Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 26
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR8 ● fréttablaðið ● fermingar
Yfirlýsingagleði
eiginmannsins varð til þess
að fjölskylda í Grindavík
ákvað fyrir átta árum að
stofna reikning og byrja að
safna fyrir fermingu elsta
sonarins.
„Þegar maðurinn minn var
rétt innan við þrítugt sat hann
á kaffistofunni í vinnunni og
heyrði vinnufélaga sína barma
sér yfir kostnaði sem fylgir
fermingu. Hann skellti því þá
fram að fólk hefði nú vitað í fjór-
tán ár að líkur væru til að barnið
fermdist og hefði því haft nægan
tíma til að undirbúa sig. Fátt
varð um svör en þegar Róbert
kom heim sama dag sagði hann
við mig: „Við verðum að stofna
reikning“.“
Þannig lýsir Valgerður Freyja
Ágústsdóttir upphafinu að því
að hún og eiginmaður hennar,
Róbert Ragnarsson, stofnuðu
sérstakan reikning til að safna
fyrir stórum atburðum í lífi sona
þeirra Ragnars Ágústs og Fróða,
sem á þessum tíma voru fjögurra
og sjö ára gamlir. Síðan þá hefur
einn bæst í hópinn, hinn fjögurra
ára Egill.
Ragnar Ágúst verður fermdur
í vor og með þessari fyrir-
hyggjusemi á fjölskyldan fyrir
öllum þáttum fermingarinnar,
veislunni , myndatökunni ,
fötunum og gjöfinni. „Við
áætlum að allur kostnaður vegna
fermingar miðað við 100 manna
veislu, með gjöfinni sé allt að
500 þúsund krónur,“ lýsir Val-
gerður. Veislan verður í sal og
boðið verður upp á smárétti.
„Við verðum ekki með aðkeypta
veisluþjónustu heldur ætlum að
kaupa suma smáréttina og gera
aðra frá grunni.“
En hversu mikið lögðu þau
til hliðar í hverjum mánuði
öll þessi ár? „Við byrjuðum á
fimm þúsund krónum á mán-
uði og svo bara eftir því hvað
við gátum hverju sinni,“ segir
Valgerður en sjóðurinn hefur
einnig nýst í ýmis legt annað
eins og sumarbúða dval ir
drengjanna auk þess sem hann
kom sér vel fyrir utanlandsferð
fjölskyldunnar síðasta sumar.
Valgerður segir afar góða til-
finningu fylgja því að eiga fyrir
fermingunni. „Maður getur leyft
sér að hlakka til og gleðjast og
hafa ekki of miklar áhyggjur af
kostnaði,“ segir hún og hvetur
fólk til að byrja snemma að
spara. „Þetta er fyrst og fremst
spurning um að stofna sér-reikn-
ing, jafnvel stuttu eftir fæðingu
barnanna. Upphæðirnar þurfa
ekki að vera háar. Flestir geta
séð af eitt til tvö þúsund krónum
og svo er hægt að auka sparnað-
inn þegar tækifæri gefst.“
Þau Valgerður og Róbert eru
ekki hætt að spara eftir ferm-
inguna í vor enda önnur ferming
eftir þrjú ár og svo aftur eftir tíu
ár. Þá er þessum sjóði einnig ætlað
að mæta kostnaði vegna bílprófa
drengjanna sem kosta skildinginn
í dag. „Við höldum því bara áfram á
sömu braut enda orðin vön þessu,“
segir Valgerður glaðlega. - sg
Spöruðu í átta ár fyrir fermingunni
Valgerður og Róbert með sonum sínum Ragnari Ágústi, Fróða og Agli.
Mörgum reynist erfitt að vera mið-
depill athyglinnar á fermingar-
daginn. Í kirkjunni njóta ferm-
ingarbörnin stuðnings í fjöldan-
um en þegar kemur að því að segja
nokkur orð í veislunni, hvort sem
fermingar barnið ætlar að halda
ræðu eða bara bjóða gesti vel-
komna, stendur það eitt og athygli
allra beinist að því. Hjartað getur
farið að hamast, lófarnir svitna og
hálsinn verður þurr.
Eftirfarandi ráð má nýta sér til að
losna við sviðsskrekkinn.
1. Æfðu það sem þú ætlar að segja.
Það er alltaf betra að vera vel undir-
búin/n hvort sem þú ætlar að syngja
eða bara segja nokkur orð. Skrifað
niður það sem þú ætlar að segja
og æfðu þig í nokkra daga fyrir
veisluna þar til þú kannt það upp á
tíu.
2. Hreyfðu þig. Hreyfing losar um
kvíða og stress og því væri gott að
stunda einhverja hreyfingu, sem þú
hefur gaman af, þrisvar til fjórum
sinnum í viku fyrir stóra daginn. Til
dæmis göngutúrar, hlaup eða hjóla-
túrar. Það gæti jafnvel verið sniðugt
að fara í stuttan göngutúr að morgni
fermingardagsins til að róa aðeins
taugarnar.
3. Notaðu öndunaræfingar til að
ná tökum á stressinu. Andaðu inn
um nefið í tvær sekúndur. Andaðu
svo frá þér gegnum munninn í
fjórar sekúndur. Endurtaktu þetta í
nokkrar mínútur þar til þú er orðin
pollróleg/ur. Gerðu þessa öndunar-
æfingu rétt áður en þú ætlar að
koma fram til að róa þig niður og
hægja á hjartslættinum.
4. Æfðu þig í að sjá ánægjulega
mynd fyrir þér í huganum, sem
tengist ræðunni sem þú ætlar að
halda. Lokaðu augunum og sjáðu til
dæmis fyrir þér gestina brosa til þín
og klappa fyrir þér.
Burt með
sviðsskrekkinn
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
I
C
E
6
28
90
0
2/
13