Fréttir - Eyjafréttir - 29.10.2009, Qupperneq 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 29. október 2009
Umhverfis- og skipulagsráð: Athugasemdir við bílastæði á miðsvæði:
Fasteignir ekki allar til sóma
IBV fjarlægi mannvirki úr Herjólfsdal sem tengjast þjóðhátíð
TILLAGAN sýnir hílastæöi sem verða merkt og er ekki áætlað að
setja bílastæði fyrir framan Stakkagerðistún.
Umhverfis- og skipulagsráð fundaði
miðvikudaginn 21. október. Þar var
fjallað um breytingartillögu sem
send var til kynningar 29. september
sl. um bílastæði við Hilmisgötu og
umferð við Stakkagerðistún.
Eitt bréf barst ráðinu frá íbúum
Hilmisgötu 7 dags. 19.10.2009. Við
afgreiðslu ráðsins kemur fram að
ráðið þakkar góðar ábendingar
bréfritara og áréttar að allar fram-
kvæmdir verða áfram í fullu sam-
ráði við íbúa götunar. Tæknilegar
útfærslur s.s. niðurföll, gangstéttir
og lýsing verða kynntar íbúum áður
en til framkvæmda kemur. Hilmis-
gata verður sem áður vistgata og er
götuþrengingu ætlað að draga úr
umferðarhraða, sem og kantsteinar
sem lagðir verða með Stakka-
gerðistúni til afmörkunar götu.
Tillagan sýnir bílastæði sem verða
merkt. Ekki er áætlað að setja bfla-
stæði fyrir framan Stakkagerðistún
enda er töluverður fjöldi stæða
austar við götuna.
Ráðið fól skipulags- og bygginga-
fulltrúa framgang erindis.
Fresta afgreiðslu vegna bílastæða
miðsvæðis
Ráðið tók líka fyrir breytingatillögu
sem send var til kynningar 28. sept-
ember sl. um bílastæði og göngu-
leiðir á miðsvæði, bak við Hótel
Þórshamar og Apótekið.
Fjögur bréf bárust ráðinu, þ.e. frá
Gísla V. Einarssyni f.h. Hótels Þórs-
hamars, Braga I. Ólafssyni og Guð-
jóni R. Sigurmundssyni Kirkjuvegi
10 til 12, Gísla Engilbertssyni f.h.
eigenda að efri hæð Bárustígs 9 og
frá Sigríði H. Gunnarsdóttur Vest-
mannabraut 24.
Ráðið frestaði afgreiðslu málsins
Umsóknir um byggingarleyfi
Umhverfis- og skipulagsráð tók á
síðasta fundi fyrir umsókn frá
Júlíusi G. Ingasyni og Þóru Gísla-
dóttir Brimhólabraut 29 um leyfi til
að stækka kjallara og gera bílskúr
með aðkomu að vestan. Einnig er
sótt um leyfi til að klæða húsið að
utan með múrklæðningu á kjallara
og hæð með Canexel utanhúsklæðn-
ingu. Engar athugasemdir bárust úr
grenndarkynningu og ráðið sam-
þykkir fyrirliggjandi gögn þar sem
teikningar eru í samræmi við skipu-
lags- og byggingarlög.
Þá var tekin fyrir umsókn frá
Sigurjóni Pálssyni, f.h. Reglubrautar
ehf., um leyfi fyrir glugga á suður-
hlið 2. hæðar Vesturvegar 5, sbr.
innsend gögn. Var það samþykkt af
byggingafulltrúa þann. 8.10.2009.
Ekki bæjarfélaginu til sóma
Li'ka voru á dagskrá umhverfismál
sem tengjast þjóðhátíðarhaldi og
miðbæ Vestmannaeyja.
Ráðið ítrekar bókun dags. 1. júlí
2009 og óskar eftir að leyfishafi,
IBV-íþróttafélag, fjarlægi mannvirki
úr Herjólfsdal sem tengjast þjóð-
hátíð.
Þá vill ráðið benda eigendum fast-
eigna á miðbæjarsvæði á, að víða er
ástandi ábótavant og ekki bæjar-
félaginu til sóma. Er þess vænst að
eigendur fasteigna sýni ábyrgð í
verki og hugi að sínum eignum. Að
öðrum kosti mun verða gripið til
viðeigandi aðgerða skv. ákvæðum
laga og reglna.
Sjómannafélagið Jötunn varð 75 ára 24. október:
Engin veisla en gáfu Hraunbúðum gjöf
Sjómannafélagið Jötunn er 75 ára en
félagið var stofnað 24. október
1934. í stað þess að halda afmælis-
veislu albenti félagið Hraunbúðum
gjöf sem kemur sér vel fyrir heimil-
isfólkið. Sjómenn eru almennt sáttir
við sína stöðu og þeir eru samnings-
bundnir út næsta ár.
Valmundur Vaimundsson, formaður
Jötuns, sagði að félagið hafi ákveðið
að gefa æfmgahjól til Hraunbúða
því þörf haft verið lyrir annað hjól
við stofnunina en þar var eitt fyrir.
„Við höldum ekki veislu nema á tíu
ára fresti þannig að það eru fimm ár
í næstu,“ sagði Valmundur og telur
sjómenn almennt nokkuð sátta við
sína stöðu.
„Menn eru þokkalega ánægðir með
kaupið. Ef útgerðin gengur vel þá
gengur vel hjá sjómönnum. Það er
allt í föstum skorðunt hjá okkur. I
Eyjum er gamalgróin útgerð og það
hefur ekki verið neilt vesen undan-
farin ár,“ sagði Valmundur.
Um næstu helgi verður formanna-
fundur Sjómannasambands Islands í
Vestmannaeyjum en þeir eru haldnir
ísfélagið sigraði í
Á dögunum fór fram firmakeppni
Taflfélags Vestmannaeyja en alls
tóku 39 fyrirtæki þátt í keppninni
og 11 skákmenn tefldu fyrir þeirra
hönd. Fljótlega kom í ljós að
Isfélagið, Hjólbarðastofan og
Síldarútvegsnefnd myndu berjast
um efstu sætin og fór svo að
lokum að enginn náði fujjii húsí
vinninga. ísfélagið hafði þó nau-
man sigur, Hjólbarðastofan varð í
öðru sæti og Síldarútvegsnefnd í
því þriðja. Fyrir ísfélagið tefldi
Sverrir Unnarsson, Kristófer
Gautason tefldi fyrir
Hjólbarðastofuna og Nökkvi
Sverrisson fyrir
S íldarútvegsnefnd.
GJOFIN afnent: Valmundur, Sigurður Sveinsson, Sigurleif Guðfinnsdottir og Magnus Jonasson, forstöðu-
á milli þinga, annað hvert ár. „Trú-
lega verða hér um tuttugu og fimm
manns frá félögum úti á landi og í
heildina um fjörutíu manns í
tengslum við fundinn. Það eru tíu ár
síðan formannafundur var haldinn í
maður Hraunbúða.
Eyjum.“ sagði Valmundur, formaður
Jötuns að endingu.
firmakeppni TV
MAGNÚS KRISTINSSON, útgerðarmaður fór í fótspor sinna manna
og brá sér á námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna fyrir skömmu.
Það stóð í heila viku og voru þeir að frá klukkan átta til fjögur á
daginn. „Við æfðum m.a. björgun úr sjó, reykköfun sem reynir mjög
á þerk og hæfni manna. En þetta var mjög gaman og margt að segja
frá,“ sagði Magnús.
Safnahelgi?
Upplestur
á safni og í
Herjólfsbæ
Rithöfundar stíga á stokk og lesa
upp úr verkum sínum í lengslum
við Nótt safnanna/Safnahelgi á
Suðurlandi 5 til 8. nóvember.
I Safnahúsi kynna rithöfundar
bækur sínar á laugardag og á
Skjalasafninu verða fundargerð-
arbækur og gögn frá Kvenfé-
laginu Líkn til sýnis.
Viktor Arnar Ingólfsson les upp
úr bókinni Sólstjakar og Jón
Kalman Stefánsson úr Harmi
englanna. Þá les Ottar Norðfjörð
upp úr Paradísarborginni þannig
að nú ættu áhugamenn um bækur
að taka frá tíma því upplesturinn
hefst klukkan 14.00.
Um kvöldið verður áfram lesið í
Herjólfsbæ. Þá kynnir Magnús
Eiríksson tónlistarmaður bók
sína, Reyndu aftur og Jóna
Ingibjörg Jónsdóttir kynnir og
ræðir nýja bók sína Kynlíf - heil-
brigði, ást og erótík.
Rafmagnstruflanir:
Flug fugla á
raflínur líkleg
skýring
Undanfamar vikur hefur verið
töluvert um truflanir á rafmagni í
Eyjum.
Ekki er fullskoðað hverjar
ástæður þessara truflana em, en
einhverjar truflanir má rekja til
flugs fugla á Vikurlínu, 33kV
dreifilínu sem liggur milli
dreifistöðvar í Rimakoti og Víkur
í Mýrdal og orsakar það blikk í
Eyjum.
Af þessu eru töluverð óþægindi,
einnig höfum við heyrt að fólk
haft orðið fyrir tjóni á rafmagns-
tækjum. HS Veitur hafa verið í
sambandi við Landsnet vegna
þessara truflana og þessa dagana
standa yfir gæðamælingar á raf-
magninu til Eyja. Niðurstaða úr
þeim ætti að liggja fyrir í byrjun
nóvember og vonum við að unnt
verði að finna varanlega lausn á
þessu máli t samvinnu við Lands-
net sem allra fyrst.
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480378-0545) - Vestmannaeyjuni. Ttitetjóri: Ómar (íaitlarsson.
Blaðamenn: (luðbjötg Sigurgeimlóttir og .lúlíns Ingason. íþróttir: Ellcrt Seheving.
Ábyrgdanuenn: Ómar (iarðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyja]irent. Vestmannaeyjum. Aðsetnr ritstjómar: Stranðvegi 47.
Símar: 481 1800 & 481 8310. Myndriti: 481-135)3. Netfang/rafpóstur: fivttir@eyjafrettir.is.
Veffang: httji/Avww.eyjafrotti r.is
FRÉTTER koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt i áskrift og einnig í lausasölu á Kletti,
TMstínmn, Tnppnum, Vöruval, Herjólfi, Plughafnarvei-sluninni, Kninunni, ísjakaiiuni,
verslun 11-11 og Skýlinu i Eriðarhöfn.. ERÉTi'lR eru prentaðar i '4000 eintökum.
ERÉTi'IR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun,
notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getíð.