Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 27. febrúar 2013 | FRÉTTIR | 11
... HVAÐ ER FRAMUNDAN?
Allt að 16,6% ávöxtun umfram
verðbólgu á árinu 2012, hæsta
raunávöxtun sjóðsins frá upphafi
GOTT ÁR AÐ BAKI...
Almenni lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum á upplýsingafund fimmtudagskvöldið
28. febrúar kl. 20:00 á Hilton Reykjavík Nordica.
Ríkissafn
stutt
-0.4%
4.2%
1.8%
6.4%
9.8%
14.8%
1.9%
6.5% 5.8%
10.6%
11.7%
16.6%
21.8%
0.0%
5.0%
10.0%
15.0%
20.0%
25.0%
Ríkissafn
langt
Samtrygg-
ingarsjóður
Innlánasafn
Ævisafn III
Ævisafn II
Ævisafn I
raunávöxtun
Ávöxtun Alm
enna lífeyriss
jóðsins 2012
nafnávöxtun
16.7%
Gott ár að baki, hvað er framundan?
Sjóðstjórar veita upplýsingar um ávöxtunarleiðir sjóðsins og ræða um horfur á árinu 2013.
Hvert stefnir Icelandair Group?
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, ræðir um íslenska hlutabréfamarkaðinn,
stöðu Icelandair og framtíðarsýn.
Þinn tími mun koma, vertu undirbúinn
Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar, ræðir um lífeyrissparnað
og mikilvægi hans fyrir einstaklinga.
Fundarstjóri: Sigurbjörn Sveinsson, læknir,
formaður stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins.
Efni fundarins:
Sjóðfélagar geta skráð þátttöku á vefsíðu sjóðsins, www.almenni.is
VIÐSKIPTI Landsvirkjun hagnað-
ist um 54,2 milljónir Bandaríkja-
dala, jafngildi tæpra sjö milljarða
króna, á árinu 2012. Til saman-
burðar var hagnaður félagsins
26,5 milljónir Bandaríkjadala
árið 2011. Þetta kemur fram í
ársreikningi Lands virkjunar
fyrir árið 2012 sem var gefinn út
nýverið.
„Afkoma ársins er viðunandi
í ljósi efnahagsástands í heim-
inum. Tekjur dragast saman um
6,5% sem að hluta má rekja til
lækkandi álverðs og áhrifa þess á
samningsbundið raforkuverð. Við
þessar aðstæður njótum við góðs
af því að endursamið var við einn
af stærstu viðskiptavinum okkar
um hærra raforkuverð sem ekki
var tengt álverði,“ segir Hörður
Arnarson, forstjóri fyrirtækisins.
Rekstrartekjur félagsins voru
407,8 milljónir dala og lækk-
uðu um 28,4 milljónir milli ára.
Rekstrarkostnaður nam 88,2
milljónum dala og dróst saman
um 2,8 milljónir milli ára.
Rekstrarhagnaður fyrir fjár-
magnsliði, afskriftir og skatta
nam því 319,6 milljónum Banda-
ríkjadala. Þá var hagnaður fyrir
óinnleysta fjármagnsliði 102
milljónir dala og lækkaði um 4,1
milljón frá 2011.
Loks var eigið fé Landsvirkjun-
ar í lok síðasta árs 1.697 milljón-
ir Bandaríkjadala, sem jafngildir
37,6% eiginfjárhlutfalli. Hækkaði
hlutfallið um 1,8 prósentustig á
árinu. Þá var handbært fé félags-
ins 188 milljónir dala. - mþl
Hagnaður Landsvirkjunar fyrir óinnleysta fjármagnsliði jafngildi tæplega 13 milljörðum króna 2012:
Landsvirkjun hagnaðist um sjö milljarða
HÖRÐUR ARNARSON Rekstur Lands-
virkjunar var svipaður 2012 og árið áður.
ATVINNULÍF Skipafélagið Eimskip
hefur selt flutningaskipið Írafoss
til Albaníu. Írafoss var byggður
árið 1991, er 1.890 tonn að stærð,
og var minnsta skipið sem félagið
hafði í rekstri. Skipið hefur verið
í verkefnum í Noregi frá árinu
2010.
Í frétt frá fyrirtækinu segir
að salan á Írafossi sé hluti af
eðlilegri endurnýjun á skipaflota
félagsins. Salan á Írafossi hefur
óveruleg áhrif á rekstur félags-
ins, segir í frétt fyrirtækisins. - shá
Seldu skip til Albaníu:
Eimskip selur
Írafoss úr landi
BRETLAND, AP Tónlistarsala jókst
um 0,3 prósent á síðasta ári.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu
1999 sem salan eykst og þótt
aukning in sé lítil vonast full trúar
iðnaðar ins til þess að þetta sé
upphafið að viðsnúningi.
Frances Moore, framkvæmda-
stjóri alþjóðasamtaka hljómplötu-
útgefenda, segir þetta sýna að
iðnaðurinn hafi nú lagað sig að
netheimum.
Síðan 1999 hefur niðurhal tón-
listar af netinu átt stóran þátt í
því að sala tónlistar hefur dregist
saman um 40 prósent. - gb
Tónlistarsala eykst á ný:
Hefur aðlagast
netheimum
VIÐSKIPTI Íslandspóstur hagnað-
ist um tæpar 53 milljónir króna
á síðasta ári. Til samanburðar
tapaði félagið 144 milljónum árið
2011 en hagnaðist um 93 milljón-
ir árið 2010.
Rekstrartekjur voru í fyrra
6.754 milljónir og jukust um 225
milljónir milli ára. Rekstrargjöld
lækkuðu hins vegar lítillega og
voru 6.289 milljónir. Rekstrar-
hagnaður fyrir fjármagnsliði,
afskriftir og skatta var því um
485 milljónir. Þá nam eigið fé
félagsins 2,5 milljörðum í lok síð-
asta árs. - mþl
Viðsnúningur milli ára:
Hagnaður hjá
Íslandspósti
SAMFÉLAGSMÁL Boðið verður upp
á hársnyrtingu í húsnæði Fjöl-
skylduhjálpar Íslands í Eskihlíð
í dag.
Þrír hárgreiðslumeistarar
munu standa vaktina í Fjöl-
skylduhjálpinni frá klukkan ell-
efu til klukkan fjögur í dag og
bjóða skjólstæðingum ókeypis
klippingu. Matarúthlutun hefst
svo klukkan tvö og stendur til
16.30. Þá verður matarúthlutun
í Reykjanesbæ á morgun milli
fjögur og sex í húsnæði Fjöl-
skylduhjálpar Íslands í Grófinni.
- þeb
Úthlutun í Eskihlíð í dag:
Fjölskylduhjálp
með klippingu
FJÖLSKYLDUHJÁLPIN Auk matar-
úthlutunar í Eskihlíðinni í dag verður
boðið upp á hársnyrtingu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
RAFORKUKERFIÐ
Álagsbreyting truflaði
Rafmagnsleysi á Norðausturlandi
laugardaginn 23. febrúar orsakaðist af
mikilli álagslækkun á Suðvesturlandi
þegar bilun varð í álverinu í Straumsvík.
Landsnets segir að þá hafi orðið „yfir-
lestun á byggðalínunni“.