Fréttablaðið - 27.02.2013, Side 10
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is
Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti
Við náum til fjöldans
B
ra
n
de
n
bu
rg
Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila
á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60%
landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið
til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn
á heimilin. Örugglega til þín.
Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300.
Aðalfundur ADHD samtakanna verður haldinn
kl. 20 mánudaginn 11. mars 2013 á 4. hæð
Háaleitisbrautar 13, 108 Reykjavík.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
www.adhd.is
NEYTENDAMÁL Gjöld og skattar á
innfluttar vörur koma verst niður
á hinum tekjulágu, sem ekki hafa
tækifæri til þess að versla í útlönd-
um og er í því tilliti hægt að tala
um fátækraskatt. Þetta segir Guð-
laugur Þór Þórðarson, alþingis-
maður Sjálfstæðisflokksins, og
bætir því við að stjórnvöld þurfi
ekki að vera rög við að fella niður
tolla og álögur einhliða til að efla
verslun innanlands.
Fréttablað-
ið hefur fjallað
mikið um mál
tengd tollum og
öðrum innflutn-
ingsgjöldum síð-
ustu mánuði en
Guðlaugur segir
núverandi kerfi
skaðlegt.
„ Þ a ð s e m
skiptir máli er
að skilgreina markmiðin. Í mínum
huga er markmiðið að flytja versl-
un til landsins og fjölga atvinnu-
tækifærum hér. Með því munum
við í fyrsta lagi bæta lífskjör
almennings og auka atvinnutæki-
færi þeirra sem starfa í verslun
og einnig auka tækifæri í ferða-
mennsku.“ Það megi tryggja með
því að lækka eða afnema innflutn-
ingsgjöld, sem hvetji Íslendinga til
að versla frekar heima.
Guðlaugur segir að undir núver-
andi kerfi sé fólki mismunað eftir
efnahag og vísar í kannanir því til
stuðnings.
Könnun sem Capacent Gallup
gerði undir lok árs 2011 sýnir til
dæmis að rúmur þriðjungur svar-
enda hafði síðast keypt hversdags-
föt í utanlandsferðum og 42 prósent
sögðu að síðast þegar þau keyptu
barnaföt hefði það verið í útlönd-
um.
Þegar litið er til tekna kemur
í ljós mikill munur á verslunar-
venjum. Til dæmis keyptu 75 pró-
sent þeirra sem höfðu fjölskyldu-
tekjur undir 250.000 krónum á
mánuði síðast barnaföt á Íslandi,
en rúmur helmingur, 55 prósent,
þeirra tekjuhæstu, sem voru með
eina milljón eða meira í mánaðar-
laun, keypti síðast barnaföt erlend-
is.
„Þróunin er öll á þann veg að við
erum í raun að hækka fátæktar-
skatta,“ segir Guðlaugur. „Það er
láglaunafólkið sem á enga aðra
valkosti og er að versla hér heima.
Þeir sem eru með hærri laun eru
að versla í útlöndum. Það er stað-
reyndin.“
Spurður hvaða vöruflokk ætti
fyrst að taka fyrir segir Guð laugur
að barnafötin „öskri á okkur“.
Þegar allt komi til alls snú-
ist málið um að bæta stöðuna hér
á landi með afnámi eða lækkun
gjalda.
„Af hverju erum við að skaffa
vinnu fyrir fólkið í Boston frekar
en á Laugaveginum?“ segir Guð-
laugur. thorgils@frettabladid.is
Kemur verst niður á
þeim efnaminnstu
Þingmaður segir gjöld og skatta á innfluttar vörur koma verst niður á þeim efna-
minnstu, sem ekki hafi efni á að ferðast til útlanda og njóta þess tollfrelsis sem
það felur í sér. Lægri gjöld og skattar muni efla verslun og atvinnulíf hér á landi.
UMHVERFISMÁL Fulltrúar 140 ríkja
skrifuðu í janúar síðastliðnum
undir alþjóðlegan samning um
að draga úr notkun kvikasilfurs,
og þá jafnframt losun þess út í
umhverfið. Samningurinn heitir
eftir japönsku borginni Minamata,
þar sem þúsundir manna urðu
fyrir alvarlegri eitrun vegna los-
unar kvikasilfurs með frárennsli
frá efnaverksmiðju.
Minamata-samningurinn er ekki
síst hugsaður til að sporna gegn
kvikasilfursmengun í þróunar-
löndum þar sem notkun þess er
enn vandamál. Iðnríkjunum hefur
hins vegar tekist að skipta því út
fyrir hættuminni, en oft á tíðum
dýrari, efni. Kvikasilfur er til
dæmis notað við að vinna gull á
frumstæðan hátt í gullnámum.
Það er sú notkun sem í dag er talin
valda mestri kvikasilfursmengun
af mannavöldum.
Með samningnum er tryggð fjár-
mögnun til handa fátækari ríkjum
svo að stöðva megi óþarfa notkun
kvikasilfurs. Með samningnum er
tryggt að engar nýjar námur verði
teknar í notkun, kvikasilfur verði
geymt með öruggum hætti og að
förgun þess hafi ekki í för með sér
umhverfisspjöll.
Mikil kvikasilfursmengun verð-
ur til við bruna jarðefna eldsneytis.
Það á sérstaklega við um kola-
orkuver en jafnframt iðnað eins
og málmbræðslur, sements-
verksmiðjur og sorpbrennslu-
stöðvar. - shá
Alþjóðlegur samningur um notkun kvikasilfurs og losun undirritaður í Japan:
Kvikasilfri sagt stríð á hendur
SORPBRENNSLA Kvikasilfursmengun
er einn fylgifiska sorpbrennslu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
KÚBA, AP Um helgina var Migu-
el Diaz-Canel kosinn varaforseti
Kúbu, en Raul Castro verður áfram
forseti. Valið er í þessi embætti á
þjóðþingi landsins, sem kemur
saman tvisvar á ári og samþykkir
lög oftast umræðulítið.
Diaz-Canel er rúmlega fimm-
tugur, lítt þekktur en hefur und-
anfarin þrjátíu ár fetað sig hægt
og þétt upp metorðastigann í
Kommúnista flokknum á Kúbu.
Allt bendir til þess að Castro og
aðrir ráðamenn flokksins vonist
til að Diaz-Canel taki við af Castro
þegar þar að kemur. Á þinginu um
helgina tilkynnti Castro að hann
ætli sér að hætta árið 2018, þegar
þessu nýhafna kjörtímabili lýkur.
Castro er nú 81 árs og verður því
orðinn 86 ára þegar hann áformar
að láta af völdum.
Castro tók við af eldri bróður
sínum Fidel árið 2008, þegar Fidel
veiktist eftir að hafa stjórnað Kúbu
í nærri hálfa öld. Árið 2018 verða
liðin 59 ár frá því Castro gerði bylt-
ingu á Kúbu og tók sér völd. - gb
Raúl Castro ætlar að stjórna Kúbu í fimm ár til viðbótar:
Arftakinn virðist vera fundinn
MIGUEL DIAZ-CANEL Dyggur flokks-
maður sem hefur fetað sig hægt og þétt
upp metorðastigann. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Mikill verðmunur er á sumum vörutegundum
sem standa millilandafarþegum til boða við
brottför eða komu til landsins og almennu verði í
verslunum. Þannig kostar til dæmis eins lítra
flaska af Absolut vodka 2.799 krónur í Frí-
höfninni, en sama flaska er nálægt því 160
prósentum dýrari í verslun Vínbúðarinnar
þar sem hún kostar 7.199 krónur.
Dýr dropinn
Í FRÍHÖFNINNI Yfir tveir fimmtu keyptu barnaföt í síðustu utanlandsferð sinni, að
því er fram kom í könnun árið 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON