Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 18
FÓLK|| FÓ K | Á FERÐINNI4
Þeir Þór og Einar hafa um árabil safnað, gert upp og tekið í gegn Ferguson-dráttarvélar. „Við ólumst
upp á sveitabænum Gilá í Vatnsdal fyrir
norðan. Árið 1958 keypti faðir okkar
nýjan Ferguson sem var eina tækið fyrir
utan rússajeppa sem var notaður þar í
40 ár. Fyrir um 15 árum síðan fórum við
bræðurnir svo að viða að okkur vélum
og eigum núna 11 stykki,“ segir Þór
Marteinsson um áhuga þeirra bræðra á
Ferguson-dráttarvélum.
BYLTING Í LANDBÚNAÐI
Með tilkomu Ferguson-vélanna breyttist
margt á íslandi og segir Þór marga til-
búna að halda heiðri þeirra á lofti. „Til-
gangur okkar bræðra er að halda saman
sögu Ferguson á Íslandi frá 1949-1959 en
flestar okkar vélar eru frá þeim tíma. Að
mínu mati varð ein mesta framför í land-
búnaðarsögu Íslendinga með tilkomu
Ferguson-dráttarvéla, þá meina ég hvað
varðar sjálfsbjargar viðleitni bænda.
Með Ferguson var hægt að fá fjölda
aftanítækja; plóg, sláttuvél og önnur
tæki sem segja má að hafi leyst hestinn
af hólmi.“
FERGUSON-FÉLAGIÐ
Á Íslandi er starfandi Ferguson-félag með
yfir 170 starfandi meðlimi. Félagskapurinn
er mjög virkur og á heimasíðu félagsins,
http://www.ferguson-felagid.com/, eru
fréttir settar inn reglulega. „Til gangur
félagsins er að ná saman þeim fjölda aðila
sem hafa áhuga á Ferguson-dráttarvélum
á Íslandi.“ Þá hefur Ferguson-félagið í
forystu Sigurðar Skarphéðinssonar, og
Bjarni Guðmundsson, höfundur bókanna
„Alltaf er Farmall fremstur“ og „Og svo
kom Ferguson“, tekið höndum saman við
Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri. „Við
höfum farið um um mestallt land og kynnt
Ferguson-félagið og Bjarni hefur fjallað
um vélvæðingu á Íslandi. Næst á dagskrá
er að halda fund á á Vesturlandi.“
FERGUSON FERÐ Í VÆNDUM
Í vor er áætlað að félagsmenn haldi í hóp-
ferð til Danmerkur þar sem meðal annars
stærsta Ferguson-safn í Norður-Evrópu
verður heimsótt. Á safninu eru um 200
Ferguson-dráttarvélar og er um helmingur
þeirra uppgerður. Áhugasömum um ferð
þessa er velkomið að hafa samband við
Ferguson-félagið.
MASSEY FERGU-
SON TEKINN Í GEGN
OG SVO KOM FERGUSON Bræðurnir Þór og Einar Marteinssynir hafa dálæti
á Massey Ferguson-dráttarvélum og eiga ellefu slíkar. Dálætið er tilkomið úr
sveitinni þar sem þeir ólust upp en á bænum var aðeins ein dráttarvél sem
faðir þeirra keypti árið 1958. Hún var notuð alla hans búskapartíð.
Vatn í gírkassa er „staðalbúnaður“ í
Ferguson.
Hér er svo gripurinn að verki loknu.
Vatnsdælan var tekin í gegn og ný
reimskífa sett í.
Búið að lakka allt í bak og fyrir og byrjað
að skrúfa saman.
Allt þrifið og rifið í sundur og grunnað
það sem þarf að grunna. Svona leit vélin út í upphafi.
STOLTIR AÐ VERKI
LOKNU
Hér eru bræðurnir
Einar (til vinstri) og Þór
Marteinssynir ásamt ný-
gegnumtekinni Massey
Ferguson.
1
4
2
5
3
6
Skipholti 29b • S. 551 0770
Parísartízkan 50 ára.
50%afsláttur af vel völdum
vörum í verslun.
SUÐURLANDSBRAUT 24 | 108 REYKJAVÍK
SÍMI 516 0100 | WWW.HEIMILIOGSKOLI.IS
HEIMILI OG SKÓLI
ÓSKA EFTIR TILNEFNINGUM
TIL FORELDRAVERÐLAUNA 2013
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka
foreldra verða afhent miðvikudaginn 15. maí 2013,
kl. 14.00, við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu.
Tilnefningar sendist á rafrænan hátt með því að fylla
út eyðublað á heimiliogskoli.is. Síðasti skiladagur
tilnefninga er 1. maí 2013.
Boltinn á Xinu 977
– alla virka daga kl. 11 - 12
MorGUn
þÁTturinn
Ómar alLa
vIRka dagA
kl. 7