Fréttablaðið - 27.02.2013, Síða 16
FÓLK|LYFTUR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
AQUADOM
Á Radisson Blu hótelinu í Berlín í
Þýskalandi er hið sérstæða Aqua-
Dom. Þar fer gegnsæ lyfta í gegnum
25 metra hátt fiskabúr. Í búrinu eru
984 þúsund lítrar af sjó og í kring-
um 1.500 fiskar af 50 tegundum.
Þrír til fjórir kafarar vinna við að
gefa fiskunum á degi hverjum.
UPP OG NIÐUR,
NIÐUR OG UPP
FURÐUR HEIMSINS Á vefsíðunni www.popularmechanics.com er að finna
lista yfir flottustu, skrítnustu, hraðskreiðustu og stærstu lyftur heims.
BURJ KHALIFA
Byggingin Burj Khalifa í
Dubai er hæsta bygging
heims. Í byggingunni eru 57
lyftur og meðal þeirra er að
finna hraðskreiðustu lyftu
heims. Hún hífir gesti á 65
km hraða á klukkustund upp
620 metra en það tekur að-
eins 35 sekúndur ef farið er í
einum rykk. Lyfturnar í Burj
Khalifa eru á tveimur hæðum
og útbúnar fínum og flottum
afþreyingargræjum.
ANDERTON-BÁTALYFTAN
Eina elstu bátalyftu heims er að finna í Cheshire á Englandi. Lyftan
hífir skip úr einni vatnshæð í aðra. Anderton-bátalyftan var byggð
árið 1875. Henni var lokað árið 1983 en hún var endurgerð árið
2002.
HALLANDI LYFTA
Luxor-hótelið í Las Vegas er
merkilegt enda í laginu eins og
píramídi. Þessi lögun varð til
þess að hanna þurfti lyftu sem
gæti flutt fólk á milli hæða í 39
gráðu halla.
Helgi hefur starfað við lyftur frá árinu 1994 þegar hann hóf störf hjá Bræðrunum Ormsson. Árið
2000 stofnaði hann svo Íslandslyftur
sem síðar keyptu lyftuhlutann af Bræðr-
unum Ormsson. „Hér starfa 10 manns
með mikla og fjölbreytta reynslu við að
setja upp nýjar lyftur ásamt almennri
lyftuþjónustu,“ segir Helgi.
ALLAR STÆRÐIR OG GERÐIR
Íslandslyftur er með fjölbreytt úrval
lyfta fyrir bæði einstaklinga, fyrirtæki
og húsfélög, allt frá sætislyftum fyrir
stiga til hefðbundinna og stórra vöru-
lyfta. „það hefur töluvert aukist að fólk
sé að taka sætislyftur í stiga í stað þess
að flytja þegar það er orðið fótalúið. Í
flestum tilfellum er það hagkvæmari
kostur en að selja íbúðina og kaupa aðra
á jarðhæð.“
Pallalyftur frá sænska fyrirtækinu
Aritco eru góð lausn þar sem aðstæður
eru óhefðbundnar og rými lítið fyrir
hefðbundna fólkslyftu. „Við höfum sett
slíkar lyftur upp víða, bæði fyrir sveitar-
félög og einstaklinga. Þær eru með sjálf-
berandi lyftustokk og taka ekki nema um
2-3 daga í uppsetningu.“
ÖFLUG ÞJÓNUSTA
Íslandslyftur sinna allri almennri lyftu-
þjónustu, s.s. sölu á öllum útfærslum
nýrra lyfta, endurnýjun á eldri lyftum
auk eftirlits, viðhalds- og viðgerðar-
þjónustu. „Inni í þessu er þjónusta á um
400 lyftum víðs vegar um land.“
Nýlega hreppti fyrirtækið stórt verk-
efni í nýjan hluta Leifsstöðvar sem á að
endurnýja. „Þar sjáum við um allar lyftur
og stiga, svo það er mikið að gera og bjart
fram undan hjá okkur.“
Um þessar mundir er Helgi að stand-
setja nýtt skrifstofurými í húsnæði fyrir-
tækisins að Vesturhrauni 3, Garðabæ.
„Ætli það verði ekki klárt einhvern tímann
í næsta mánuði og þá vil ég hvetja ein-
staklinga sem eru að íhuga lyftu eða stiga-
kaup að líta við hjá okkur. Við tökum vel á
móti öllum.“
Á heimasíðu fyrirtækisins, www.islands-
lyftur.is, má einnig skoða vöruúrvalið.
LYFTU ÞÉR UPP MEÐ
ÍSLANDSLYFTUM
ÍSLANDSLYFTUR KYNNA Hjá Íslandslyftum ehf. fást fólkslyftur og rúllustigar af
öllum stærðum og gerðum. Helgi Skúli Helgason eigandi segir mikinn uppgang
hjá fyrirtækinu en nýlega var tilboð þess í stóra framkvæmd í Leifsstöð valið.
MIKIL REYNSLA
Helgi hefur starfað við
í lyftugeiranum síðan
1994 og hefur því tölu-
verða reynslu af lyftum.
Auk þess starfar hjá Ís-
landslyftum fjölbreyttur
hópur fagmanna.
MYND/VALLI