Fréttir - Eyjafréttir - 08.12.2011, Síða 11
Frcttír / Fimmtudagur 8. desember 2011
11
STARFSMENN Tölvunar. Frá vinstri: Bjarni Þór Guðmundsson, Davíð Guðmundsson, Auðbjörg Svava Björgvinsdóttir og Kristín Garðarsdóttir. Á myndina vantar Andra Hugo
Runólfsson, verslunarstjóra, sem var að kynna sér Applevörurnar hjá Appleumboðinu í Reykjavík, og Þórleifu Guðmundsdóttur.
Markmiðið er heilbrigt fyrirtæki
- með ánægða starfsmenn og ánægða viðskiptavini, segja þau Davíð
Guðmundsson og Kristín Garðarsdóttir í Tölvun
Tölvufyrirtækið Tölvun hefur
verið starfrækt síðan árið 1993 en
fyrirtækið hefur verið að sækja
verulega í sig veðrið að undan-
förnu. Tölvun hýsir t.d. gögn
fyrir Isfélag og Vinnslustöðina en
ljósleiðarasamband gerir það að
verkum að hægt er að veita þessa
þjónustu á ofurhraða. Sex starfs-
menn vinna í fjórum stöðugildum
hjá fyrirtækinu en Davíð Guð-
mundsson, sem er eigandi fyrir-
tækisins og Kristín Garðarsdóttir,
framkvæmdastjóri, svöruðu
nokkrum spurningum um fyrir-
tækið.
Eins og áður sagði var Tölvun
stofnuð árið 1993. „Árið 1993,
þegar frystihúsin ákváðu að leggja
niður Samfrost, hvöttu þau Davíð til
að taka yfir rekstur tölvudeildar
Samfrosts. Á sama tíma hófum við
að selja tölvur og rekstrarvörur þeim
tengdum," sagði Kristín.
„I upphafi sáum við um að reikna
bónusinn fyrir frystihúsin, ásamt því
að vera með þessa almennu þjón-
ustu og viðgerðir við bæði fyrirtæki
og einstaklinga. Svo var það árið
1995 sem við fórum að bjóða upp á
intemetþjónustu, hér í Eyjum og um
allt Suðurlandið. Um tíma vom yfir
300 kúnnar sem keyptu af okkur
intemetsþjónustu, en þeim fækkaði
þegar stóm símafyrirtækin fóm að
bjóða upp á ADSL tengingar. Eftir
mikið ströggl og hátt í þriggja ára
ferli fengum við að komast inn í
Símstöðina og bjóða okkar kúnnum
upp á ADSL. Það var mikil og erfið
barátta. Við hófum að leggja
ljósleiðarakapla árið 1998 og höfum
verið dugleg að leggja ljósleiðara
um Eyjuna, en það hefur kostað
mikla fjármuni að koma kerfinu
upp. Einnig er hýsingarþjónustan
okkar alltaf að stækka og í dag
keyrum við á mjög öflugum búnaði
sem tekið getur við fjölda fyrirtækja
í hýsingarþjónustu. Það em góð
meðmæli að tvö stærstu fyrirtækin í
bænum velji þessa leið fyrir tölvu-
Eigum traustan og góðan
kúnnahóp
Er samkeppnin ekki hörð við risana
á internetmarkaðinwn, Vodafone og
Símann ?
„Jú, það er erfitt að keppa við risana,
en sem betur fer þá eigum við
traustan og góðan kúnnahóp. Lítil
fyrirtæki geta alltaf veitt persónu-
legri þjónustu og það meta margir.
Samkeppnin er einnig innanbæjar.
Ofsafengin viðbrögð við samstarfs-
samningi okkar við Apple-umboðið
sýna það og sanna. Við eigum í
góðum samskiptum við umboðs-
aðila Apple, Skakkaturn ehf., og
væntum við góðs af því samstarfi,
bæði í sölu og þjónustu. Ekki fómm
við með það í blöðin eða grenjuðum
yfir því eins og óþekkur krakki
þegar sami aðili fór að selja Dell
tölvur sem við erum búin að selja í
tæpan áratug. ÖIl samkeppni er af
hinu góða en tímabundin undirboð
em til þess eins fallin að eyðileggja
samkeppnina," sagði Davíð og bætti
því við að verslunarstjóri Tölvunar,
Andri Hugo Runólfsson, hefði í
vikunni verið í námsferð hjá Apple
umboðinu í höfuðborginni að kynna
sér verklag við viðgerðir og sölu á
Apple búnaði.
„Á föstudaginn 9. desember
verður Apple-sérfræðingurinn Guð-
jón Pétursson hjá okkur í Eyjum.
Við munum verða með formlega
kynningu á Apple vömm á Kaffi
Varmó í hádeginu milli kl. 12 og 13,
þar sem iPad spjaldtölvan verður í
fyrirrúmi. Guðjón verður svo í
verslun okkar frá 13 til 17 til að að-
stoða og upplýsa áhugasama
viðskiptavini um Ápple-heiminn.“
Hvernig sjáið þið fyrir ykkur Tölvun
þróast nœstu árin?
„Markmiðið er að reka heilbrigt
fyrirtæki með ánægða starfsmenn
og ánægða viðskiptavini,“ sagði
Kristín að lokum og Davíð tók undir
það.
kerfin sín,“ útskýrði Kristín og á þar
við Isfélag og Vinnslustöð.
Snögg að bregðast við
Vœntanlega skiptast á skin og skúrir
í svona rekstri en það virðist ganga
vel núna, er það ekki?
„Jú, jú, það skiptast á skin og skúrir
hjá okkur eins og öllurn," sagði
Davíð. „En við reynum alltaf að sjá
ljósið og talandi um það þá var
ljósleiðarinn okkar tekinn í sundur
af verktakanum við Isfélagsleiðsl-
umar, síðasta föstudagsmorgun og
við það varð Vinnslustöðin sam-
bandslaus ásamt frystihúsi Isfélags-
ins, hafnarvigtinni og ljósleiðara-
kerfinu á Eiðinu. Þannig að það fór
allt á fullt í að laga það og koma
Vinnslustöðinni í samband við
umheiminn. Það tókst fljótt að
koma þeim í samband en það tók
hálfan daginn að splæsa saman
ljósleiðarann. Það varð að koma
maður úr Reykjavík og við vomm
svo heppin að það var seinkun á
fluginu og maðurinn gat hent frá sér
verkefnum í Reykjavík, svo hann
dreif sig með græjurnar úl á flugvöll
þar sem flugvélin beið eftir honum,“
sagði Davíð og bætti við að þjón-
ustan væri alltaf flott hjá Flug-
félaginu Emi.
Betur í stakk búin
Jóhann Pétur Sturluson er rekstrar-
ráðgjafi fyrirtækisins, sem heitir í
dag Upprisa Tölvunar. „Jóhann
Pétur kom fyrst í ráðgjöf fyrir
Tölvun árið 2005. Hann kom aftur
að rekstrarráðgjöf með okkur síð-
sumars árið 2010 og tók þátt í samn-
ingaviðræðum okkar við bankana
við Ieiðréttingu og endurskipu-
lagningu lána okkar. Við höfum
fengið ómetanlega aðstoð frá
Jóhanni Pétri og fyrirtæki hans,
Stjórnun og emm nú betur í stakk
búin en áður til að takast á við
framtíðina og þá möguleika sem
hún býður upp á.“
Hvaða þjónustu býður Tölvun upp á
í dag?
„Við bjóðum upp á alla þessa helstu
tölvuþjónustu, viðgerðir og viðhald
tölvukerfa fyrir bæði fyrirtæki og
einstaklinga. Við minntumst áðan á
Internetsþjónustuna sem er í fullum
gangi og svo má nefna afritunar- og
hýsingarþjónustu, sem er meira og
meira að ryðja sér til rúms. Það eru
allt of margir búnir að týna öllum
sínum myndum og mikilvægum
gögnum og það er góð og hagkvæm
leið að láta taka afrit hvort heldur
sem er á hverjum degi eða vikulega
eins og myndi kannski duga flestum
einstaklingum,“ sagði Kristín og
bætir við að stærstu verkefnin í dag
séu Isfélag og Vinnslustöð ásamt
internetþjónustu fyrir Vestmanna-
eyjabæ, fyrirtæki og einstaklinga.
í SAMSTARFIVIÐ ÍSFÉLAGIÐ. Tölvun hýsir öll gögn ísfélagsins en á myndinni handsala þeir samstarfs-
samninginn, þeir Örvar Guðni Arnarson, fjármálastjóri Isfélagsins, og Davíð Guðmundsson hjá Tölvun.