lóa, konan sem
skipti um dekk fyrir utan hjá Sveini,
búin að stela einni brúðunni og við
það dregst hann inn í tjölskyldumál
Lóu og tekst um leið á við eigið líf.
Það var frábært að sjá og heyra
þessa ungu kvenrithöfunda og
sömuleiðis í reynsluboltanum Guð-
jóni Friðrikssyni.
Tveir töffarar
Veislan hélt áfram í Herjólfsbæ
þegar Einar Kárason og Hallgrímur
Helgason, báðir megatöffarar, lásu
upp úr bókum sínurn um kvöldið.
Einar las upp úr Ofsa í hálf-
rökkvuðum bænum og færði áheyr-
endur aftur til Sturlungaaldar. Ekki
bara til höfðingja sem áttu mikið
undir sér heldur líka til minni spá-
manna sem máttu færa fórnir vegna
valdabröltsins sem aðrir stóðu
fyrir. Brúðkaupsveisla að Flugumýri
GUÐRÚN EVA sagði frá Lóu
sem stal dúkku.
GUÐJÓN kynnti ævisögu Ólafs
Ragnars forseta.
AUÐUR sagði frá Sunnu sem
lítur á sig sem þeytipíku..
EINAR færði áheyrendur aftur
til Sturlungaaldar.
HALLGRÍMUR sagði frá manni
sem vilda hætta að drepa fólk.
ÚLFAR hefur skrifað skáldsögu
um Hallgrím Pétursson.
SJÓN kynnti Rökkurbýsnir sem
byggir á ævi Jóns lærða.
GESTIR í HERJÓLFSBÆ Það magnaði upp stemmninguna að heyra þá Einar Kárason og Hallgrím Helgason lesa upp úr sögum
sínum í Herjólfsbæ.
var í brennidepli og lýsingin á
brennunni og afdrifum fólksins var
alveg mögnuð. Þá var ekki síður
hrikalegt að heyra lýsingar á ástandi
Gissurar þannig að áheyrendum
varð hrollkalt þarna í trekknum í
Herjólfsbæ. Engu var líkara en að
sjálfur sögumaðurinn hefði stigið út
úr sögunni þó svo höfundurinn væri
vissulega á staðnum.
Hallgrímur Helgason tók því næst
við að lesa Tíu ráð til að hætta að
drepa fólk og byrja að vaska upp.
Hugmyndina að bókinni fékk Hall-
grímur þegar hann hitti konu um
borð í flugvél, konu sem var á leið á
prestastefnu. Hann fór að velta því
fyrir sér hvemig það væri að verða
önnur persóna en hann er sjálfur.
Sagan segir frá króatískum leigu-
morðingja sem flýr til Islands í gervi
sjónvarpspredikara. Forsvarsmenn
sértrúarsafnaðar taka móti honum,
hann býr á heimili þeirra hjóna,
tekur við að predika og auðvitað er
þetta afar sérkennileg blanda.
Myndir sem birtast og tengjast
minningum frá stríðinu í Króatíu
eru allt í senn, sterkar, áhrifamiklar
og sorglegar.
Sannarlega tvær spennandi bækur
og auðvitað langar alla til að vita
meira.
Jón lærði og Hallgrímur P.
Og enn var veisla á sunnudag.
Sögusetrið 1627 stóð fyrir komu
tveggja rithöfunda sem eiga það
sameiginlegt að skrifa bækur sem
byggja á ævi manna sem voru uppi á
17. öld. Það var því vel við hæfi að
lesturinn færi fram á Byggða-
safninu.
Sjón kynnti skáldsögu sína
Rökkurbýsnir sem byggir á ævi Jóns
lærða þó hann gefi aðalpersónunni
annað og nýtt nafn og heiti Jónas
Pálsson. Sjón sagði frá ævi Jóns en
hann ienti í hrakningum vegna þess
að hann var talinn tengjast göldrum.
Endaði það með því að hann var
dæmdur en að lokum sendur til
Danmerkur og mál hans tekið upp
aftur. Hann var náðaður og fékk
hlutverk hjá Ole Worm þar sem
hann naut sín á meðal fræðimanna.
Sjón las m.a. kafla af samskiptum
þeirra Jónasar og Ole Worm.
Úlfar Þormóðsson las úr bókinni
Hallgrímur sem er söguleg skáld-
saga um Hallgrím Pétursson, prest
og sálmaskáld. Úlfar las kafla þar
sem segir frá kynnum þeirra
Hallgríms og Guðríðar Símonar-
dóttur sem síðar varð eiginkona
hans. Engu var líkara en ást þeirra
væri töfrun líkust en í lýsingu út-
gefenda segir að bókin fjalli um
baráttu Hallgríms við Guð, ástir
hans og Guðríðar, sáran dótturmissi
og fæðingu Passíusálmanna.
Dagskrá Safnahelgar var skipu-
leggjendum til mikils sóma og
vonandi fá bæjarbúar meira að heyra
á næsta ári.
X