Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 4
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Flokkur 6. feb. 2013 21. feb. 2013
Sjálfstæðisflokkur 33,0% 28,5%
Framsóknarflokkur 19,5% 23,8%
Björt framtíð 17,8% 15,3%
Samfylkingin 16,2% 12,8%
Vinstri græn 8,6% 9,5%
Hægri grænir 1,8% 2,5%
Píratar 0,7% 2,4%
Dögun 0,9% 2,2%
Aðrir - 3,0%
Heimild: MMR
Fylgi flokka
BJÖRGUN „Ég var bara að snúa
við og þá brotnar snjórinn undan
bílnum,“ segir Ragnar Páll Jóns-
son, leiðsögumaður hjá ferða-
skrifstofunni Extreme Iceland,
sem lenti í lífsháska með tvennum
breskum hjónum í Landmanna-
laugum á mánudag.
Jeppinn sem
hann ók lenti í
straumþungri á
og sökk. Ragn-
ari tókst með
naumindum að
ná ferðamönn-
unum upp á þak
jeppans þar
sem þau biðu í
tvær klukku-
stundir þar til
þyrla Landhelgisgæslunnar hífði
þau upp. Hann segist hafa verið
búinn að ákveða að fara ekki yfir
ána, enda miklir vatnavextir og
straumur. Þegar hann reyndi að
snúa við gaf bakkinn sig með þess-
um afleiðingum.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
ég lendi í einhverju svona og ég
er búinn að vera leiðsögumaður
í mörg ár,“ segir Ragnar, sem er
alvanur jeppamaður. Hann segir
að bíllinn hafi fyllst af vatni á
nokkrum sekúndum. Fólkið komst
sem fyrr segir allt upp á þak jepp-
ans og sat þar og beið á meðan
jeppinn sökk dýpra. Ragnar segir
að ekki hafi verið langt í að bíllinn
færi alveg á kaf þegar þyrla Land-
helgisgæslunnar kom þeim til
bjargar. Hann segir ferðamennina
hafa haldið ró sinni allan tímann,
hann hafi sungið fyrir þau og þau
sungið saman. Hann hafi fyrst og
fremst hugsað um að halda sjálf-
um sér og fólkinu rólegu og einnig
hugsað til fjölskyldu sinnar.
Þyrlan flaug með fimmmenn-
ingana á Landspítalann í Fossvogi
á mánudagskvöldið en þau fengu
öll að fara heim nokkrum tímum
síðar.
Bresku hjónin héldu heim til sín
í gær en Ragnar segir ferðaskrif-
stofuna vera í sambandi við þau.
Þá hefur hann einnig rætt við lög-
regluna á Hvolsvelli, sem rann-
sakar tildrög slyssins. Bíllinn er
enn á bólakafi í ánni en Ragnar
segir stefnuna setta á að sækja
hann þangað í dag.
thorunn@frettabladid.is
226,4019
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,67 127,27
192,41 193,35
165,79 166,71
22,222 22,352
22,194 22,324
19,598 19,712
1,3762 1,3842
191,66 192,80
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
26.02.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunk@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Föstudagur
8-13 m/s.
SKÚRIR EÐA ÉL Það kólnar smám saman er líður á daginn. Á morgun má búast við
vægu frosti norðaustantil en annars verður hitinn víða á bilinu 0-5°C. Þykknar upp
vestan til annað kvöld og hlýnar á ný en um helgina lítur út fyrir alvöru kulda.
4°
13
m/s
5°
15
m/s
5°
13
m/s
7°
12
m/s
Á morgun
Fremur hæg suðlæg átt.
Gildistími korta er um hádegi
8°
7°
7°
6°
6°
Alicante
Basel
Berlín
13°
3°
3°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
4°
6°
5°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
2°
2°
20°
London
Mallorca
New York
5°
14°
10°
Orlando
Ósló
París
24°
2°
6°
San Francisco
Stokkhólmur
16°
3°
5°
8
m/s
7°
15
m/s
6°
6
m/s
5°
8
m/s
4°
10
m/s
4°
12
m/s
0°
13
m/s
5°
1°
3°
-2°
-1°
STJÓRNMÁL Nærri lætur að fjórðungur
aðspurðra styðji Framsóknarflokkinn, eða 23,8
prósent, í könnun MMR á fylgi flokka sem gerð
frá þriðjudegi til fimmtudags í síðustu viku.
Flokkurinn bætir við sig 4,3 prósentustigum
milli kannana.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar úr þriðj-
ungi í að vera 28,5 prósent. „Þetta er minnsta
fylgi Sjálfstæðisflokksins sem mælst hefur frá
því fyrir síðustu Alþingiskosningar,“ segir í til-
kynningu MMR, en könnunin var gerð áður en
Sjálfstæðisflokkur og VG héldu landsfundi sína.
Fylgi Samfylkingar dregst saman um 2,5
prósentustig og mælist 12,8 prósent. Þá hefur
aðeins dregið úr stuðningi við Bjarta framtíð,
sem mælist með 15,3 prósenta fylgi. Önnur
framboð ýmist standa í stað eða bæta heldur við
sig.
Þá mælist stuðningur við ríkisstjórnina nú
26,7 prósent, sem er heldur minna en í könnun
MMR í byrjun mánaðarins. Þá studdi 30,1 pró-
sent ríkisstjórnina.
Spurðir voru 814 einstaklingar á aldrinum
18 til 67 ára. 78,5 prósent gáfu upp afstöðu til
flokka. 7,8 prósent sögðust óákveðin en 6,1 pró-
sent ætlaði að skila auðu, 2,4 prósent ætluðu ekki
að mæta á kjörstað og 5,1 prósent gaf ekki upp
afstöðu sína. - óká
Slakasta mæling Sjálfstæðisflokks frá því fyrir síðustu Alþingiskosningar:
Fjórðungur styður Framsóknarflokkinn
SAMGÖNGUR Reykjavíkurborg
hefur sett upp sérstök umferðar-
ljós fyrir hjólafólk á sex stöðum
á nýrri hjólaleið frá Hlemmi að
Elliðaám. Fyrstu ljósin verða
gangsett í dag en þau eru yfir
Sæbrautina við Súðavog og eru
umferðarstýrð.
Hin umferðarljósin eru tíma-
stillt en þau eru við Engjaveg,
Katrínartún, Nóatún, Kringlu-
mýrarbraut og Reykjaveg.
Að öðru leyti virka umferðar-
ljósin eins og önnur slík en skera
sig úr í útliti að því leyti að efst á
þeim trónir hvítt reiðhjólamerki
í bláu gleri sem logar stöðugt í
þeim tilgangi að vekja athygli
hjólreiðafólks. - mþl
Aukin þjónusta við hjólafólk:
Sér umferðar-
ljós fyrir hjól
NÝJU LJÓSIN Umferðarljósin skera sig
úr í útliti að því leyti að á þeim er að
finna hvítt hjólreiðamerki á bláu gleri.
Snjórinn brotnaði
undan jeppanum
Leiðsögumaður sem lenti í lífsháska með breskum ferðamönnum í Landmanna-
laugum ætlaði að snúa jeppa sínum við þegar árbakki gaf sig og jeppinn lenti í
ánni. Litlu munaði að jeppinn væri alveg sokkinn þegar þyrla bjargaði fólkinu.
RAGNAR PÁLL
JÓNSSON
DÓMSTÓLAR Hrafnhildur Guð-
finna Thoroddsen hefur stefnt
Tryggingastofnun vegna van-
goldinna örorkubóta. Hún nýtur
stuðnings Öryrkjabandalags
Íslands (ÖBÍ) í málarekstrinum.
Hrafnhildur vill fá viðurkennt
að Tryggingastofnun sé óheimilt
að skerða bætur hennar vegna
fjármagnstekna af skaðabótum
sem henni voru greiddar í kjöl-
far slyss sem hún varð fyrir árið
1989. Hún krefst 2,5 milljóna
króna vegna þeirra skerðingar
sem hún hefur orðið fyrir. - óká
Stefnir Tryggingastofnun:
Telur sig eiga
inni bætur
MENNING Embætti skipulagsfull-
trúa segir ekkert mæla gegn því
að Reykjavíkurborg þiggi að gjöf
sextán höggmyndir Hallsteins
Sigurðssonar í Grafarvogi.
Höggmyndirnar eru úr áli og
á 23 þúsund fermetra svæði sem
Hallsteinn hefur haft á leigu frá
árinu 1998. Listsafn Reykjavíkur
hefur sagt verkin njóta sín þar
sem þau eru og mælir með því að
borgin þiggi gjöfina. Borgin mun
tileinka svæðið nafni Hallsteins
og merkja verkin en jafnframt
áskilja sér rétt til að flytja þau
annað ef þörf krefur. - gar
Verkin njóta sín í Grafarvogi:
Gefur borginni
sextán styttur
HALLSTEINSGARÐUR Grafarvogsbúar
munu áfram njóta höggmynda Hall-
steins Sigurðssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VIÐSKIPTI
Arion banki selur svínabú
Rekstrarfélagið Braut ehf., dótturfélag
Arion banka, hefur selt svínabúið að
Hýrumel í Borgarfirði. Kaupandi er
Höndlun ehf. sem er félag í eigu Björg-
vins Jóns Bjarnasonar sem leigir þegar
rekstur svínabús í Brautarholti.
BJARGAÐ Hér sést þegar þyrla landhelgisgæslunnar bjargaði fólkinu af þaki jepp-
ans. MYND/LHG
Þetta er í fyrsta skipti
sem ég lendi í einhverju
svona og ég er búinn að
vera leiðsögumaður í
mörg ár.
Ragnar Páll Jónsson
Leiðsögumaður hjá Extreme Iceland