Fréttablaðið - 27.02.2013, Side 22
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● Fermingar
ÍSAFOLD 1889
Fermingargjöf
Ljómandi falleg og eiguleg er IÐUNN öll frá
upphafi, 6 bindi, í skrautbandi á 16-17 kr. Ein-
stök bindi 3-4 kr. Fæst í bókaverzlun Ísafoldar-
prentsmiðju.
ÞJÓÐÓLFUR 1897
Beztu fermingargjafir eru góð vasaúr. Nýjar
birgðir af beztu Anker- og Cylinder-úrum, í
mjög fallegum gull- og silfurkössum, handa
körlum og konum. Lægsta verð mót borgun
út í hönd; fleiri ára ábyrgð. Einnig stórt úrval
af úrfestum og kapselum af öllum tegundum.
Hjá Guðjóni Sigurðssyni.
VESTRI 1908
Mikið úrval af ferm-
ingargjöfum svo sem
úr, úrfestar, brjóstnálar,
armbönd, hálsfestar og
ótal margt fleira.
Tilbúnir KARLMANNA-
FATNAÐIR.
Guðríður Árnadóttir.
REYKJAVÍK 1907
Fermingargjafir.
Watermann‘s eða Hayden‘s lindarpennar eru
góð fermingargjöf hvort heldur fyrir pilt eða
stúlku. »Kátur piltur« eftir Bjørnson (lkr. 25au.)
og »Fjórar sögur« eftir sama (65au.) eru líka
vel fallnar fermingargjafir (sbr. fermingar-
söguna í Kátum pilti).
Jón Ólafsson Laufásvegi 5.
REYKJAVÍK 1900
Í bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar fæst:
Sálmabókin nýja, 5. útgáfa í skrautbandi, gylt
í sniðum. Kostar 6 kr. Fæst einnig í ódýrara
skrautbandi á 4 og 5 kr. Er einkar hentug í
fermingargjafir.
VÍSIR 1919
Margar góðar fermingargjafir og þar á meðal
sjálfblekingar.
Versl. „Goðafoss“ Laugav. 5. Sími 436.
NORÐRI 1909
Nýkomið í bókaverzlun Kr.
Guðmundssonar:
Ág. Bjarnason: Austurlönd.
Jón Trausti: Smásögur.
Jónas Guðlaugsson: Dagsbrún.
Bjarni Jónsson frá Vogi: Blíðvindi.
Jón Ólafsson: Stafróf viðskiftafræðinnar.
Sögusafn Þjóðviljans 15. og 16. ár.
Rímur af Gísla Súrssyni.
Rímur af Svoldarbardaga.
Rímur af Álaflekk.
Ennfremur úrval af útlendum skemmti- og
fræðibókum eftir ýmsa fræga höfunda. Sér-
staklega skal bent á bækur mjög hentugar til
fermingargjafa.
VÍSIR 1912
Bestu fermingargjafir eru góð reiðhjól, fást
til 1. maí með tækifærisverði hjá Þórði Jóns-
syni úrsmið, Aðalstræti 6.
HLJÓMLISTIN 1912
Fortepiano frá Hornung & Möller, konungl.
hirðsala í Kaupmannahöfn, seljast með
ágætustu afborgunarkjörum: Mega borgast
með jöfnum afborgunum á 35-37 mánuðum.
Betri fermingargjöf handa söngelskum
unglingum get ég ekki hugsað mér.
Virðingarfyllst
Jón Pálsson organisti
við Fríkirkjuna í Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ
1915
Smekklegar fermingar-
gjafir, vandaðir íslenzkir
smíðisgripir úr gulli og
silfri. Víravirkisbelti.
Jón Sigmundsson
gullsmiður.
MORGUNBLAÐIÐ 1935
Kommóðurnar skrautmáluðu eru hentugasta
fermingargjöfin. Ódýrar en nytsamar.
Húsgagnaverslun Kristjáns Siggeirssonar,
Laugavegi 13.
FÁLKINN 1930
Fermingargjafir.
Hálsfestar, margar
gerðir og litir.
Armbönd. Greiðu-
veski.
Lítil samkvæmis-
veski. Ilmvatn í
stórum og litlum
glösum.
Ilmvatnssprautur
o.m.fl.
Burstasett í fallegum litum er kærkomnasta
fermingargjöfin.
Hjúkrunardeildin, Austurstræti 16. — Símar
60 & 1060.
DAGBLAÐ 1925
BRAMPTON Fálkahjól,
sérstaklega hentug
til fermingargjafa.
Hefir reynslan sýnt,
að þau eru ein af
allra beztu tegund-
um, sem til landsins
hafa fluzt, enda seld
með 5 ára ábyrgð frá
verksmiðjunni.
Hin ágætu „BRENNA-
BOR“-reiðhjól, sem við höfum einkaumboð á
hér á landi, fáum við með næstu skipum.
Reiðhjólaverksm. „Fálkinn“.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 1920
Með síðustu skipum hefi eg fengið mjög
mikið af vörum, heppilegum til sumar- og
fermingargjafa, t.d.: Prismakíkira afar góða,
Gilletterakvélar og blöð í þær, beztu rak-
vélar heimsins. Allskonar gull- og silfurskraut,
silfur- og plettborðbúnað. Göngustafi með
fílabeinshandfangi. Beztu úrtegund sem flyst
til landsins, í gull-, silfur- og nikkelkössum.
Pallasaumavélarnar ágætu, sem við seldum
svo mikið af fyrir stríðið. Sömuleiðis hefi eg
fengið vekjaraklukkur, reyklituð gleraugu, og
margt fleira.
Með mikilli virðingu.
Yðar Halldór Sigurðsson.
VÍSIR 1929
Stór útsala í Klöpp
Grammófónar seljast nú á útsölunni fyrir
gjafverð. Munið að grammófónn er kærkomin
fermingargjöf. Góðar plötur kosta hjá okkur
kr. 2,95.
Gefið barninu yðar verulega vandað reiðhjól
í fermingargjöf. — Við höfum þessi heims-
frægu „WITTER“ reiðhjól. — Góðir greiðsluskil-
málar.
VÍSIR 1929
Fermingargjafir
í fjölbreyttu úrvali, svo sem:
Silkislæður
Vasaklútakassar
Hálsfestar
Skrautöskjur
Silkinærfatnaður
Treflar
Manicurekassar
Seðlaveski
Buddur
Hanskar
Verslunin Egill Jacobsen.
SIGLFIRÐINGUR 1935
Beztu fermingargjafirnar eru myndavélar á kr.
12,00, sem fást aðeins í Lyfjabúðinni.
MORGUNBLAÐIÐ 1940
Kærkomnar fermingargjafir:
BORÐLAMPAR
LESLAMPAR
Skermabúðin Laugaveg 15.
FÁLKINN 1940
Bezta og kærkomnasta fermingargjöfin er
fallegt Drengjatjald með súlum og hælum frá
okkur.
GEYSIR VEIÐARFÆRAVERSLUN
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 1945
Enginn er í vandræðum með fermingar-
gjöfina, eftir að hafa litið á útskornu askana í
Verzlun G. Sigurðssonar & Co. Grettisgötu 54.
f e rm inga rg j a f i r na rBeztuGamlar auglýsingar gefa góða og jafnframt skemmtilega sýn á fermingargjafir í gegnum tíðina. Gluggað var í gömul blöð á www.tímarit.is og hér fyrir neðan eru tekin nokkur dæmi af auglýsingum um vinsælar fermingargjafir á fyrri hluta tuttugustu aldar.