Fréttir - Eyjafréttir - 05.05.2011, Qupperneq 17
Fréttir / Fimmtudagur 5. maí 2011
17
Sýning Hrafnhildar Ingu Sigurðardóttur í Einarsstofu í Safnahúsinu:
Sýningin ákall um að Ægir
konungur fari að slíðra sverðin
Það er vel þess virði að kíkja við á
Einarsstofu í anddyri Safna-
hússins þar sem Hrafnhildur Inga
Sigurðardóttir er með máiverka-
sýninguna Agjöf. A sýningunni
eru olíumálverk, einkum sjávar-
myndir af brimi, úfnum sjó og
öldugangi. Sýningin stendur til 8.
maí og er opin á sama tíma og
Bókasafnið en auk þess á laugar-
dögum frá kl. 11.00 til 16.00 og
sunnudögum frá kl. 12.00 til
16.00.
Hrafnhildur Inga, sem er fædd að
Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð og
ólst þar upp, hefur haldið fjölda
einkasýninga og tekið þátt í sam-
sýningum hér og í útlöndum.
Hún stundaði myndlistamám við
Myndlistaskóla Reykjavíkur 1978
pg 1979, Myndlista og handíðaskóla
íslands, nú Listaháskóla íslands,
1980-1984 og lauk þaðan prófi í
grafískri hönnun. Arin 1999 og
2000 bætti hún við sig námi í
olíumálun í Myndlistarskóla Kópa-
vogs.
Hrafnhildur Inga er meðlimur í
SÍM, Sambandi íslenskra myndlist-
armanna, Grósku, Félagi myndlist-
armanna í Garðabæ og Álftanesi og
hún sat í stjóm FIT, Félags íslenskra
teiknara.
Hún dvaldi í listamannafbúð
Skandinaviska Foreningen f Róm
2004 og hefur dvalið í lista og fræði-
Hrafnhildur Inga.
mannsfbúðinni á Skriðuklaustri
nokkrum sinnum.
Á heimasíðu segir að Hrafnhildur
Inga máli myndir sem lýsa skýjafari,
veðurfari og sjólagi. Hún sé mikið
náttúmbam og sæki myndefnið oft á
sínar heimaslóðir í Fljótshlíðinni þar
sem hún horfir eftir endilangri
suðurströndinni þar sem skýin
Fjölmargir gestir voru við opnun sýningarinnar í Einarsstofu sem er í anddyri Safnahússins.
hrannast upp og velta sér eftir sjón-
deildarhringnum og eru aldrei
andartak eins. Oft er sem himinn og
jörð renni saman og lokist yfir höfði
manns. Þá birtist sólin augnablik,
andartaks ljósbrot. Það er meðal
annars það sem hún fangar í mynd-
um sínum.
Allt þetta þekkja Eyjamenn og vita
að oft er ekki ljóst hvar hafið endar
og himinninn tekur við. Þetta kemur
mjög sterkt fram í myndum Hrafn-
hildar sem em í senn fallegar og
heillandi því henni tekst að fanga
það þegar hafið tekst á við ljósið.
Það er heldur ekki langt úr Fljóts-
hlíðinni til Eyja en það getur líka
verið svo óskaplega langt eins og
Eyjamenn hafa mátt upplifa í vetur.
Hafið er brúin á milli og má líta á
sýninguna sem ákall um að nú fari
Ægir konungur að slíðra sverðin og
eðlilegar samgöngur verði milli
Vestmannaeyja og okkar ágætu
nágranna í Fljótshlíðinni og annars
staðar á Suðurlandi.
ÓG.
Fríða Rögnvaldsdóttir, myndlistarkona úr Reykjanesbæ, opnar sýningu í Akóges
Notar múrblöndu á striga í þrívíðar myndir
Fríða Rögnvaldsdóttir, myndlist-
arkona frá Reykjanesbæ, verður
með sýningu í Akóges um helgina.
Fríða hefur tekið þátt í mörgum
samsýningum hér heima og einnig
haldið fjölmargar einkasýningar.
Fríða fékk inngöngu í Academie
of Fine Kunst í Tongeren í Belgíu
árið 1999 og var þar í málun-
ardeild til haustsins 2001. Auk
þess hefur hún sótt námskeið í
Myndlistarskóla Kópavogs í
vatnslitamálun og hjá Myndlista-
og handíðaskóla Islands í módel-
og fjarvíddarteikningu.
Mig er búið að dreyma um að koma
til Eyja í mörg ár. Ég hef bara
komið þangað einu sinni, fyrir
fjörutíu árum,“ sagði Fríða þegar
hún var spurð út í sýninguna og
útskýrir nánar. „Maðurinn minn,
sem ég missti fyrir tveimur árum,
var minn gagnrýnandi og vildi að ég
færi með myndimar mínar og sýndi
í Eyjum og nú er ég að láta verða af
því. Ég ætla að sýna í Akóges um
helgina og verð með litlar og meðal-
stórar myndir. Ég nota múrblöndu á
striga og þetta eru allt þrívíðar
lágmyndir," segir Fríða sem hefur
FRÍÐA Rögnvaldsdóttir við vinnuaðstöðu sína en hún sýnir verk sín í Akóges um helgina.
skapað sinn eigin stíl í myndlist og
þróað áfram.
„Sfðustu fimm ár hef ég sótt
efnivið í gamla tímann sem kom til
af því að ég var með sýningu í
listasal Saltfiskssetursins í
Grindavík. Ég fékk þá hugmynd að
tengja mína sýningu við sýningu
setursins á neðri hæð og gera fólk
frá gamla tímanum að vinna í salt-
fiski. Ég nota laxa- og hlýraroð í
þær myndir. Fólkið mitt er andlits-
laust, ég vil hafa þetta opið þannig
að fólkið sem sér myndimar geti
sjálft lifað sig inn í þær og skapað
sínar eigin persónur,“ sagði Fríða en
hún hefur m.a. sýnt í Lúxemborg,
Belgíu, New York og myndir hennar
kynntar á sýningu í Kanada.
„Við Steinunn Einarsdóttir, mynd-
listarkona í Eyjum, fórum ásamt
fleiri íslendingum á NY Art Expo í
New York 2007 og þar seldust
myndir eftir mig. Síðan var mér
boðið að vera hluti af Art 67 sem er
gallerí á Laugaveginum og það
gengur mjög vel,“ sagði Fríða og
vonast eftir að sjá sem flesta á
sýningunni í Akóges um helgina.
Lögregla:
Útivistartímar breytast með hækkandi sól
Þann 1. maí sl. breyttist útivistartími bama og
unglinga. Frá þeim tíma mega 12 ára böm og
yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 ára
unglingar mega vera úti til klukkan 24.00.
Böm mega ekki vera á almannafæri utan
fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum.
Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda
hópinn þegar unglingar em á heimleið frá
viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðs-
samkomu. Aldur miðast við fæðingarár.
Sigurdís opnar vinnustofci:
Eyjamenn velkomnir við opnunina
Föstudaginn 6. maí næstkomandi mun
Sigurdís Harpa Amarsdóttir opna vinnu-
stofu að Skipholti 9 í Reykjavík.
Sigurdís býður Eyjamenn velkomna til
að fagna því með sér frá klukkan 16-18.
Meðal annars munu þeir félagar í GRM
(Gylfi, Rúnar og Megas) stíga á stokk.
Meðfylgjandi er mynd í vinnslu sem
verður til sýnis við opnunina.