Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Qupperneq 1
Viðgerðir
og smurstöð
-Sími 481 3235
Réttingar
og sprautun
Bílaverkstæði - Flötum 20 - Sími 481 1535
38. árg. I 18. tbl. I Vestmannaeyjum 5. maí 2011 I Verð kr. 300 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is
GLEÐI í FYRSTA LEIK. Þeir fögnuðu innilega á Hólnum þeir Jósúa Steinar Óskarsson og Stefán Jónsson eftir að Tryggvi Guðmundsson hafði
tryggt ÍBV sigur á Fram í fyrsta leik fslandsmótsins. Næsti leikur ÍBV er á laugardaginn þegar strákarnir taka á móti Fylki.
Landeyjahöfn aftur opin
- Verið lokuð í 16 vikur - Siglt eftir sjávarföllum í dag - Perlan nýttist illa í hafnarmynninu
Landeyjahöfn var opnuð aftur í gær,
miðvikudag, í fyrsta sinn í sléttar 16
vikur. Síðast sigldi Herjólfur í
Landeyjahöfn miðvikudaginn 12.
janúar. Þótt ekki sé búið að ná
fullri dýpt í og við höfnina er þungu
fargi létt af Eyjamönnum enda hafa
samgöngur eftir áramót færst ára-
tugi aftur í tímann með tilheyrandi
afleiðingum. Samkvæmt upplýs-
ingum sem fengust hjá Siglinga-
stofnun verður dýpkunarfram-
kvæmdum haldið áfram þangað til
fullri dýpt verður náð.
Fyrsta ferðin í Landeyjahöfn var
farin klukkan 16:00 í gær en skip-
stjóri í ferðinni var Ivar Gunnlaugs-
son. Hann sagði í samtali við Fréttir
að siglingin hefði gengið vel. „Þetta
gekk allt saman alveg ljómandi vel
og farþegar streyma nú frá borði.
Það er ekki að sjá annað en að
höfnin sé opin við þessar aðstæður.
Hins vegar hangir það auðvitað
saman við ölduhæð, vindstyrk og
strauma hér við höfnina. Ef bætir
mikið í vind þá er erfitt að sigla hér
inn,“ sagði Ivar en í dag, fimmtudag
er spáð svipuðu veðri og í gær en
heldur á að bæta í á morgun, föstu-
dag.
Mikið var í húfi að opna höfnina í
gær því von var á eitt þúsund kepp-
endum og fylgdarliði á blakmót
öldunga, sem haldið er í Eyjum
þessa dagana. Herjólfur má flytja
400 farþega og hefði því aðeins
getað flutt 800 til Eyja á
miðvikudag, í stað 1200 þar sem
Landeyjahöfn var opnuð. Fullt var
báðar ferðimar til Eyja frá Land-
eyjahöfn og svo gott sem fullt í
morgunferðinni frá Þorlákshöfn.
Sæta þarf lagi vegna sjávarfalla en
ákveðið var að sigla eina morgun-
ferð í dag, fimmtudag og tvær ferðir
síðdegis.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem fengust hjá Siglingastofnun
hefur dýpkun ekki gengið eins vel
og vonir stóðu til. Aðfaranótt mið-
vikudags þurfti Skandia frá að
hverfa í fjórar klukkustundir en tæki
um borð biluðu vegna álags við
dýpkun. Aðstæður hafa verið
erfiðar síðustu sólarhringa^ vindur
og talsverður straumur. Ákveðið
hefur að senda Periuna frá Land-
eyjahöfn þar sem skipið gat ekki
athafnað sig í hafnarmynninu. Ekki
er gert ráð fyrir því að Perlan hefji
aftur dýpkun í Landeyjahöfn á næst-
unni. Vandamálið er sterkur vindur
og straumur sem gerir Skandia erfitt
fyrir en ölduhæð hefur verið í lagi
síðustu daga. Þó bendir allt til þess
að Skandia þurfi frá að hverfa í dag,
fimmtudag ef veðurspáin gengur
eftir.
Gert ráð fyrir Landeyjahöfn
ÍBV og blakdeild Þróttar í Reykja-
vík hafa umsjón með blakmótinu
sem haldið er um helgina. Tryggvi
Már Sæmundsson, framkvæmda-
stjóri ÍBV, sagði að í öllu skipulagi
hefði verið gert ráð fyrir að Land-
eyjahöfn yrði komin í gagnið þegar
mótið var ákveðið og enginn reikn-
að með að hún yrði lokuð ári seinna.
Skipuleggjendur komu hingað á
þriðjudag og við eigum von á 1000
manns og meirihlutinn ætlaði að
koma með Herjólfi úr Landeyja-
höfn. Einhverjir eiga bókað með
flugi í dag [miðvikudagj en meiri-
hlutinn ætlaði að koma með Herjólfi
um Landeyjahöfn," sagði Tryggvi.
Ummælin á borgara-
fundinum:
Tilbúinn
að vinna
með Stíga-
mótum
- með því að styrkja for-
varnir og vöktun á
hátíðarsvæðum almennt,
segir Páll Scheving
Ummæli Páls Scheving, formanns
þjóðhátíðarnefndar, á opnum
borgarafundi í Höllinni í síðustu
viku hafa vakið landsathygli.
Harðar umræður hafa farið fram á
spjallsíðum, facebook og í
fjölmiðlum og virðist að mestu
vera á einn veg. ítrustu kröfur eru
að Páll segi af sér og jafnvel að
þjóðhátíðin verði lögð niður.
Páll svaraði með yfirlýsingu fyrir
helgi en þar segir hann að
Stígamót vinni bæði þarft og gott
starf. Hann segir jafnframt að
ummæli hans á borgarafundinum
eigi rætur í aðkomu samtakanna
að þjóðhátíð fyrir nokkru síðan.
Þar vísar Páll til þess þegar
Stígamót voru með fullyrðingar
um fjölda afbrota sem ekki
stóðust og sögðu fyrir hátíðina að
hópur nauðgara væri á leið á
hátíðina. Eftir það var samstarf-
inu slitið en upprifjun á málinu er
á blaðsíðu sex í Fréttum í dag.
í yfirlýsingunni kemur Páll
einnig inn á að á þjóðhátíð sé
öflug viðbragðsáætlun við kyn-
ferðisbrotum þar sem fagfólk
fylgir fómarlömbum frá Herjólfs-
dal og jafnvel inn á Landspítala ef
því er að skipta. Auk þess sé
miklum fjármunum varið í
öryggisþætti hátíðarinnar til að
koma í veg fyrir brot sem þessi.
„Ég væri reiðubúinn að vinna
með Stígamótum að því að
styrkja forvarnir og vöktun á
hátíðarsvæðum almennt. Kyn-
ferðisbrot er óhugnaður, fólsku-
leg árás sem skilur eftir djúpt sár.
Þolendur eiga alla mína samúð.
Hafi ummæli mín á fundinum
meitt eða sært, biðst ég afsökunar.
Það var ekki tilgangurinn," segir
Páll.
Nánar á blaðsíðu 6.
VIÐ ERUM ÞJÓNUSTUAÐILI
TOYOTA í EYJUM