Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 24
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● Fermingar
Tónlistarmaðurinn Egill Ólafs-
son fermdist í Háteigskirkju
2. apríl árið 1966 hjá séra Arn-
grími Jónssyni. Við báðum Egil
að rifja upp fermingardaginn.
„Það er næstum hálf öld
síðan, en eitthvað situr eftir. Ég
man að ég fór með orðin; „Syng-
ið Drottni nýjan söng, syng-
ið drottni öll lönd,“ rifjar hann
upp og segist ekki hafa velt því
mikið fyrir sér hvort hann ætti
að fermast eða ekki. „Þetta var
löngu fyrir þannig vangavelt-
ur, held ég. Börn gerðu það sem
fyrir þau var lagt. Það kom ekk-
ert annað til greina en að láta
ferma sig. Ég var næstfremst-
ur, næst minnstur og ég velti
fyrir mér því sem ég átti að
segja við prestinn, það var í
hálfum hljóðum. Svo var það
trúar játningin, en við vorum
alltaf að læra utanbókar í skól-
anum, svo þetta var ekki stórmál,“ segir hann.
Spurður af hverju hann sé svo brúnaþungur á fermingarmyndinni
segist hann hafa verið alvarlega þenkjandi yfirleitt. „Ég var alvar-
legur ungur maður, nánast alltaf.“ Egill segir þó hafa verið líf og fjör
í veislunni á eftir, sem var fjölmenn.
„Dagurinn var blautur, mig minnir að þetta hafi verið annar
í páskum, en veislan var fjölmenn og ég og félagi minn Jóhann
Kristins son, síðar bassaleikari í Flowers, lékum
fyrir dansi og skemmtum. Þá man ég að systir mín,
Ragnheiður, söng nokkur Jenka-lög en hún sér-
hæfði sig í þeim. Jenkað var þá vinsælt og allir tóku
þátt í dansinum. Það voru margir í veislunni, allur
frændgarðurinn. Ég fékk svolítinn pening sem ég
keypti mér svefnpoka og prímus fyrir, og Omega-
úr fékk ég að gjöf, svo fór ég með mömmu til Köben
og keypti aðgöngumiða á Marlene Dietrich í Glass-
salen í Tívolí. Ekki vissi ég þá að ég ætti eftir að standa á því sviði
síðar. Marlene hafði fágaða sviðsframkomu, ég man að hún reykti á
sviðinu og söng Raindrops Keep Falling on My Head, með fallegum
þýskum hreim. Hún var flott, það sagði mamma.“
Var alvarlegur ungur
maður, nánast alltaf
Egill Ólafsson rifjar upp fermingardaginn 2.
apríl árið 1966.
Egill Ólafsson
Kirkjur landsins reyna að gera
fermingarfræðsluna skemmtilega og
aðgengilega fyrir fermingarbörnin.
Þótt áherslan sé á kristna trú snýst
fræðslan líka um að hjálpa unglingum
að vera góðir þjóðfélagsþegnar.
Fermingarfræðslan hefur tekið mikl-
um breytingum undanfarna áratugi. Áður
fyrr var meiri áhersla lögð á utanbókar-
lærdóm, en fræðslan í dag tekur meira
mið af samveru barnanna og áherslu á að
þroska persónulega færni þeirra. Ólafur
Jóhann Borgþórsson, prestur í Seljakirkju,
segir þó grunninn í fræðslunni vera svip-
aðan milli ára en meiri áhersla sé lögð á að
gera fræðsluna skemmtilega og aðgengi-
lega. „Það hefur til dæmis tíðkast víða að
hefja fermingarundirbúninginn áður en
skóli hefst á haustin. Þá fara hópar saman í
ferð í Vatnaskóg þar sem hluti fræðslunnar
fer fram. Þar fá líka krakkarnir og prestur-
inn þeirra að kynnast betur í afslöppuðu um-
hverfi í upphafi, sem hefur góð áhrif á fram-
haldið.“
Ólafur nefnir einnig að þótt fermingar-
fræðslan snúist fyrst og fremst um kristna
trú sé ekki síður lögð áhersla á ýmsan annan
gagnlegan fróðleik fyrir unglingana. „Við
í Seljakirkju höfum til dæmis fengið toll-
vörð og fíkniefnahund í heimsókn og ræðum
skaðsemi fíkniefna. Sums staðar fá krakk-
arnir góða gesti til að ræða eitt og annað, til
dæmis um sjálfsmynd þeirra og mikilvægi
þess að unglingar standi með ákvörðunum
sínum. Því þótt áherslan sé á kristna trú þá
snýst fermingarfræðslan ekki síst um hvað
það þýðir að vera kristinn einstaklingur og
bara almennt góður þjóðfélagsþegn.“
ÞÁTTTAKA Í KIRKJUSTARFINU
Sem fyrr segir er orðið algengt að
fermingar fræðslan hefjist áður en form-
legt skólastarf hefst á haustin. Ólafur segir
svo misjafnt eftir kirkjum hvernig því starfi
er háttað í upphafi en yfir veturinn hittist
börnin yfirleitt einu sinni í viku. „Liður í
fræðslunni er að þau fái að kynnast starfi
kirkjunnar og er því gert ráð fyrir að þau
taki þátt í starfi kirkjunnar og í unglinga-
starfinu svo þeir kynnist öllum hliðum
kirkjustarfsins. Þetta eru þó engin ósköp.
Tíu messur eru lágmark en flestir mæta
oftar.“
Skólabekkirnir eru nær alltaf saman í
fermingarfræðslu og hefur það lítið breyst
milli ára. Ólafur segir það vera hentuga
stærð auk þess sem krökkunum líði yfirleitt
betur þannig. „Þau þora frekar að vera þau
sjálf ef þau eru í kunnuglegu umhverfi með
öðrum krökkum sem þau þekkja og standa
þannig sterkari að vígi.“
SPYRJA KREFJANDI SPURNINGA
Spurður hvort unglingar í dag séu mikið
að velta trúnni fyrir sér segir Ólafur þá
vera mjög meðvitaða um hvað þau eru að
gera. „Maður hefur lengi heyrt þessa mýtu
um að krakkar fermist gjafanna vegna en
ég mundi aldrei þora að benda á einhvern
og segja að hann sé að fermast pakkanna
vegna. Í fermingarfræðslunni eru gerðar
miklar kröfur um vinnu og verkefnaskil auk
þess sem þau taka próf í lokin. Þannig finnst
mér þau upp til hópa ákaflega meðvituð um
hvað þau eru að ganga í gegnum. Ferming
þykir ekki jafn sjálfsagður hlutur eins og
áður fyrr og í dag taka þau frekar upplýsta
ákvörðun um ferminguna og það sem fylgir
í kjölfar hennar. Flestir fara þá leið að ferm-
ast og þannig skapast miklar umræður um
ferminguna. Krakkar eru líka ófeimnir við
að spyrja krefjandi spurninga ef þeir skilja
ekki allt. Þau eru líka gagnrýnin sem er
alveg frábært. Trúin er einu sinni þannig
að ekki er hægt að skýra allt út með rökum
og þá vilja þau fá frekari svör.“
Reglulega sprettur fram umræða um
hvort hækka ætti fermingaraldurinn. Ólafur
er ekki sammála þeim skoðunum og finnst
núverandi fyrirkomulag mjög hentugt. „Það
sem er svo heppilegt við þennan aldur er að
krakkarnir þora að vera þeir sjálfir og segja
sína meiningu. Þeir eru ekki enn komnir á
hörðustu unglingsárin þegar þeir eru að
breytast svo mikið. Auk þess er fræðslan
líka gott veganesti inn í unglingsárin. Börn-
in eru að velta fyrir sér lífinu og dauðan-
um og mörg þeirra hafa upplifað hann. Þess
vegna held ég að þetta sé góður aldur. Auð-
vitað eru rök með og á móti þessu. Svona
hefur þetta að minnsta kosti verið og mér
finnst engin ástæða til að breyta þessu.“
Gott veganesti inn í unglingsárin
„Krakkarnir þora að vera þeir sjálfir og segja sína meiningu,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, prestur í
Seljakirkju. MYND/STEFÁN
DALSHRAUN 8RB RÚM 220 HAFNARFIRÐI SÍMI 555 0397WWW.RBRUM.IS
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ 8 - 18 OG Á LAUGARDÖGUM FRÁ 10 - 14
FERMINGARGJÖF
raraðir hefur Ragnar
Björnsson ehf. framleitt
rúm af öllum stærðum og
gerðum, allt eftir óskum
skiptavina.
andi stífleika er hægt að
velja allt eftir þyngd þeirra sem á dýnunum
hvíla. Þú velur rétta hæð á rúmið þitt og stígur
létt framúr. Mikið úrval af öllum tegundum
rúma.
Hafið samband við sölumenn okkar fyrir
frekari upplýsingar.
Be
tri
S
to
fa
n
Í á
við
Mismun
32.000 kr. 49.000 kr. 59.900 kr.
Kistill Rúm 90x200 - Verð fráKistill
Fylgir hverju rúmi
RB rúm hlaut á dögunum alþjóðleg verðlaun
á International Quality Crown Awards
í London,fyrir vandaða framleiðslu og
markaðssetningu. Þetta eru stór verðlaun en
það er bara eitt fyrirtæki í hverri grein sem fær
þessi verðlaun ár hvert.
7.500 kr.
RB RÚM