Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 2
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
UTANRÍKISMÁL Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði með
Francois Hollande, forseta Frakklands í Elysée-höll í París í gær.
Ræddu þeir meðal annars aukna samvinnu þjóða á norðurslóðum, nýt-
ingu hreinnar orku, glímuna við fjármálakreppuna í Evrópu og reynslu
Íslendinga á undanförnum árum.
Að loknum fundi með Hollande heimsótti Ólafur Ragnar báðar deildir
franska þingsins. Þá hitti hann Íslandsdeild franskra þingmanna, sem
Lionel Tardy veitir forstöðu. - mþl
Forseti Íslands í opinberri heimsókn í Frakklandi:
Ólafur Ragnar hitti Hollande
ELYSÉE-HÖLL Í GÆR Ólafur Ragnar Grímsson fundaði í gær með Francois Hollande,
sem var kjörinn forseti Frakklands í maí í fyrra.
NÁTTÚRA Hátt í tíu þúsund kindur
og lömb drápust í vetrar hörkunum
á Norðausturlandi í september
í fyrra. Veðurofsinn og slæmar
aðstæður gerðu það að verkum að
ekki var mögulegt að safna hræjun-
um saman og farga þeim, en lang-
flestar kindurnar voru langt uppi á
fjöllum fjarri manna byggðum.
Öll orka bænda og björgunar-
sveita fór í að smala saman því
fé sem lifði en Sigurður Eyþórs-
son, framkvæmdastjóri Lands-
sambands sauðfjárbænda, segir að
um 100.000 fjár hafi verið sleppt á
svæðinu. Það þýðir að um tíu pró-
sent skiluðu sér aldrei heim. Þótt
ótrúlegt megi virðast eru þó enn
að finnast kindur á lífi á stöku stað
eftir langan og harðan vetur.
Sæþór Gunnsteinsson, bóndi í
Presthvammi í Aðaldal, segir að
þótt hlýtt hafi verið undanfarna
daga séu stærstu svæðin enn þakin
snjó.
„Það verður ekkert vitað hvað
verður gert við skrokkana fyrr en
um verslunarmannahelgi,“ segir
hann. „Þegar hlánar á miðju sumri
hverfa hræin bara. Þetta er svo
stórt svæði að við förum aldrei að
safna þessu saman.“
Sæþór missti hundrað kindur
og lömb af þeim 900 sem hann átti
á fjalli. „Þetta er búinn að vera
einstakur hamfaravetur,“ segir
hann. „En reynslan sýnir okkur
að þær ær sem drepast og koma
undan snjónum geta verið horfn-
ar eftir hálfan mánuð. Förgun
þessara hræja er einfaldlega
óframkvæman leg.“
Alfreð Schiöth, framkvæmda-
stjóri heilbrigðiseftirlits Norður-
lands eystra, segir umhverfis-
ráðuneytið hafa samþykkt að veita
fjármagn til að aðstoða bændur
við að farga hræjunum á viður-
kenndum urðunarstöðum.
„Bændur þekkja mjög vel að
ræflarnir af þessum skepnum geta
sést fram eftir öllu sumri,“ segir
hann. „Víða eru þarna vinsælar
ferðamannaslóðir og það er held-
ur óskemmtilegt ef hundruð hræja
blasa þar við ferðamönnum. Ég
efast um að hrafninn og tófan séu
það afkastamikil.“
Þorsteinn Ólafsson, sérgreina-
dýralæknir hjá Matvælastofnun,
segir ólíklegt að vargurinn breiði
út smitsjúkdóma þótt hann éti
hræin, sem grotni þó ótrúlega fljótt
niður. Áratugir séu síðan búfjár-
sjúkdóma hafi síðast orðið vart á
svæðinu.
„En ég er sammála að það var
illmögulegt að fjarlægja hræin og
það verður það alltaf. Það verður
ekki hjá því komist að svona ger-
ist.“ sunna@frettabladid.is
Tíu þúsund kindahræ
látin rotna á fjöllum
Talið er að hátt í tíu þúsund fjár hafi drepist í óveðrinu á Norðausturlandi í septem-
ber. Engar áætlanir eru um að farga hræjunum. Bagalegt fyrir ferðaþjónustuna,
segir heilbrigðisfulltrúi. Lítil hætta á smitsjúkdómum, segir dýralæknir hjá MAST.
ÓFÖGUR SJÓN Þegar kindahræin koma undan snjónum á Norðurlandi í sumar
munu fuglar og tófur leggjast á þau og éta þar til bein, haus og gærur eru eftir.
MYND/GUÐFINNA HREIÐARSDÓTTIR
Þetta er búinn að vera
einstakur hamfaravetur.
Sæþór Gunnsteinsson bóndi
SJÁVARÚTVEGUR „Þetta er bara kapphlaup við tímann
núna. Það skiptir bara máli að ná sem mestu,“ segir
Jón Axelsson, skipstjóri á loðnuskipinu Álsey VE 2.
Álsey var á leið til Þórshafnar í gærkvöld eftir góða
veiði undanfarna daga við Vestmannaeyjar. Alls
voru ellefu loðnuskip að veiðum á svæðinu í gær-
kvöld.
„Það hefur gengið mjög vel. Við komum seinni-
partinn á mánudag, köstuðum þrisvar og fengum
800 tonn og köstuðum þrisvar í dag [í gær] og feng-
um þúsund. Það var fínt á sjó og mikið af loðnu,“
segir Jón.
Jón segir ómögulegt að segja til um hvenær náist
að veiða upp í kvótaheimildir. Vonandi verði veitt
sem lengst, alveg fram að páskum.
„Þetta eru svo miklar heimildir núna og þá er auð-
vitað gott að fá svona góða veiði,“ segir hann. „Það
hefur verið leiðindatíð, þrálátar sunnanáttir og við
alltaf uppi í fjöru. En það spáir betra fram undan.“
Áhöfnin á Álsey samanstendur af þrettán mönnum.
Búist er við að skipið komi í kvöld til Þórshafnar,
þar sem farminum verður landað. Svo verður haldið
aftur til veiða á fimmtudagsmorgunn. - sv
Að minnsta kosti ellefu loðnuskip kepptust við að veiða við Eyjar í gær:
Mokveiði við Vestmannaeyjar
Á MIÐUNUM Í GÆR Skipstjórinn á Álsey taldi alls ellefu
loðnuskip á veiðum í grennd við Vestmannaeyjar í gærkvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
SKÁK Kínverska skákundrið Wei Yi tryggði
sér þriðja og síðasta áfanga að stórmeistara-
titli eftir áttundu umferð N1 Reykjavíkur-
skákmótsins í Hörpu á mánudagskvöld. Wei
Yi, sem er aðeins 13 ára gamall, er því yngsti
stórmeistari heims í dag. Wei Yi varð jafn-
framt fjórði yngsti stórmeistari allra tíma,
þegar næststigahæsti keppandi mótsins,
stórmeistarinn Maxime Vachier-Lagrave frá
Frakklandi, gaf skák sína eftir mikla baráttu
við undrabarnið.
Skákmeistarinn ungi var í hópi efstu
manna á mótinu eftir áttundu umferð en
sigur möguleikar hans eru vart raunhæfir
eftir jafntefli gegn pólska stórmeistaranum
Grzegorz Gajewski í gærkvöldi. Árangur hans
er engu að síður glæsilegur; hann hefur unnið
sex skákir til þessa, gert tvö jafntefli og
aðeins tapað einni og hefur hann því sjö vinn-
inga ásamt hópi skákmeistara. Efstir á mótinu
fyrir lokaumferðina í dag eru þeir Wesley
So og Pavel Eljanov. Skák þeirra ræður því
úrslitum um hver sigrar á mótinu en sest
verður að tafli klukkan 16.30 í Hörpu. - shá
Hinn 13 ára Wei Yi náði þriðja og síðasta áfanga að stórmeistaratitli á Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu:
Undrabarn varð yngsti stórmeistari heims
AÐ TAFLI Wei Yi er fjórði yngsti stórmeistari sögunnar,
aðeins 13 ára gamall.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPURNING DAGSINS
Alexía, eruð þið drengir góðir?
„Já, við erum karlmennskan upp-
máluð.“
Alexía Björg Jóhannsdóttir er ein þriggja leik-
kvenna í leikhópnum Pörupiltum sem flytja
uppistandið Homo Erectus í Þjóðleikhús-
kjallaranum í gervi pilta.
BANDARÍKIN, AP Bandaríkjaher
hefur leiðrétt tölur um fjölda
árása talibana á fjölþjóðaherliðið
í Afganistan.
Á síðasta ári voru árásirnar
jafnmargar og árið 2011 en fyrir
stuttu fullyrti fjölþjóðaherinn að
árásunum hefði fækkað um sjö
prósent milli þessara tveggja ára.
Jamie Graybeal, fulltrúi
fjölþjóðaliðsins, segir að skrán-
ingarvillu sé um að kenna en
tekur fram að þessi villa hafi
engin áhrif á mat yfirstjórnar
hersins á ástandinu. - gb
Bandaríkjaher leiðréttir:
Árásir talibana
engu færri nú
ALMENNINGSÍÞRÓTTIR Hlýindi
og vatnsveður undanfarna daga
hafa ekki farið vel með skíðafæri
í nágrenni höfuðborgarinnar.
Lokað hefur verið í brekkunum í
Bláfjöllum og Skálafelli. Gríðar-
legt magn af snjó er sagt horfið
úr brekkunum og margar lyftur
dottnar út.
„Við skulum bara vona að þessu
fari að slota hvað úr hverju en
þetta lítur alla vega ekki vel út,“
sagði rödd í símsvara Bláfjalla í
gær. Ekki er útlit fyrir að það kólni
að ráði fyrr en eftir helgi. - gar
Hlákan plagar skíðafólkið:
Slæmar horfur
í skíðabrekkum