Fréttablaðið - 27.02.2013, Qupperneq 8
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
HEIMILD: INNANRÍKISRÁÐUNEYTI ÍTALÍU
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Frambjóðendur til formanns og stjórnar VR kynna áherslur
sínar á félagsfundi sem verður haldinn á Hilton Nordica Hótel
í Reykjavík í kvöld 27. febrúar kl. 19:30.
Minnum á félagsfundinn í kvöld.
Dagskrá:
1. Frambjóðendur kynna áherslur sínar.
2. Fyrirspurnir til frambjóðenda.
Félagsmenn hvattir til að mæta.
Save the Children á Íslandi
ÍTALÍA Ítalski grínistinn Beppe
Grillo og félagar hans í Fimm
stjörnu hreyfingunni nota orðið
„stjórnmálamaður“ nánast eins og
blótsyrði. Eftir þingkosningarnar
á sunnudag og mánudag er hreyf-
ingin komin með 109 þingmenn í
fulltrúadeild ítalska þingsins og 54
þingmenn í öldungadeildinni.
Þetta nýja en óútreiknanlega
stjórnmálaafl féll í kramið hjá kjós-
endum, hlaut fjórðung atkvæða og
virðist nú standa í vegi fyrir því að
hægt sé að mynda starfhæfa stjórn.
Versta martröð gömlu flokkanna
hefur því ræst og meðal leiðtoga
annarra Evrópusambandsríkja
hefur skelfing gripið um sig. Ekki
virðist vera hægt að treysta því að
ítölsk stjórnvöld geti komið bönd-
um á efnahagslífið, eins og stjórn
hagfræðingsins Marios Monti hafði
reynt að gera. Markaðir brugðust
jafnframt ókvæða við og féllu ítölsk
verðbréf um nokkrar prósentur.
Pier Luigi Bersani, leiðtogi
bandalags vinstri- og miðjuflokka,
er að vísu með traustan meirihluta
í neðri deild þingsins. Bersani hafði
heitið því að halda áfram þeirri
ströngu aðhaldsstefnu sem Mario
Monti fylgdi síðastliðið ár og getur
því styrkt stjórn sína enn frekar
með því að fá Monti til liðs við sig.
Allt önnur staða er hins vegar
uppi í öldungadeildinni, þar sem
flokkar þeirra Bersanis og Montis
ná ekki þingmeirihluta. Til þess að
frumvörp verði að lögum þarf sam-
þykki beggja þingdeilda, þannig
að í reynd yrði stjórn þeirra alger-
lega upp á náð og miskunn banda-
lags hægriflokkanna komin, sem
er undir forystu Silvio Berlusconis.
Berlusconi vill vinda ofan af þeim
aðhaldsaðgerðum sem Monti hefur
staðið fyrir þannig að vart er sjáan-
legur neinn alvöru samstarfsflötur.
Þótt hreyfing Grillos sé með 54
þingmenn í efri deildinni er vand-
séð að hún komi Bersani til hjálpar.
Ítalir eru því farnir að sjá fram á
nýjar kosningar innan fárra mán-
aða. gudsteinn@frettabladid.is
Pattstaða á
nýja þinginu
Pattstaða er komin upp á ítalska þinginu eftir kosn-
ingarnar. Fimm stjörnu hreyfing grínistans Beppes
Grillo virðist vart líkleg til að koma til bjargar.
NÝJA ÞINGIÐ VARLA STARFSHÆFT
Kosningakerfið á Ítalíu miðast við að flokkar starfi saman í flokkabandalögum.
Það flokkabandalag sem flest atkvæði fær í neðri deild fær viðbótarþingsæti til
að tryggja starfhæfan meirihluta, að minnsta kosti 340 þingsæti. Í efri deild er
þetta sama kerfi hins vegar notað fyrir hvert hérað, þannig að engin trygging er
fyrir því að fylgismesta flokkabandalagið fái starfhæfan meirihluta í deildinni.
Beppe Grillo
54 þingsæti
Pier Luigi Bersani
113 þingsæti
Mario
Monti
18 þingsæti
Silvio Berlusconi
116 þingsæti
Beppe Grillo
Fimm stjörnu
hreyfingin
109 þingsæti
Pier Luigi Bersani
(Leiðtogi Lýðræðisflokksins)
Bandalag vinstri- og miðjuflokka
344 þingsæti
Mario Monti
(Leiðtogi Borgaralegs
valkosts)
Með Monti fyrir Ítalíu
48 þingsæti
Silvio Berlusconi
(Leiðtogi Frelsisflokksins)
Bandalag hægri- og miðjuflokka
126 þingsætiAðrir fl okkar
3 þingsæti
➜ Fulltrúadeild ➜ Öldungadeild
630
sæti
315
sæti
Aðrir fl okkar
14 þingsæti