Fréttablaðið - 27.02.2013, Síða 28
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR10 ● fréttablaðið ● fermingar
Hárgreiðslan er eitt af því
sem þarf að vera í lagi á
fermingardaginn. Við fengum
Bryndísi Rán Magnúsdóttur,
hársnyrti á Hár Expo, til að
sýna okkur það vinsælasta í
fermingargreiðslum.
„Tískan í fermingar greiðslunum
fer vítt og breitt í ár,“ segir
Bryndís Rán Magnúsdóttir, hár-
snyrtir á Hár Expo á Laugavegi,
en við fengum hana til að segja
okkur frá því vinsælasta í hár-
tískunni fyrir ferminguna.
„Fyrir stelpurnar sem vilja
hafa hárið slegið eru það krullur
og mjúkir liðir. Núna er líka
mikið um fléttur og mikið
um fléttu-uppgreiðslur fyrir
fermingarnar, til dæmis fastar
fléttur upp úr hnakkarótinni.
Það er aðeins verið að setja blóm
í hárið og svo er fallegt að setja
litla steina í flétturnar en það er
ekki eins mikið um skraut í hárið
og hefur verið,“ segir Bryndís
og rifjar upp þegar hún sjálf
fermdist.
„Ég fermdist árið 1999 og
var eins og blómabeð,“ segir
hún hlæjandi. „Þá voru líka
miklu meiri greiðslur en í dag,
nú er þetta allt miklu léttara og
náttúrulegra.
Hjá strákunum er núna mikið
um rokkabillý-greiðslur fyrir
ferminguna. Það var meira um
lubba árin áður en nú eru margir
strákar með stutt í hliðunum
og meira hár ofan á kollinum,
það sama á við um fermingar-
strákana. Til að ná rokkabillý-
greiðslunni er notað gel í hárið
og það er ekkert að því að
strákarnir blási hárið svolítið
upp.
Ég segi oft við strákana sem
ég er að klippa að þeir megi
alveg nota hárlakkið hjá mömmu
sinni og hárblásarann og mér
finnst strákarnir vera farnir að
hafa meira fyrir hárinu á sér.
En þeir vilja kannski ekki viður-
kenna það.“
Bryndís segir krakkana
ekki endilega lita á sér hárið
fyrir ferminguna en oft geri
þau hressilega breytingu eftir
ferminguna, til dæmis með
nýrri klippingu og ýktum lita-
breytingum. - rat
Rokkabillý, liðir og fléttur
Frjálslegar fléttur og uppsett hár með fastri fléttu í hnakk-
anum verða vinsælar fermingargreiðslur í ár. Fyrir þær sem
vilja hafa hárið slegið eru það krullur og mjúkir liðir sem ráða.
Módel: Thelma Karen Jónsdóttir. MYND/STEFÁN
Rokkabillýhár verður vinsælt hjá strákunum fyrir ferminguna.
Bryndís segir strákana mega vera ófeimna við að nota gel og
hárlakk og blása svo hárið á sér upp. Módel: Haraldur Steinar
Skúlason.
Sigríður Kristjana Þorkelsdóttir, sem ávallt er
kölluð Sísí, fermist 23. mars og segist spennt
fyrir því að ganga að altarinu, hitta alla ættingja
sína í veislunni og opna pakkana.
Mikið hefur verið að gera hjá Sísí í vetur. Hún æfir
fótbolta og spilar á píanó en hefur þess í milli gengið
til prests eins og önnur fermingarbörn. „Séra Örn
Bárður Jónsson og séra Sigurður Árni Þórðarson úr
Neskirkju hafa verið með okkur. Við horfðum á mynd
um Jesú, lærðum um skírnina, kærleikann og fleira
tengt trúnni. Mér finnst ég hafa lært meira um Guð og
Jesú,“ segir Sísí um fermingarfræðsluna.
Aðspurð hvernig hún hafi ástundað trúna segir hún
trúaruppeldið hafa verið mjög hefðbundið. Hún hafi
farið í kirkjur á hátíðisdögum og eftir tilfellum. „Ég
fer með bænir á hverju kvöldi og hef gert lengi, þar á
meðal er faðirvorið.“
Fermingin verður í Neskirkju klukkan 13.30 en
veisla á Hallveigarstöðum í sal Kvenréttindafélag Ís-
lands seinna um daginn. „Mamma og pabbi voru með
mér í að undirbúa veisluna. Þau komu með hugmyndir
og ég sagði þeim hvað ég vildi. Skreytingarnar verða
lime-grænar og á boðstólum verður bayonne-skinka,
kökur og villisveppasúpa,“ sem er í uppáhaldi hjá Sísí.
„Svo fengum við kerti og gestabók með skrautskrift
hjá nunnunum í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði.“
Sísí er búin að velja sér fermingarföt og fer í mynda-
töku á Ljósmyndastofu Erlings nokkru fyrir fermingu.
„Ég valdi mér fallega dökkbláan kjól úr Dúkku húsinu
og skó úr Kaupfélaginu. Ég veit samt ekki hvernig
myndatakan verður, er ekkert búin að ákveða.“
Tilhlökkunin vex eftir því sem nær dregur ferm-
ingunni enda ekki á hverjum degi sem maður ferm-
ist. „Ég er spennt fyrir því að hitta fjölskyldu mína og
vini, en mörg búa úti á landi svo ég hitti þau ekki svo
oft. Einnig verður skrítið að ganga inn í kirkju fulla
af fólki sem er að horfa. Svo hlakka ég líka til þess að
opna gjafirnar.“ Margir vinir Sísíar fermast sama dag
sem setur smá skugga á daginn. „Það er svolítið leiðin-
legt að komast ekki í veislurnar hvert hjá öðru.“ - vg
Vaxandi tilhlökkun
„Ég er spennt fyrir því að hitta fjölskyldu mína og vini,
en margir þeirra búa úti á landi. Einnig verður skrítið að
ganga inn í kirkju fulla af fólki sem er að horfa,“segir Sísí um
ferminguna. MYND/ANTON
Skartgripir • skartgripatré • veggmyndir
rúmföt og fleira.
Góð verð.
Firði Hafnarfirði Sími 555 6655 - 662 5552 • kokulist@kokulist.is
Hannaðu fermingarkortið
á oddi.is
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
NÝR
END
URB
ÆTT
UR
VEF
UR