Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 14
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Okkar ástkæra móðir og amma,
VIKTORÍA HANNESDÓTTIR
lést heima í faðmi barna sinna laugardaginn
16. febrúar. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Blóm og
minningargreinar vinsamlegast afþakkaðar
en þeim sem vilja minnast hennar er bent
á minningarkort Heimahlynningar LSH. Sérstakar þakkir fær
starfsfólk 11-B og Heimahlynningar LSH fyrir góða umönnun.
Ólafur Geir Guttormsson
Hera Brá Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg frænka okkar,
ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR
kennari,
frá Gautlöndum,
lést 18. febrúar síðastliðinn. Kveðjuathöfn
verður haldin í Neskirkju fimmtudaginn
28. febrúar næstkomandi kl. 13.00.
Jarðað verður frá Skútustaðakirkju, Mývatnssveit, föstudaginn
1. mars kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
menningar- og friðarsamtök.
Systkinabörn og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
JÓHANNA ÞORLEIFSDÓTTIR
Höfða, Akranesi,
andaðist 20. febrúar. Útförin fer fram
frá Akraneskirkju föstudaginn 1. mars
kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili.
Sigurður Gunnarsson Kristjana Þórarinsdóttir
Sigurlín Gunnarsdóttir Eiríkur Jónsson
Þór Arnar Gunnarsson Björg Agnarsdóttir
Gunnar Gunnarsson Sigríður Þrastardóttir
og ömmubörn.
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
ÞÓRA BJÖRNSDÓTTIR
áður til heimilis að Þórsgötu 13,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 1. mars kl. 13.00. Blóm og
kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Dvalarheimilisins Grundar (530-6100).
Björn Brekkan Karlsson Hólmfríður Þórólfsdóttir
Sigfús M. Karlsson Jóna S. Valbergsdóttir
Vilborg G. Guðnadóttir Haukur Guðjónsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma, systir, svilkona og frænka,
GUÐLAUG HELGA KONRÁÐSDÓTTIR
bankamaður,
Barmahlíð 28, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
23. febrúar. Útför hennar fer fram
frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. mars
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta
Minningarsjóð líknardeildar í Kópavogi njóta þess.
Sigtryggur Jónsson
Marta Ruth Guðlaugsdóttir
Ragnar Hauksson
Mikael Jafet Ragnarsson
Salómon Konráð Ragnarsson
Enok Kristinn Ragnarsson
Sverrir Hans Konráðsson
Dagný Þórgnýsdóttir
Edda Rún Sverrisdóttir
Guðrún Lóa Sverrisdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
STEINUNNAR UNNAR
HÁKONARDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir hlýja og
mannúðlega umönnun.
Ingunn Karítas Indriðadóttir Jóhann Sæberg Helgason
Guðný Vigdís Indriðadóttir
Indriði Indriðason Anna Árdís Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns og föður,
GUÐJÓNS HELGASONAR
Hlíðarvegi 11.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
á heilbrigðisstofnun Suðurnesja og deildar
12E á Landspítalanum við Hringbraut.
Sveinborg Daníelsdóttir
Sunneva Guðjónsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HULDA MARGRÉT FRIÐRIKSDÓTTIR
lést á Dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn
16. febrúar. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 1. mars kl. 13.30.
Fanney Rósa Jónasdóttir Jónas Jose Mellado
Ásta Hrönn Jónasdóttir Aðalsteinn Baldursson
Heiðrún Hulda Jónasdóttir Sigurmar Gíslason
Lilja Margrét Jónasdóttir
Erna Guðný Jónasdóttir Þröstur Magnússon
Jenný Edda Jónasdóttir Jón Benóný Hermannsson
Sandra Friðriks Jónasdóttir Eiríkur Ellertsson
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
OLGA AXELSDÓTTIR
hjúkrunarheimilinu Eir,
lést þriðjudaginn 12. febrúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát hennar.
Halldór Bjarnason Guðbjörg Þorsteinsdóttir
Bjarni Friðrik Bjarnason
Ágúst Bjarnason Auður Ottadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR HANNESSON
frá Litla-Vatnshorni í Haukadal,
síðast til heimilis að Háholti 16,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi þriðjudaginn 19. febrúar.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 28. febrúar kl. 13.00.
Nanna Guðrún Jónsdóttir
Ómar Ólafsson Sigríður Eysteinsdóttir
Stefán Ólafsson Edda Andrésdóttir
Jónína Ólafsdóttir Sigurjón Sigurbjörnsson
Atli Ólafsson Guðfinna Árnadóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÓLAFUR REYKDAL KARLSSON
Grænuhlíð 3, Reykjavík,
lést sunnudaginn 24. febrúar
á Landspítalanum í Fossvogi.
Sigríður Ólafsdóttir
Jón Þór Gunnarsson
Fríða Ólöf Ólafsdóttir Skúli Gunnarsson
Ólafur Karl Ólafsson Lena Friis Vestargaard
Anna María Ólafsdóttir Heimir Jónsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær unnusti minn, sonur, bróðir, mágur,
barnabarn og frændi,
ANDRI LÍNDAL JÓHANNESSON
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
föstudaginn 1. mars kl 11.00. Blóm og
kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Unicef-samtökin
og björgunarsveitir.
Viktoría Dröfn Ólafsdóttir
Ingigerður Jakobsdóttir Jóhannes Líndal Brynjólfsson
Brynjólfur Líndal Jóhannesson Katherine Rose Jónsson
Jakob Líndal Jóhannesson Herdís Steinarsdóttir
Birna Guðmundsdóttir Jakob Helgason
Þórunn Þráinsdóttir
og bræðrabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN PÁLL INGIBERGSSON
pípulagningameistari,
til heimilis að Furugerði 1, Reykjavík,
lést á LSH Fossvogi fimmtudaginn
21. febrúar. Útförin fer fram frá Kópa-
vogskirkju miðvikudaginn 6. mars kl. 13.00.
Ingibjörg Jónsdóttir Þorsteinn Friðþjófsson
Guðrún Kolbeins Jónsdóttir Eyjólfur Kolbeins
Þuríður Jónsdóttir Sigurður Heimir Sigurðsson
Málfríður Jónsdóttir
Sigurður Jónsson Olga Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
STEFÁN HERMANNS
Álfaskeiði 64, Hafnarfirði,
lést þann 19. febrúar á gjörgæsludeild
Landspítalans. Hann verður jarðsunginn
í Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 1. mars
klukkan 15.00.
Ástvinir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR
Hjúkrunarheimilinu Eir,
andaðist miðvikudaginn 20. febrúar. Útför
hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
fimmtudaginn 28. febrúar kl. 13.00.
Kristín María Kjartansdóttir Ingólfur Hauksson
Hannes Jóhannsson Beth Moore
barnabörn og barnabarnabörn. Opnun nýs hátæknifyrir-
tækis verður fagnað á föstu-
daginn í anddyri Háskólans
í Reykjavík. Það heitir Synd-
is og markmið stofnenda
þess er að efla framfarir í
upplýsingaöryggi á Íslandi.
Theódór Ragnar Gíslason er
einn þeirra. Hinir eru Árni
Már Harðarson, Rich Smith,
Hörður Ellert Ólafsson og
Ýmir Vigfússon. „Við erum
með teymi á heimsmæli-
kvarða, sem sameinar fræði-
lega þekkingu, praktíska
reynslu og alþjóðatengsl,“
segir Theódór Ragnar sem
segir þjónustu Syndis nýjung
hér á landi. „Aðferðin snýst
á vissan hátt um að brjóta
hugbúnaðarkerfi í þeim til-
gangi að bæta þau. Finna
villur í hugbúnaði eða kerf-
um og sannreyna þær villur,“
lýsir hann. „Þetta eru sömu
aðferðir og hakkarar beita
í raun og veru,“ bætir hann
við.
En eru Íslendingar með-
vitaðir um hættur sem að
tölvukerfum þeirra stafa?
„Nei, öryggismál á Íslandi
eru mjög mismunandi en
yfirleitt eru þau slök, jafn-
vel hriplek. Það kemur fólki
á óvart. En þegar fyrirtæki
eða stofnun lendir í einhverju
er við horfið fljótt að breyt-
ast. Hvernig er líka hægt að
verja sig gegn einhverju sem
menn þekkja ekki ofan í kjöl-
inn?“ svarar hann.
Spurður hvort Syndis selji
fólki einhverja pakka til að
setja inn í kerfin hjá sér,
svarar Theódór Ragnar:
„Nei, við seljum engan
hugbúnað. Það eina sem við
gerum er að taka út búnað
sem við erum beðnir að kíkja
á. Við rýnum í örgjörvana.“
gun@frettabladid.is
Rýna í
örgjörvana
Theódór Ragnar Gíslason, sérfræðingur
í tölvuöryggi, er einn af stofnendum nýs
fyrirtækis sem nefnist Syndis.
THEÓDÓR RAGNAR Öryggis-
mál á Íslandi eru mismunandi
en yfirleitt eru þau slök,“ segir
hann.