Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011
Sjaldgæfur nornakrabbi hefur
skelskipti á Fiskasafninu
í Sæheimum - Fiskasafni eru
núna til sýnis tvö eintök af
krabba, sem er afar sjaldgæfur
við Islandsstrendur. Um er að
ræða nornakrabba (Paromola
cuvieri) sem einnig hefur verið
kallaður langfótungur.
Fyrsti krabbi þessarar tegundar kom
á Fiskasafnið árið 1967 og hin
síðari ár hafa borist einstaka eintök
á safnið. En árið 2010 var komið
með fjóra nornakrabba á safnið.
Hugsanlega er tegundin að verða
algengari í sjónum við ísland vegna
hlýnunar sjávar.
Nornakrabbar, eins og önnur
krabbadýr, stækka með því að hafa
skelskipti nokkrum sinnum á æv-
inni. Þá losa þeir sig við gömlu
skelina og belgja sig út þangað til
ný skel tekur að myndast. Meðan á
þessu stendur er líkami þeirra
mjúkur og dýrin mjög berskjölduð.
Margir umhverfisþættir hafa áhrif á
það hversu oft krabbadýr hafa skel-
skipti og má þar nefna fæðuframboð
og hitastig sjávarins.
Núna um páskana hafði annar
nornakrabbinn á safninu skelskipti
og við fyrstu sýn virtist sem krabb-
arnir væru orðnir þrír en enginn
kannaðist við að hafa tekið við
nýjum nornakrabba. Við nánari
athugun kom í ljós að einn af hinum
meintu kröbbum var tóm skel.
Nornakrabbar eru nokkuð sér-
kennilegir útlits. Eins og nafnið
langfótungur gefur til kynna eru
fætur þeirra nokkuð langir og
virðast enn lengri vegna þess hve
grannir þeir eru. Á skildinum og
fótunum eru smáir gaddar og á milli
augnanna eru þrír stærri gaddar.
Áberandi einkenni langfótungs er að
aftasta fótaparið er veigalítið og
klærnar á enda þeirra krepptar inn á
við. Þetta fótapar situr einnig ofar
og nær skildinum en aðrir fætur
krabbans. Það var fyrir nokkrum
árum sem uppgötvaðist að krabbinn
notar þessa fætur til að halda
pétursskipum, svömpum eða öðrum
flötum hlutum eins og hlífiskildi
yfir búknum. Þetta atferli sást fyrst á
Fiska- og náttúrugripasafni Vest-
mannaeyja og var það Kristján
Egilsson, safnvörður, sem tók eftir
þessu sérkennilega atferli kabbanna.
NORNAKRABBINN er sérkenni-
legur í útliti.
Leikskólakennarar mótmæla uppsögn
- Telja að skammsýni ráði og vilja að bæjaryfirvöld dragi til baka uppsögn á leikskólafulltrúa
Leikskólakennarar í Vestmanna-
eyjum hafa sent frá sér ályktun
þar sem þeir harma þá ákvörðun
fræðslu og menningarráðs að fella
niður starf leikskólafulltrúa.
„Leikskólinn er fyrsta skólastigið og
þarf undirstaðan að vera traust.
Starf leikskólafulltrúa hefur verið
bakhjarl leikskólastarfsfólks og
foreldra leikskólabama. Grein leik-
skólafulltrúa í Fréttum (14. apríl
2011) sýnir að samskipti og fræðsla
til foreldra er mjög mikilvæg. Áður
hefur staða leikskólafulltrúa verið
lögð niður og kom þá í ljós að
tengilið vantaði milli leikskólanna
og bæjaryftrvalda.
Við teljum að hér ráði skammsýni
og skorum á yfirvöld að draga upp-
sögn leikskólafulltrúa til baka.
Leikskólafulltrúi hefur unnið gott
og faglegt starf sem við metum mik-
ils. Fyrir utan daglegt starf hefur
hún haldið utan um fjölbreytta þætti
sem snúa að leikskólanum, svo sem
námskeið, komu sérfræðinga til
Eyja, nemendavemdarfundi, sumar-
hátíð leikskólanna, leikskólastjóra-
fundi, upplýsingar um þróun í leik-
skólamálum annars staðar á landinu
ásamt mjög mörgu öðru,“ segir í
ályktun leikskólakennara.
Fræðslu- og menningarráð tók
ályktunina fyrir á síðasta fundi
sínum. Ráðið þakkar bréfið en
bendir bréfritumm á að ákvörðun
ráðsins um að fella starf leikskóla-
fulltrúa niður er tekin að vel ígrund-
uðu máli. Ráðið skilur vel áhyggjur
leikskólakennara vegna þessara
breytinga en telur að faglegt starf á
leikskóla sé áfram tryggt með hæfu
Leikskólinn Sóli er annar tveggja leikskóla í Vestmannaeyjaum. og vel menntuðu starfsfólki.
Sumarstúlku
keppnin 2011
Sumarstúlkukeppnin 2011 verður
haldin 28. maí næstkomandi í
Höllinni. Alls taka fjórtán Eyja-
stúlkur þátt í keppninni í ár, allar
fæddar 1993 en Hjördís Elsa
Guðlaugsdóttir er sem fyrr fram-
kvæmdastjóri keppninnar sem nú er
haldin í 24. sinn. Stúlkumar fjórtán
má sjá á myndinni hér til hliðar.
Þær eru, í aftari röð frá vinstri:
Bylgja Dís Birkisdóttir, Sandra Dís
Pálsdóttir, Arnþrúður Dís Guð-
mundsdóttir, Elsa Lind Austfjörð
Sara Rós Einarsdóttir, Rakel
Hlynsdóttir, Dóra Kristín Guðjóns-
dóttir, Arna Hlín Ástþórsdóttir og
Sóley Guðmundsdóttir. I fremri röð
frá vinstri: Halla Björk Jónsdóttir,
Kristín Sólveig Kormáksdóttir, Rósa
Sólveig Sigurðardóttir, Guðný Ósk
Guðmundsdóttir og María Rós
Sigurbjömsdóttir.
-<ért i L
Umhverfis og
framkvæmdaráð:
Eftirlit og
endurnýjun
björgunar-
tækja
Ólafur Þór Snorrason, fram-
kvæmdastjóri umhverfis og fram-
kvæmdasviðs, gerði grein fyrir
viðræðum sínum við Björgunar-
félag Vestmannaeyja vegna eftir-
lits og endurnýjunar björgunar-
tækja á Heimaey. Fyrir lá kostn-
aðaráætlun frá Björgunarfélagi
Vestmannaeyja vegna endurnýj-
unar og eftirlits björgunartækja
við Kaplagjótu, Klauf, Brimurð,
Stafsnes, Skans og Skansfjöru.
Ráðið áréttar mikilvægi þess að
björgunarbúnaður sé í góðu lagi,
hvar sem hann er staðsettur á
Heimaey og fól framkvæmda-
stjóra að gera samning við
Björgunarfélag Vestmannaeyja
um kaup og uppsetningu á búnaði.
Áætlaður heildarkostnaður er
u.þ.b. 300 til 350 þúsund krónur.
Bæjarstjórn um
Landeyjahöfn:
Vilja að
lokið verði
við fram-
kvæmdina
Bæjarstjóm Vestmannaeyja fjall-
aði um framtíðarsamgöngur Vest-
mannaeyja á fundi sl. fimmtudag.
Þar lýsti stjómin yfir þungum
áhyggjum af stöðu mála í Land-
eyjahöfn og því fjárhagslega tjóni
sem lokun hafnarinnar í vetur
hefur valdið samfélaginu í Vest-
mannaeyjum. í bókun bæjar-
stjórnar segir að öllum megi vera
ljóst að jafnvel þótt höfnin verði
opnuð á næstu dögum muni hún
lokast á ný næsta haust verði ekki
gripið til ráðstafana.
Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum
hafa, allt frá því að byrjað var að
ræða hafnarframkvæmd við
Bakkafjöru, ítrekað bent á að
stuðningur við framkvæmdina
væri háður því að frátafir á ársvísu
séu ekki umfram það sem verið
hefur í siglingum til Þorláks-
hafnar. Ábendingum þar að lút-
andi hefur ætíð verið svarað af
hálfu samgönguyfirvalda með því
að Herjólfur geti siglt um höfnina
í 3,7 metra ölduhæð og frátafir
verði því ekki meiri en 5 til 10%,“
segir í ályktun bæjarstjórnar sem
vísar ábyrgð á núverandi ástandi
alfarið til samgönguyfirvalda og
krefst þess að tafarlaust verði allra
leiða leitað til að tryggja að
Landeyjahöfn veiti þá þjónustu
sem henni er ætlað.
Þá minnir bæjarstjómin á að enn
eru til 800 milljónir þar til kostn-
aðaráætlun við framkvæmdina er
náð og krefst svara frá samgöngu-
yfirvöldum um til hvaða úrræða
verði gripið til að ljúka fram-
kvæmdum við Landeyjahöfn þan-
nig að frátafir á ársvísu verði ekki
meiri en 5 til 10%. Bæjarstjóm
lítur svo á að fyrr sé Landeyjahöfn
ekki fullbyggð.
ÍJtgefandi: Eyjasýn ehf. 480378-0549 - Vostninnnaeyjuni. EitBtjóri: Ómar Garðarsson.
Blaðamenn: Guðbjörg Signrgeirsdóttir og Július Ingason. Ábyrgðarmenn: ÓmarGarðars-
son & Gísli Valtjsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritBtjómar: Strandvegi 47.
Síinar: 481 lijtili & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur. frettir@eyjttfrettir.is.
Veffang: http//www.eyjafrettir. is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lausasölu á Kletti,
TYistinum, Toppnum, Vöruvnl, Ilerjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni, Isjakannm,
verslun 11-ll og Skýlinu i Friðarhöfn.. FRÉTTER eru prentadar i 2000 eintökum.
FRÉTTTReru aðilarað Samtökum bœjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprenhm, hljóðritun,
notkun ljósmynda og annað er óhoimilt nema heimilda sé getið.
í
+