Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 38
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR20 ● fréttablaðið ● fermingar
Svandís Lóa Ágústsdóttir er fimm
barna móðir í Ólafsvík. Hún á fjórar
dætur og einn son sem öll hafa
fermst í þjóðbúningum.
Svandís Lóa og eiginmaður hennar, Þór-
arinn Steingrímsson, eru reynslu mikil
þegar kemur að fermingum. Þau hafa
búið í Ólafsvík frá árinu 2001 en höfðu
áður búið í Borgarnesi, Búðardal og í
stuttan tíma á höfuðborgar svæðinu.
„Okkur líkar mjög vel hér í Ólafsvík
og höfum ekki hugsað okkur að flytja
framar,“ segir Svandís, sem starfar í
saltfiskvinnslu. Þórarinn er hins vegar
sjúkraflutningamaður.
Svandís er alin upp í Borgarnesi og var
aðeins þrítug þegar hún fermdi fyrsta
barnið. „Ég hef aldrei verið stressuð fyrir
fermingu barnanna. Ég var með heitan
mat í öll skiptin og leigði sal svo þetta var
ekki mikið mál. Þar fyrir utan ákvað ég,
þegar elsta dóttir mín fermdist, að hún
myndi klæðast þjóðbúningi og þeim sið
hélt ég síðan fyrir öll börnin. Sonurinn er
yngstur en hann fermdist um hvítasunnu
árið 2011,“ segir Svandís Lóa og hann er
eina barnið sem enn er heima.
„Elsta dóttirin var fermd í Borgarnesi,
tvær dætur í Búðardal og þau yngstu hér
í Ólafsvík. Það var ekki mikill munur á
því að ferma á þessum stöðum nema sá að
fermingarbörnin voru mjög fá í Búðardal
en mörg hér. Kirkjan í Ólafsvík er auk
þess bæði stærri og betri en í Dölunum.
Við héldum veisluna í veiðihúsi í Dölunum
sem var skemmtilegt en hérna höfum við
haldið veislu í Gufuskálum og í félags-
heimilinu Klifi.“
Svandís segir að þar sem margir gestir
komi langt að hafi aldrei komið annað
til greina en að bjóða upp á heitan og
kaldan mat. „Þegar gestirnir aka heim
eru þeir saddir,“ segir hún. „Ég hugs-
aði þetta út frá sjálfri mér því þegar við
förum í veislu í Reykjavík er voða gott
að koma beint í mat,“ bætir hún við. „Ég
útbjó matinn sjálf í fyrstu ferminguna
en síðan hef ég kosið að kaupa hann. Síð-
ast vorum við með hlaðborð með köldum
réttum en einnig var boðið upp á heitan
rétt. Það gátu því allir fengið eitthvað við
sitt hæfi.“
Svandís segist bjóða nánustu fjölskyldu
og þeim sem hún hefur mest samskipti
við. „Það hafa verið um áttatíu manns í
fermingarveislum hjá okkur. Mér hefur
sýnst að fermingarveislur úti á landi
séu svipaðar og í bænum, töluvert í þær
lagt. Þegar sonurinn fermdist langaði
mig til að við yrðum öll í þjóðbúningum,
við leigðum búninga svo það væri fram-
kvæmanlegt. Það var ákaflega skemmti-
legt og vakti mikla athygli. Yfirleitt er
alltaf fermt um hvítasunnuna og þá er oft
gott veður.“
Svandís segist vera skipulögð að eðlis-
fari og vill gera alla hluti með góðum fyr-
irvara. „Ég var alltaf með fermingar tertu
og kransaköku og lagði mikla áherslu á
að gera veisluborðið fallegt,“ segir hún.
„Hins vegar fannst mér aldrei ástæða til
að kvíða veislunni, miklu heldur að hafa
þetta ánægjulegt.“ - ea
Fermdust öll í þjóðbúningum
Karen Ýr á fermingardaginn sinn með Snæfellsjökul
í baksýn.
Ferming yngsta barnsins um hvítasunnu 2011. Öll fjölskyldan í þjóðbúningum, frá vinstri Guðrún Rakel,
Telma Björg, Þórarinn, Arnar Ingi, Svandís, Karen Ýr og Ellen Ósk.
Boðorðin tíu
Kristnir menn hafa
boðorðin tíu að leiðarljósi
og ekki úr vegi að rifja
þau upp í blaði
sem þessu.
1. Ég er Drott-
inn, Guð þinn,
þú skalt ekki
aðra Guði hafa.
2. Þú skalt ekki leggja
nafn Drottins, Guðs
þíns, við hégóma.
3. Minnstu þess að
halda hvíldar-
daginn heilagan.
4. Heiðra skaltu föður þinn og
móður.
5. Þú skalt ekki mann deyða.
6. Þú skalt ekki drýgja hór.
7. Þú skalt ekki stela.
8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni
gegn náunga þínum.
9. Þú skalt ekki girnast hús
náunga þíns.
10. Þú skalt ekki girnast konu
náunga þíns, þjón, þernu
né nokkuð það sem náungi
þinn á.
V O N · H O P E · S P E S
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna selur falleg
hálsmen og armbönd í fjáröflunarskyni með
áletruninni VON á þremur tungumálum, íslensku,
ensku og latínu. Tilvalin fermingargjöf!
Hálsmenin og armböndin eru til sölu á heimasíðu
Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, www.skb.is
og í síma 588 7555. Boðið er upp á heimsendingu.
Verð aðeins:
Armbönd: 3.000 kr.
Stálhálsmen: 3.500 kr.
Silfurhálsmen: 4.000 kr.
OKKAR VON
Hjálpum félagsmönnum að halda í sína von.