Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 17
3 | FÓLK | LYFTUR
SKY TOWER
Lyftan í Sky Tower í Auckland á Nýja-Sjálandi
er ekki fyrir lofthrædda. Í hverri af fjórum
lyftum turnsins er glergólf og því ótrúleg upp-
lifun fyrir gesti að þjóta upp og niður hina 70
hæða háu byggingu.
BAR UM BORÐ Í LYFTU
Í einu stærsta skemmtiferðaskipi heims, MS
Oasis of the Seas, er að finna lyftu sem ber
heitið Rising Tide. Því er haldið fram að lyftan
sé sú eina í heiminum sem bjóði upp á bar.
Alls rúmast 35 farþegar í lyftunni milli tveggja
hæða. Ferðin tekur átta mínútur og því nægur
tími til að panta eins og einn kokkteil.
FALKIRK-HJÓLIÐ
Falkirk-hjólið í Skotlandi flytur báta á milli Union-síkisins og Forth og
Clyde-síkisins. Það var tekið í notkun árið 2002 og er eina snúnings-
bátalyftan í heiminum. Tíu vökvamótorar snúa hjólinu og tekur það
um átta mínútur að fara heilan hring. Á meðan snýst vatnsfyllt karið
sem bátarnir liggja í á sama hraða en í öfuga átt.
SANTA JUSTA
LYFTAN
Raul Mesnier de Ponsard,
lærlingur Gustave Eiffel,
hannaði Santa Justa-lyft-
una í Lissabon í Portúgal.
Hún er í nýgotneskum stíl
og var gufuknúin þegar hún
var byggð árið 1902. Hin
130 metra háa lyfta er nú
rafknúin en útlitið hefur feng-
ið að halda sér. Á hundrað
ára afmæli lyftunnar 2002
var hún friðuð og gerð að
minnismerki.
BÍLAGEYMSLA Á
MÖRGUM HÆÐUM
Við hlið aðalstöðva Volkswagen í
Wolfsbug í Þýskalandi stendur ein
fullkomnasta bílageymsla heims.
Þegar búið er að smíða bíl í VW-
verksmiðjunni ber færiband bílinn
átta hundruð metra leið í undir-
göngum yfir í sextíu metra háan
turn. Sjálfvirk lyfta tekur bílinn af
færibandinu og kemur honum fyrir í
lausu stæði. Þar sem bílnum er ekki
ekið neitt í þessu ferli stendur núll á
kílómetramælinum þegar viðskipta-
vinir fá bílinn í hendurnar.
LYFTA Í FJALLSHLÍÐ
Bailong-lyftan í Wulingyuan í
Zhangjiajie í Kína er afar sérstök.
Hún er talin vera hæsta lyfta heims
sem er utandyra. Lyftan liggur upp
með kletti sem teygir sig um 300
metra upp í loftið.
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 26. október 6. mars
Boltinn á Xinu 977
– alla virka daga kl. 11 - 12
Fyrirtækið RÍ Verslun og Rými – Ofnasmiðjan Brautarholti 26 er nýlega
sameinað fyrirtæki sem byggir
á grunni tveggja rótgróinna
fyrirtækja. RÍ og Rými hafa yfir
að ráða mikilli og langri reynslu
í sölu, uppsetningu og þjónustu
á lyftum og tengdum búnaði.
Slagorð fyrirtækisins á þessu
sviði, „aðgengi fyrir alla“, undir-
strikar áherslur þess, enda
sérhæfir fyrirtækið sig í lyftum
sem og öðrum tæknibúnaði
sem bætir aðgengi að fyrirtækj-
um, stofnunum og heimilum.
VEITA VANDAÐA RÁÐGJÖF
Aðgengi fólks með skerta
hreyfigetu er mjög ábótavant
á Íslandi. Fyrirtækið leggur sín
lóð á vogarskálarnar til þess að
bæta úr þessu. Á undanförnum
áratugum hefur það sérhæft
sig í hjólastólalyftum, stigalyft-
um, sætislyftum, sjálfvirkum
opnunarbúnaði sem og ýmsum
lausnum þar að lútandi.
Reynsla þess á þessu sviði
nýtist þegar kemur að hönnun
nýbygginga með aðgengismál
í huga sem og við breytingar
eldra húsnæðis, þannig að það
sé aðgengilegt fyrir ALLA. RÍ
Verslun og Rými – Ofnasmiðjan
veitir vandaða ráðgjöf og kem-
ur auga á hagkvæmar og góðar
lausnir með tilliti til kostnaðar,
pláss og notagildis. Ef aðgeng-
ismálum er ábótavant þá leysir
það málið af fagmennsku.
AÐGENGI FYRIR ALLA
– SLAGORÐ RÍ OG RÝMI
RÝMI OG RÍ KYNNA RÍ Verslun og Rými – Ofnasmiðjan hafa sameinast. Þau
hafa meðal annars sérhæft sig í hjólastóla-, stiga- og sætislyftum.