Fréttablaðið - 27.02.2013, Qupperneq 20
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● fermingar
Kalkúnabollur með
eggaldin ídýfu
500 g alifuglahakk
Lúka brauðraspur
Lúka hveiti
4 rauðar paprikur, hakkaðar
3 gulrætur, hakkaðar
1 laukur, hakkaður
Þumall engifer, raspaður
Lúka fersk steinselja, söxuð
2-4 hvítlauksrif, marin
1 msk. paprikukrydd
1 tsk. cayennepipar
Salt og pipar eftir smekk
Öllu blandað saman og mótað í
bollur, sett á ofnplötu og bakað
í um 20 mínútur við 180°C.
Eggaldin-ídýfa
4 eggaldin
Hálf krukka sólþurrkaðir tómatar
1-2 hvítlauksrif, pressuð
Safi úr ½-1 sítrónu
Smá sjávarsalt og nýmalaður pipar
Skerið eggaldinið í tvennt og stingið með gaffli í
hýðið á nokkrum stöðum. Setjið það með sárið
niður á bökunarplötu í 200°C heitan ofn og bakið
í 30-45 mín. allt eftir stærð. Þegar eggaldinið er
bakað þá er skafið innan úr því og sett í skál með
hvítlauk, sítrónusafa, sólþurrkuðum tómötum,
salti og pipar.
Polentukaka með parmask-
inku, brie og rauðrófuhum-
mus
250 g polentumjöl
1 lítri kjúklingasoð
80 g rifinn parmesanostur
80 g rjómaostur
Hitið kjúklingasoð að suðu,
stráið þá polentumjölinu út
í pottinn og pískið stöðugt.
Sjóðið í um það bil 10 mín-
útur og hrærið í með sleif. Setjið svo po-
lentuna í muffins-form ( álform) best
er að fylla formið að 1/3 svo kökurnar
verði ekki of þykkar og kælið svo.
Rauðrófuhummus
250 g rauðrófur
1 hvítlauksgeiri
Skvetta sítrónusafi
2 msk. tahini
1 msk. cumin
Bakið rauðrófurnar í 200°C heitum ofni í um eina
til eina og hálfa klukkustund. Kælið og skrælið þær
svo. Rauðrófur og allt annað hráefni sett í mat-
vinnsluvél og unnið saman þar til maukið er orðin
silkimjúkt. Smakkið til með salti og pipar.
Takið svo polentuna úr formunum, setjið hálfa
skinkusneið á hverja köku, sneið af brie osti og te-
skeið af rauðrófuhummus. Má skreyta líka með
ferskum kryddjurtum.
Brauðsnittur með saltfisksmús
1 snittubrauð – gerir um það bil 20 snittur
Ólífuolía
Bakaraofn stilltur á 220°C, undir- og yfirhita.
Brauðin eru sneidd í mátulega þykkar sneiðar, dá-
lítið á ská þannig að sneiðarnar verði stærri. Sneið-
unum er raðað á ofnplötu klædda bökunarpappír
og hver og ein sneið pensluð með ólífuolíu. Brauð-
in bökuð við 220 gráður í nokkrar mínút-
ur þar til þau eru orðin passlega gullin-
brún. Þá eru þau tekin út og leyft að
kólna.
Saltfisksmús
230 g útvatnaður, beinlaus
og roðflettur saltfiskur
1 stór bökunarkartafla
700 ml mjólk
1 lítið búnt kóríander
1 hvítlauksgeiri – marinn
200 ml ólífuolía
Salt og pipar
Sjóðið kartöfluna í vatni. Hitið mjólk að suðu, og
sjóðið saltfiskinn í mjólkinni í um 10 mínútur. Takið
pottinn af hitanum og látið kólna aðeins í pottin-
um. Sigtið soðið frá og setjið fiskinn í matvinnslu-
vél, geymið mjólkursoðið. Setjið kóríander og hvít-
lauk í matvinnsluvélina og hrærið saman. Setjið
ólífuolíuna hægt og rólega út í og setjið svo 1/3 af
mjólkinni varlega saman við. Smakkið til með salti
og pipar. Setjið fallega með skeið ofan á hverja
snittu. Hægt að skreyta með klettasalati og ólífum.
Brauðsnittur með tómötum og basil
Þessar eru klassík og klikka aldrei
1 snittubrauð – gerir um það bil 20 snittur
Ólífuolía
Bakaraofn stilltur á 220°C, undir- og yfirhita.
Brauðin eru sneidd í mátulega þykkar sneiðar, dá-
lítið á ská þannig að sneiðarnar verði stærri. Sneið-
unum er raðað á ofnplötu klædda bökunarpappír
og hver og ein sneið pensluð með ólífuolíu. Brauð-
in bökuð við 220°C í nokkrar mínútur þar til þau
eru orðin passlega gullinbrún. Þá eru þau tekin út
og leyft að kólna.
Tómatsalat
2 tómatar
Búnt af fersku basil
2 hvítlauksgeirar, kramdir
Ólífuolía
50 g rifinn parmesanostur
Salt og pipar
Skerið kross í tómatana og dýfið þeim út í
sjóðandi vatn í um það bil 15 sekúndur.
Setjið þá svo strax í ískalt vatn. Afhýð-
ið svo tómatana og kjarn hreinsið. Sker-
ið svo í litla bita og kryddið með
salti, pipar, basil og
ólífuolíu og par-
mesanosti.
Setjið fallega
á brauðsnitt-
urnar.
Heiðdís Hauksdóttir
matreiðslumaður starfar á
leikskólanum Aðalþingi þar
sem enginn sykur er notaður
í matargerðina. Allur matur er
unninn frá grunni eftir því sem
hægt er.
„Ef ég væri að ferma myndi ég
velja smáréttahlaðborð. Það er
hægt að raða saman ýmsum smá-
réttum á smekklegan hátt. Ég
hef séð um fermingarveislu um
miðjan dag þar sem boðið var upp
á ýmsa smárétti. Það er sitt lítið
af hverju og við allra hæfi,“ segir
Heiðdís, sem starfaði lengi á veit-
ingastaðnum La Primavera. Hún
matreiðir núna á leik skólanum
Aðal þingi í Kópavogi þar sem ein-
ungis er boðið upp á holla rétti
fyrir börnin með áherslu á græn-
meti og ávexti. „Börnin fá nýbakað
brauð á hverjum degi. Tvær elstu
deildirnar hafa hlaðborð að velja
úr. Þau velja matinn sjálf og eru
hvött til að smakka allt,“ segir
Heiðdís.
„Með góðu skipulagi er hægt
að útbúa mat í fermingarveislu á
auðveldan hátt enda þurfa upp-
skriftir ekki að vera flóknar til að
vera góðar. Margt er hægt að gera
nokkrum dögum áður. Síðan er
klassískt að hafa kransakökur og
fermingartertu með kaffinu. Það
eru ótal hugmyndir að smáréttum,
eins og til dæmis alls kyns kjöt-
bollur, brauðsnittur, kjöt, fiskur eða
grænmeti á spjóti, fyllt egg, salöt,
brauð og pestó, fylltar pönnukökur,
carpaccio, fyllt grænmeti, pylsur,
pastasalöt, eggjakökur, mini pitsur
og svo mætti lengi telja,“ segir
Heiðdís sem býður hér uppskriftir
að nokkrum girnilegum smáréttum
fyrir fermingarveisluna. - ea
Glæsilegt smáréttahlaðborð
Heiðdís Hauksdóttir matreiðslumaður
eldar hollan mat ofan í leikskólabörn
á daginn. Hér gefur hún frábærar
uppskriftir að smáréttum á fermingar-
borðið. MYNDIR/DANÍEL
Kalkúnabollur sem
hitta alltaf í mark.
Sjónmælingar (tímapantanir): Optical Studio Smáralind, s. 528 8500 og Optical Studio Keflavík, s. 4213811
Umgjörð: Lindberg Spirit Umgjörð: Chrome Hearts
Með öllum margskiptum
glerjum fylgir annað par
frítt í þínum styrkleika.
Láttu þetta ekki framhjá
þér fara.
Ritstjórn: Vera Einarsdóttir | Höfundar efnis: Elín Albertsdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Starri Freyr Jónsson, Sólveig Gísladóttir, Víðir Guðmundsson og Þórdís Lilja Gunnarsdóttir |
Forsíðumynd: Stefán Karlsson | Fyrirsætur: Thelma Karen Jónsdóttir og Haraldur Steinar Skúlason. | Auglýsingar: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 og Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512-5462 |
Útgefandi: 365 miðlar, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal