Fréttir - Eyjafréttir - 29.10.2009, Síða 19
Fréttir / Fimmtudagur 29. október 2009
19
Körfubolti: Nenad Musikic, nýr þjálfari ÍBV
Eigum að draga krakkana frá
tölvunum og inn í íþróttasalina
METNAÐARFULLUR. Nýi þjálfarinn Nenad Musikic frá
Svartfjallalandi er mjög metnaðarfullur og segir sinn stærsta sigur
þegar ungir leikmenn spila fyrir meistaraflokk síns félags.
Körfuknattleiksfélag ÍBV hefur
ráðið til sín 43 ára þjálfara sem
kemur til með að sjá um alla
flokka félagsins nema þá allra
yngstu. Nenad Musikic heitir
maðurinn en hann kemur frá
Svartfjallalandi. Hann hefur
áður þjálfað á Islandi en veturinn
2007-2008 þjálfaði hann yngri
flokka hjá Breiðabliki. Mestu
reynsluna hefur hann frá sínu
heimalandi, fyrst Júgóslavíu sem
liðaðist í sundur, svo Serbíu og
Svartfjallalandi sem urðu svo að
sitt hvoru ríkinu þannig að síðast
þjálfaði hann í Svartfjallalandi.
Júlíus Ingason settist niður með
Nenad og fræddist aðeins um
manninn.
„Mér líður eins og ég hafi stundað
körfubolta frá því að ég fæddist en
ég byrjaði á þrettánda ári og spilaði
upp í gegnum alla yngri flokkana
áður en ég sinnti herskyldu í 15
mánuði. Stuttu eftir að ég sneri
aftur fótbrotnaði ég illa sem varð til
þess að ég þurfti að leggja skóna á
hilluna. Þetta var mjög erfiður tími
enda var ég í níu mánuði í gipsi og
ég hef aldrei náð mér á strik á ný,“
sagði Nenad um feril sinn inni á
vellinum.
Meiösli komu honum í þjálfun
En þótt hann gæti ekki spilað sjálfur
vantaði ekki áhugann og faðir hans,
þekkti þjálfara félagsins og hann
sagði að það væru tvær leiðir fyrir
hann að svala körfuboltaþorstanum.
„Önnur leiðin væri að fara á
ritaraborðið, verða svo aðstoðar-
dómari, aðaldómari, setjast í stjórn
og vinna sig þannig upp. Hin leiðin
væri að verða þjálfari og um leið og
hann sagði Jretta, þá ákvað ég að feta
þá leið. Eg byrjaði því ungur að
þjálfa og þótt ég sé ekki mjög
gamall, þá hef ég meiri reynslu en
margir mér eldri menn.“
Nenad byrjaði eins og flestir að
þjálfa yngri flokka 1988 og aðeins
tvéimur árum síðar var hann orðinn
aðstoðarþjálfari í efstu deild í
júgóslavnesku deildinni, sem þá var
ein af sterkustu deildum í heimi.
„Ég var þá yngsti aðstoðarþjálfari í
deildinni frá upphafi, aðeins 24 ára
gamall og þarna fékk ég mikla
reynslu sem ég leitaðist eftir. Ég
hafði lært allt sem ég fann í bókum
þannig að mig skorti bara reynslu.
Ég var aðstoðarþjálfari í tvö tímabil
en eftir það flutti ég mig yfir í
akademíu hjá félaginu þar sem
hugað var að þróun framtíðar körfu-
boltamanna. En á þessum tíma voru
umrótatímar í Júgóslavíu. félagið
varð gjaldþrota og ég missti vinn-
una. A sama tíma var þáverandi
eiginkona mín ólétt og við misstum
íbúðina sem fylgdi starfinu. En
aðeins nokkrum dögum síðar fékk
ég nokkur tilboð, m.a. frá Red Star í
Belgrad, sem var næststærsta félag
landsins. Belgrad var hins vegar of
langt í burtu og ég ákvað því að taka
þátt í uppbyggingu á nýju félagi þar
sem allir fengu að koma og æfa,
sama hver fjárhagsleg staða foréldra
var og hlutimir þróuðust þannig að
ég varð forseti félagsins.“
Vil planta fræi og sjá það
blómstra
Nenad var þannig orðinn allt í öllu í
nýju félagi og hlutimir gengu vel.
Tveimur árum síðar var litla félagið
orðið dótturfélag úrvalsdeildarliðs
sem fjármagnaði um leið starfsem-
ina. En hlutirnir breyttust enn og
aftur, úrvalsdeildarliðið missti sinn
stærsta stuðningsaðila og fór á
hausinn. Nenad var því aftur
kominn á byrjunarreit.
„Þetta var árið á árunum 1996 til
2002 en nokkrir af þeim sem ég
þjálfaði hafa náð mjög langt. Tveir
Íeika í úrvalsdeild og spila með
serbneska landsliðinu, einn er í
Bandaríkjunum í háskólakörfubolta
og einn leikur í efstu deild í
Svartfjallalandi. En eftir að félagið
fór á hausinn var ég 36 ára og mig
langaði að komast að í öðru landi,
sérstaklega í Norður-Evrópu. Ég vil
komast í þjálfarastöðu hjá félagi
sem er að byggja upp. Ef mér byðist
að þjálfa Barcelona þá myndi ég
segja nei takk. Astæðan er sú að þar
hafa margir þjálfarar unnið marga
titla. Ég yrði bara eitt nafn á þeim
lista og það þætti ekki mikið afrek.
Ég vil frekar planta fræi og sjá tréð
vaxa í staðinn fyrir að taka við full-
vöxnu tréi og tína bara ávextina af
því.“
Nenad gekk ekki vel að koma sér á
framfæri þar sem umboðsmenn sáu
ekki gróðavon í þjálfara sem vildi
bara þjálfa hjá litlum félögum.
Hann sótti mót og reyndi að koma
sér að og að lokum hitti hann á
íslending. „Ég fór á mót í Eistlandi
og þótt ísland hafi ekki verið að
spila þar þá var fulltrúi FIBA frá
Islandi, Pétur Rafn Sigurðsson.
Hann var hjá Breiðabliki sem var að
leita sér að þjálfara. Samningavið-
ræður tóku skamman tíma og stuttu
síðar var ég kominn til Islands."
Stærsti sigurinn er að búa
til leikmenn
Honum gekk vel í Breiðabliki,
félaginu gekk betur en oft áður og
tveir fiokkar spiluðu til úrslita í
bikarkeppninni. Hans stærsti sigur,
að hans mati, var samt að skila
einum leikmanni upp í meistara-
flokk. „Það er mitt markmið, að búa
til góða körfuboltamenn. Hjalti Már
Ólafsson spilar nú með meistara-
flokki og stendur sig vel en hann var
í 10. flokki þegar ég var hjá þeim.
Hugmyndin var að ég yrði áfram en
þá tók við óvissa hjá félaginu með
fjármögnun þannig að þeir sáu ekki
fram á að geta haldið mér. Þá fór ég
aftur til Svartfjallalands, hélt úti ein-
staklingsæfingum fyrir unga körfu-
boltamenn en leitaðist eftir því að
komast aftur að einhvers staðar á
Norðurlöndunum. f sumar fékk ég
nokkur tilboð en mér leist best á
IBV sem hentaði mínum metnaði.
Hér er ungt félag með unga og
metnaðarfulla stjórn, menn sem
þekkja körfubolta og vilja byggja
félagið rétt upp. Okkar markmið er
að færa IBV upp um eitt stig,
samningaviðræður við félagið
gengu mjög vel og hingað er ég
kominn.“
Hefði uiljað koma fyrr til ÍBV
Nú er tímabilið farið afstað, er ekki
vont að koma svona seint til leiks?
„Mér finnst það og ég hefði gjarnan
vilja koma fyrr. En vandamál eru
ekki til, heldur eru þetta bara
verkefni eða ásk’orun sem ég vil
sigrast á. Og ég tel að hér séu
möguleikar til að ná langt. Ef
Njarðvík, sem er bær með 3300
íbúa, getur haldið úti úrvalsdeildar-
liði í öll þessi ár, af hverju ekki
Vestmannaeyjar? Ég veit að fótbolti
er íþrótt númer eitt og handbolti er
mjög vinsæl íþrótt líka. En íþróttir
eiga að styðja hver við aðra í
gegnum yngri flokkana, þótt ég vilji
auðvitað gera körfuboltann að íþrótt
númer eitt,“ sagði Nenad hlæjandi.
Hann bætir því við að í sínu
heimalandi byrji krakkar ekki að
æfa keppnisíþróttir fyrr en þau eru
orðin tíu ára eða eldri. „Við reynum
að fá krakka til að stunda frjálsar
íþróttir, fimleika og sund. í frjálsum
læra þau að hlaupa þannig að þegar
þau koma í körfubolta eða aðrar
keppnisíþróttir, þá þarf ekki að byrja
á því að kenna þeim að hlaupa. I
fimleikum læra þau liðleika og
öðlast stökkkraft og í sundi æfa þau
alla vöðva í lílcamanum. A þessum
árum eiga krakkar að njóta þess að
leika sér í íþróttum en upp frá tíu
eða ellefu ára aldri má fara leggja
meiri áherslu á keppnisíþróttirnar.
Markmið okkar sem höldum úti
æfingum er sameiginlegt og það er
að draga krakkana út. frá tölvunum
og í hreyfingu.“
Nenad segist hafa vitað talsvert um
landið og körfubolta hér, áður en
hann kom fyrst haustið 2007.
„Fjórir fyrrum lærisveinar mínir
voru að spila hér og ég fékk
upplýsingar hjá þeim. Þannig að
það var í raun og veru ekkert sem
kom mér á óvart, ekki einu sinni
veðrið,“ svarar Nenad hlæjandi. „Ef
það var eitthvað sem ég átti erfitt
með að venjast þá eru það björtu
sumarnæturnar. Én það var lfka það
eina.“
Hvað sérðu fyrir þér að vera lengi
hjá ÍBV?
„Það er í raun og veru ekki undir
mér komið. Ef menn kunna að meta
það sem ég hef fram að færa og mér
líkar við það sem hér er í boði, þá sé
ég ekkert því til fyrirstöðu að verá
hér í lengri tíma. Það eina sem ég
vil er að skapa bömunum mínum
tveimur tækifæri til að mennta sig.
Háskólagráða frá Svartfjallalandi
hefur lítið vægi í Evrópu en
háskólagráða frá Norðurlöndunum
er eftirsótt. Ef ég get unnið einhvers
staðar á Norðurlöndunum og gefið
börnunum mínum tækifæri til að
koma til mín og mennta sig, þá er
mínum markmiðum náð í lífinu.
Helst vil ég festa mig í sessi í stað
þess að vera að búa í ferðatösku.
Minn draumur er að ÍBV spili eftir
nokkur ár gegn KR í efstu deild
karla og yngsti leikmaður liðsins er
núna leikmaður í 10. flokki hjá
félaginu. Ég vil komast með meist-
araflokk í úrslit og helst að komast
með liðið upp í 1. deild. Varðandi
yngri flokkana þá græt ég það ekki
ef við vinnum titla en meginmark-
miðið er að búa til góða leikmenn,"
sagði Nenad og skoraði að lokum á
krakka í Eyjum að prófa körfubolta.
íþróttir
Skyldusigur
Karlalið IBV í handbolta vann
annan leik sinn í röð um síðustu
helgi þegar liðið lagði Fjölni að
velli á sannfærandi máta, 26:40 en
staðan í hálfleik var 11:23. Flestir
eru á því að Fjölnir tefli fram slak-
asta liðinu í deildinni og því í raun
um skylduverkefni að ræða hjá
IBV. En Eyjamenn hafa nú unnið
tvo af þremur fyrstu leikjum
sínum og virðast koma sterkir til
leiks. Sigurður Bragason var
markahæstur í leiknum gegn
Fjölni með níu mörk en þeir
Grétar Þór Eyþórsson, Ingólfur
Jóhannesson og Amar Pétursson
skoruðu allir fimm mörk. Nú
tekur hins vegar við tveggja vikna
hlé hjá ÍBV í deildinni en næsti
leikur ÍBV er laugardaginn 7.
nóvember þegar ÍBV sækir
Víkinga heim.
Töpuðu fyrir
Laugdælum
Körfuknattleikslið ÍBV tapaði í
fyrsta leik sínum gegn Laug-
dælum í Eyjum síðasta laugardag.
Eyjamenn voru að leika sinn
fyrsta leik í vetur og augljóst á
upphafsmínútunum að leikæfing-
in var í algjöru lágmarki. Enda
var staðan eftir fyrsta leikhluta
12:28 og 28:43 í hálfleik.
Eyjamenn neituðu þó að gefast
upp og Albert Sævarsson, knatt-
spyrnumarkvörður sem leikur
með ÍBV í vetur í körfunni, jafn-
aði metin 74:74 þegar rúmar tvær
mínútur voru eftir. En gestirnir
tóku þá góðan sprett og unnu
79:86. Næsti leikur liðsins er á
laugardaginn þegar IBV tekur á
móti B-liði Grindavíkur í
bikarkeppninni en þáð verður
jafnframt fyrsti leikurinn sem
Nenad Musikic, nýr þjálfari
liðsins, stýrir.
Andri áfram
og Tryggvi og
Asgeir koma
Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV,
ákvað að halda tryggð við liðið
og skrifaði undir nýjan þriggja
ára samning við ÍBV. Andri var
einn lykilmanna í sumar og var
með tilboð frá Grindavík í
vasanum en ákvað að vera áfram
hjá ÍBV. Þá ákvað Tryggvi
Guðmundsson, týndi sonurinn í
knattspyrnunni, að snúa aftur
heim og leika með ÍBV næsta
sumar. Tryggvi, sem er 35 ára,
gerði þriggja ára samning við
IBV og er mikill happafengur
fyrir hið unga lið. Asgeir Aron
Asgeirsson, er sonur Asgeirs
Sigurvinssonar, besta leikmanns
ÍBV og íslands frá upphafi.
Ásgeir á því ættir að rekja til
Eyja og er góð viðbót við leik-
mannahópinn. Auk þess hafa
Eyjamenn leitað til Gunnars
Heiðars Þorvaldssonar að snúa
aftur til ÍBV. Þá er Atli Jóhanns-
son laus frá KR og orðrómur
uppi að nafni hans Heimisson
vilji koma aftur til ÍBV.
Kristín áfram
Kristín Ema Sigurlásdóttir hefur
samþykkt að spila áfram með ÍBV
en þá má segja að lið ÍBV verði
nánast óbreytt frá því í sumar.
Kristín Erna var ein af lykilmönn-
um liðsins og var valin besti leik-
maður liðsins á lokahófi ÍBV.
Hún skoraði 17 mörk í 16 leikjum
Islandsmótsins í sumar en vitað
var af áhuga úrvalsdeildarliða að
fá hana í sínar raðir.
Gáfu körfubolta í GRV
Síðustu daga hafa foiTáðamenn
Körfuknattleiksfélags ÍBV farið
á milli bekkja í Grunnskóla
Vestmannaeyja og gefið öllum
bekkjunum körfubolta. Um leið
hafa þeir látið krakkana fá æf-
ingatöflur fyrir veturinn en
uppátækið varð til þess að yngstu
iðkendum körfuboltans hefur
fjölgað talsvert. Ljósmyndari
Frétta rakst á þá Baldvin Johnsen
og Sigurjón Lárusson úr stjórn
ÍBV þar sem þeir afhentu 1. MK
boltann sinn og eins og sjá má
voru krakkarnir mjög ánægð með
heimsóknina.