Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Page 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 8. desember 2011
Kári Bjarnason, forstöðumaður Bókasafns:
Biblían og Gísli
Þorsteinsson í Einarsstofu
Ekki er lítið lagt undir í Einars-
stofu á aðventunni, að tefla saman
hinni helgu bók í ólíkum útgáfum
og gömlum samstarfsmanni og
vini Einars Sigurðssonar, þess er
Einarsstofa er við kennd. Þó er
skömm óhófsævin hér sem víðar,
því um miðjan mánuðinn mun
Steinunn Einarsdóttir ryðja
hvorutveggja úr vegi og setja upp
sýningu á andlitsmyndum úr
Eyjum í bland við annan sam-
tíning. Má vera að sum andlitin
minni fremur á þrettándann en
jólin, enda mun sýningin standa
fram yfir jólalok.
Myndlistarsýning safnsins að
þessu sinni er úr smiðju heima-
manns. Gísli Þorsteinsson frá
Laufási er einn þeirra er glæðir
Listasafn Vestmannaeyja lífi og
litum. Róbert Sigurmundsson í
Prýði á heiðurinn af því að koma
myndum hans í skjól safnsins og
er það eitt margra vinarbragða
hans við Safnahúsið.
Flestir Vestmannaeyinga muna
Gísla, en þó er ekki víst að vit-
neskjan um málaraástríðu hans
hafi verið almannaeign. Sagt er að
Gísli hafi lítið vilja gera úr kunn-
áttu sinni og gjama sagt að hann
málaði eingöngu fyrir sjálfan sig.
Enda mun það vera svo að Gísla
er lengst minnst hér fyrir þátt hans
í atvinnuuppbyggingu Vest-
mannaeyja, á frjóum tímum er
Eyjamar breyttust úr fábrotinni
verstöð í margþættan iðnaðarbæ.
Hann var fæddur við upphaf
umrótanna, nánar tiltekið 23. júní
1906 í Laufási, sonur hjónanna
Þorsteins Jónssonar útvegsbónda
þar og Elínborgar Gísladóttur. Ólst
hann upp í stómm systkinahópi á
heimili mikilla umsvifa. Gísli
kvæntist árið 1940 Ráðhildi Áma-
dóttur og tóku þau að sér kjörson,
Gísla Má, rafmagnsverkfræðing.
Þau slitu samvistir. Gísli andaðist
10. júlí 1987 á Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja.
Gísli var lengi verkstjóri hjá
Einari í Hraðfrystistöð Vest-
mannaeyja. Seinna stofnaði Gísli
Fiskiðjuna, ásamt þeim Ágústi
Matthíassyni og Þorsteini Sigurðs-
syni. Varð það eitt öflugasta og
afkastamesta frystihús landsins á
þeim ámm. Gísli var þekktur fyrir
að fylgjast vel með öllum nýjung-
um og notfæra sér þær hugmyndir
sem hann taldi vera hagkvæmar.
Þessi em hin ytri kjör mannsins að
því er heimildir greina. Glaðvær
gæfumaður virðist hann alla tíð
hafa verið.
En Gísli átti sér aðra veröld,
heim myndlistarinnar. Er ekki að
efa að stundimar hafa oft og tíðum
verið stopular við listsköpun að
loknum löngum og annasömum
degi. Þó er hvergi að greina
eftirsjá í verkum hans. Þvert á
móti birtist okkur málarinn með
bamshjartað, naívistinn af Guðs
náð sem innblásinn af þjóðsögum
og glaðsinna fjöri endurspeglar
von mannsins eftir hreinleika
bemskunnar. Það er gott að njóta
Gísla Þorsteinssonar til að minna
okkur á inntak jólanna.
Elsta Biblíuútgáfan frá
árinu 1747
Við höfum jafnframt dregið fram
úrval Biblíuútgáfa safnsins sem er
með ágætum, enda þótt elstu út-
gáfur vanti. Til em þó tvær Guð-
brandsbiblíur, en báðar í ljós-
prenti. Ljósprentin em þó fágætari
en margur gæti haldið - aðeins
500 ljósprent vom gefin út af
þeirri einstöku bók. Elsta útgáfa
Biblíunnar í safninu er frá 1747,
svonefnd Waysenhússbiblía sem
kennd er við prentstað sinn,
munaðarleysingjaheimilið
Waysenhús í Kaupmannahöfn.
Mun sú útgáfa vera hin fjórða
útgáfa Biblíunnar. Þá taka við fjöl-
margar útgáfur sem einnig em
kenndar við prentstaðinn:
Viðeyjarútgáfan frá 1841, m.a.
fágætt eintak frá Ingólfi á Odds-
stöðum, Reykjavíkurútgáfan frá
1859 og Lundúnaútgáfan frá 1866
úr fómm sjálfs Jóns í Gvendarhúsi
svo helstar séu raktar. Þá er að
finna á sýningunni elsta texta um
jól á íslensku, úr Hómilíubókinni
frá því um 1200. Liggur ljós-
prentuð síða opin þar sem fyrst er
fjallað um jólin og uppskrift á
textanum lögð hið næsta.
Jólakort úr safni Nýju
Þá sýnum við fjölda jólakorta úr
hinu rómaða jólakortasafni
Kristnýjar Ólafsdóttur, er jafnan
var kölluð Nýja; og er vistað á
Skjalasafninu. Úr Byggðasafninu
koma munir úr fómm hannyrða-
kvennanna Guðbjargar Sigurþórs-
dóttur, fyrmrn samstarfsmanns, og
Ingibjargar Haraldsdóttur.
Það er því margt að sjá og
lesendur Frétta era hvattir til að
líta við í Einarsstofu, en sýningin
stendur fram undir miðjan mánuð.
Að lokum má geta þess að ritað er
upp jólaguðspjallið úr ólíkum
Biblíuútgáfum til að sýna hvemig
sá mikli boðskapur hefur verið
orðaður á ólíkum tímum og í
ólíkri menningu.
Fyrsta útgáfa jólaguð-
spjallsins á íslensku
Fylgir hér að lokum jólaguð-
spjallið eins og það er prentað hið
fyrsta sinn á íslensku, úr Guð-
brandsbiblíu frá árinu 1584.
Enn það bar til á þeim dögum að
það boð gekk út frá keisaranum
Augusto það heimurinn allur
skyldi skattskrifast. Og þessi
skattskrift hófst fyrst upp hjá
Kyrino sem þá var landsstjómari í
Sýría. Og allir fóm að tjá sig hvör
til sinnar borgar. Þá fór og Jóseph
af Galilea úr borginni Nadsareht
upp í Judeam til Davíðsborgar sú
eð kallaðist Betlehem af því að
hann var af húsi og kyni Davíðs
að hann tjáði sig þar meður Maríu
sinni festar konu óléttri.
Enn það gjörðist þá þau vom þar
að þeir dagar fullnuðust eð hún
skyldi fæða. Og hún fæddi sinn
fmmgetinn son og vafði hann í
reifum og lagði hann niður í jöt-
una þvíað hún fékk ekkert annað
rúm í gesta herberginu.
Og fjárhirðar vom þar í sama
byggðarlagi um grandana [grend-
ina] við fjárhúsin sem varðveislu
og vöktu yfir hjörð sinni. Og sjá:
Að engill Drottins stóð hjá þeim
og Guðs birti ljómaði í kringum
þá. Og þeir urðu af miklum ótta
hræddir. Og engillinn sagði til
þeirra: Eigi skulu þér hræðast.
Sjáið: Eg boða yður mikinn
fögnuð þann er sker öllum lýð því
í dag er yður lausnarinn fæddur sá
að er Kristur Drottins í borg
Davíðs. Og hafíð það til merkis,
þér munut finna bamit í reifum
vafið og lagt vera í jötuna. Og
jafnskjótt þá var þar hjá englinum
mikill fjöldi himneskra hirðsveita
sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð
sé Guði í upphæðum og friður á
jörðu og mönnum góður vilji.
Kári Bjamason.
LÁTA EKKI DEIGAN SÍGA Kristján og Garðar eru þarna að hreyfa
þörfu mál, því það er þörf fyrir íbúðir fyrir aldraða í Eyjum.
Kanna áhuga á íbúðar-
blokk fyrir 60 ára og
eldri við Sólhlíð
„Við ætlum að halda kynningarfund
í sambandi við byggingu á íbúðar-
blokk fyrir 60 + við Sólhlíð 4, þar
sem Þórunn Halldórsdóttir og
Isidoro Ruiz búa.Við höfum rætt við
þau og þau era þessu samþykk,“
sagði Kristján Óskarsson, fyrrver-
andi útgerðarmaður en hann og
Garðar Björgvinsson, húsasmíða-
meistari standa fyrir fundinum.
„Við höfum hug á að byggja sex
hæða blokk með 24 íbúðum á lóð-
inni og viljum athuga hvort Vest-
mannaeyingar hafa áhuga á að fjár-
festa í þessu. Nú á tímum getur
verið gott að festa peninga í íbúðar-
húsnæði þannig að þetta getur verið
góður kostur. Þessi fundur er aðal-
lega hugsaður til að kanna þörfma
fyrir svona íbúðir en fundurinn
verður haldinn í sal Eyjabústaða,
föstudaginn 9. desember, klukkan
17.00. Kaffi á könnunni," sagði
Kristján og tekur vel á móti öllum
sem mæta á fundinn.
Umhverfis- og skipulagsráð:
Deiliskipulag við Hraunveg
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja fundaði á miðvikudag og fjallaði
m.a. um deiliskipulag við Hraunveg. Skipulagstillagan var auglýst frá 5.
október til 16. nóvember 2011 en eitt bréf, dagsett 16.11.2011, barst við
auglýstri tillögu. Ráðið þakkaði bréfritara góðar ábendingar en taldi innihald
bréfsins ekki varða skilmála tillögunar og vísaði bréfinu til fjölskyldu- og
tómstundaráðs. Ráðið samþykkti deiliskipulagið og fól skipulags- og bygg-
ingafulltrúa framgang málsins.
Áhorfendastúka við Hásteinsvöll
Tryggvi Már Sæmundsson, f.h. ÍBV-Íþróttafélags, sótti um byggingarleyfi
fyrir áhorfendastúku sunnan við Há-
steinsvöll. Ráðið samþykkti erindið
þar sem uppdrættir em í samræmi við
deiliskipulag svæðis. Allar fram-
kvæmdir við áhorfendastúku skulu
vera í samræmi við ákvæði byggingar-
reglugerðar og reglugerðar KSÍ um
knattspymuleikvanga.
Aðkoma að Skansvegi 5
Valur Andersen sótti um leyfi fyrir vömhurð á austurhlið geymsluhúsnæðis
við Skansveg 5. Einnig var sótt um leyfi til að breyta aðkomu að húsnæði.
Ráðið hafnaði umsókninni þar sem fyrirhugaðar framkvæmdir em ekki í
samræmi við deiliskipulag svæðis frá 1999.
Auglýsingaskilti á Kiwanishúsi
Magnús Benónýsson, f.h. húseigenda að Standvegi 54, sótti um leyfi til að
nýta vesturgafl Kiwanishússins undir auglýsingar, sbr. innsend gögn.
f fundargerð kemur fram að ráðið er hlynnt erindinu, en óskar eftir frekari
upplýsingum um form og fyrirkomulag auglýsinga.
Breytingar á atvinnuhúsnæði
Sigurður Ragnarsson, f.h. Péturseyjar ehf., sótti um leyfi fyrir breytingum á
atvinnuhúsnæði, Flötum 31. í fundargerð kemur fram að það var samþykkt
af byggingafulltrúa þann 16.11.2011.
Dæluskúr fyrir olíu og lýsi
Sigurjón Pálsson, f.h. VSV hfi, sækir um leyfi til að byggja dæluskúr fyrir
olíu og lýsi. Ráðið samþykkti erindið þar sem uppdrættir em í samræmi við
mannvirkjalög
Álagning útsvars fyrir árið 2012
Bæjarstjóm Vestmannaeyja samþykkti tillögu um að álagning útsvars fyrir
árið 2012 yrði óbreytt frá fyrra ári eða 14,48%. Sveitarstjóm er skylt skv. 24.
gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga að ákveða fyrir 1. desember hvert
álagningarhlutfall útsvars skal vera á tekjur manna á næsta ári.