Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2013 21fermingar ● fréttablaðið ●
Með fermingu eru skuldbind-
ingar foreldra og guðforeldra
í skírn staðfestar. Fermingar-
barnið játar kristna trú með því
að fara með trúarjátninguna.
Um trúarjátninguna má finna
eftirfarandi upplýsingar á vef
þjóðkirkjunnar.
Postullega trúarjátningin
er að stofni til skírnarjátning
kirkjunnar í Róm sem rekja má í
heimildum til annarrar aldar.
Heitið „postullega trúar-
játningin“ byggist á helgisögu
um að postularnir tólf hafi
hinn fyrsta hvítasunnudag sagt
fram kristna trú undir leiðsögn
heilags anda og hver lagt sitt
af mörkum. Átti Pétur að hafa
byrjað og hinir postularnir
haldið áfram hver með sína
setningu, uns postullega trúar-
játningin lá öll fyrir.
Heimild: www.kirkjan.is
Trúarjátningin
Það kostar að ferma og halda veislu.
Með lagni má þó halda kostnaðinum
innan viðráðanlegra marka. Helstu
kostnaðarliðir eru fermingarföt, hár-
greiðsla eða klipping, fermingar-
myndataka og fermingargjöf. Hægt
er að reyna að gera góð fatakaup á út-
sölum eftir jól. Fermingarmynda-
taka kostar oft í kringum þrjátíu þús-
und og þá eru nokkrar myndir inni-
faldar. Þó er víða hægt að fá bara eina
fermingar mynd fyrir lítið og sé fær
ljósmyndari í fjölskyldunni má jafnvel
blikka hann. Strákaklipping kostar
innan við fimm þúsund en stelpu-
klipping og greiðsla ásamt prufu-
greiðslu getur kostað á bilinu tíu til
tuttugu þúsund. Kostnaður við gjöfina
er svo afar breytilegur.
Restin veltur á umfangi veislunnar.
Sé leigður salur getur það verið ansi
stór biti en víða má þó finna ódýr
húsakynni. Hafi fólk aðgang að sal
félagasamtaka eða á vinnustað getur
það komið sér vel sem og að leigja
safnaðarheimili. Hagstæðast er þó að
halda veisluna heima.
Þá eru það veitingarnar. Sé allt að-
keypt kostar það sitt en síðustu ár
hefur heimabaksturinn sótt í sig
veðrið og með hjálp ættingja og vina
er fljótlegt að fylla veisluborð. Saman-
lagt hleypur kostnaður við fermingu
þó óhjákvæmilega á tugum þúsunda.
Best er því að sýna fyrirhyggju og
stofna sérstakan fermingarreikning.
Gott að sýna fyrirhyggju
Veganesti
út lífið
Fermingardagurinn er dýrmæt
samverustund. Þann fagra dag er
fermingarbarnið umvafið ást og
nærveru stórfjölskyldu sinnar og
vina sem samfagna fermingunni
í sannri gleði. Efst í hjörtum allra
gesta eru óskir um bjarta framtíð
og farsæla ævi fermingarbarnsins.
Sá góði hugur er fjársjóður
sem fanga ætti í veganesti um
ókomna tíð.
Handhægt er að setja fram
fallega bók með óskrifuðum
blöðum undir heillaóskir frá ferm-
ingardeginum, þar sem ömmur
og afar, mamma og pabbi,
frændur og frænkur, systkini og
vinir geta ritað sín bestu heilræði
frá eigin hjarta. Í veganesti á lífsins
braut getur fermingarbarnið sótt
aftur og aftur í þær gersemar sér
til ánægju, hvatningar eða hug-
hreystingar. AKUREYRI S:4627800. SMÁRALIND S:5659730. KRINGLUNNI S:5680800.
21980,-
JAKKAFÖT VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI
VERÐ FRÁ