Fréttablaðið - 27.02.2013, Side 40
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR22 ● fréttablaðið ● fermingar
Undirbúningur fyrir fermingu
tvíburanna Helga Tómasar
og Arnars Steins hefur gengið
vel. Fermingarhópurinn fór
saman í Vatnaskóg og átti
góða stund saman. Nú styttist í
stóra daginn og drengirnir eru
orðnir spenntir.
Tvíburarnir Helgi Tómas og Arnar
Steinn Helga synir munu ferm ast
saman í Lindakirkju í mars og
halda sameiginlega veislu með
ættingjum og vinum. Fermingar-
undirbúningurinn hjá bræðrunum
hófst síðasta haust, áður en skóla-
starfið byrjaði, og hefur hann að
sögn þeirra verið bæði skemmti-
legur og fróðlegur. Helgi Tómas
segir hann hafa gengið vel hjá
þeim bræðrum og áhugavert
hafi verið að kynnast kristinni
trú betur. „Það hefur komið mér
á óvart hvað við þurfum að læra
mikið. Mér fannst skemmtilegast
þegar fermingarfræðslan byrjaði í
haust með fjórum skiptum daglega
áður en skólinn byrjaði og svo var
auðvitað mjög gaman þegar allur
hópurinn fór saman í Vatnaskóg.“
Arnar Steinn tekur undir orð
bróður síns og segir undirbún-
inginn hafa gengið vel. „Ég bjóst
við að þetta yrði frekar auðvelt
og það reyndist vera rétt. Undir-
búningurinn hefur gengið mjög
vel. Mér fannst líka skemmti legast
þegar við hittumst í haust áður en
skólinn byrjaði. Þá vorum við að
hitta alla krakkana eftir sumarið
og leikir í dagskránni voru
skemmtilegir. Svo var líka mjög
gaman að fara með krökkunum í
Vatnaskóg. Þar voru skemmtilegir
stjórnendur og svo kom séra Guð-
mundur Karl úr Lindakirkju og
heimsótti okkur.“
ÁHUGINN MISMIKILL
Að sögn þeirra bræðra er misjafnt
hversu mikið jafnaldrar þeirra
velta trúnni fyrir sér. Helgi Tómas
segist halda að fáir þeirra hugsi
mikið um trúna þótt eflaust geri
það einhverjir. „Sjálfur hugsa ég
stundum um Guð og það er bara
ágætt.“ Arnar Steinn segir það vera
mjög misjafnt hvað krakkar velti
mikið fyrir sér trú málum. „Við
erum samt öll að stefna saman að
því markmiði trúarinnar að ferm-
ast og það á eftir að lifa í minn-
ingu okkar þegar við verðum orðin
fullorðin.“ Samhliða fermingar-
fræðslunni hafa bræðurnir sótt
átta messur í vetur með hópnum
sínum auk þess sem þeir hafa sótt
eina tónleika í Lindakirkju.
FORELDRAR SKIPULEGGJA VEISLUNA
Stóri dagurinn er laugardaginn 16.
mars þegar drengirnir fermast í
Lindakirkju hjá Guðmundi Karli
Brynjarssyni sóknarpresti. Báðir
hafa þeir spáð mikið í veisluna
og gjafirnar eins og flestir aðrir
fermingarkrakkar. „Ég held að ég
muni fá sjónvarp frá ömmu og afa
því þau hafa gefið öllum barna-
börnunum sínum sjónvarp í ferm-
ingargjöf,“ segir Helgi Tómas.
„Ég kom með mínar eigin óskir
um hvað ég vildi hafa í veislunni
því auðvitað er þetta mín veisla en
mamma og pabbi sjá að sjálfsögðu
um aðalskipulagninguna.“ Arnar
Steinn hefur líka hugsað mikið um
hvað hann fær í fermingargjöf.
Hann hefur komið með nokkrar
óskir varðandi veisluna en segist
meðvitaður um að það séu aðallega
mamma og pabbi sem skipuleggja
hana. Bræðurnir eru sammála því
að jafnaldrar þeirra velti mikið
fyrir sér fermingargreiðslunni og
fermingarfötunum. „Já, auðvitað
gerum við það, maður verður nú
að líta vel út!“
MARGT HEFUR BREYST
Þetta verður fyrsta ferming for-
eldra drengjanna, þeirra Elínborg-
ar Guðnadóttur og Helga Braga-
sonar. Þau hafa eðlilega fylgst vel
með undirbúningnum í vetur og
eru ánægð með hann. „Það hefur
ýmislegt breyst frá því við vorum
ung. Nú er nálgunin mikið meira
stíluð inn á samveru barnanna
og færni þeirra í að virða hvert
annað. Einnig er lögð áhersla á að
börnin skilji og skynji mannlegt
eðli og umhverfið, sem er bara
mjög gott mál. Talsvert mikið
hefur breyst frá því þegar við
fermdumst þegar mest var lagt
upp úr utanbókarlærdómi, svo sem
á boðorðunum og trúarjátning-
unni, ásamt lestri á trúar textum
og sálmum.“ - sfj
Skemmtilegur
undirbúningur
Tvíburarnir Helgi Tómas og Arnar Steinn Helgasynir fermast í Lindakirkju í mars.
MYND/GVA
Ýmis raftæki og tölvur hafa verið vin-
sælar fermingargjafir undanfarin ár
og skal engan undra. Úrvalið hefur
aldrei verið meira af spjaldtölvum og
snjallsímum auk þess sem fartölvur
eru enn vinsælar. Símar og tölvur eru
alltaf eftirsóttar gjafir og til í ýmsum
verðflokkum.
Útilegubúnaður getur verið
hentug gjöf sem notuð er í
fjölda ára. Hægt er að gefa
vandað tjald, hlýjan svefn-
poka, gönguskó, bakpoka
og ýmsan fatnað. Annar úti-
vistar- og íþróttabúnaður á líka
vel við í kringum fermingar og
eru skíði eða snjóbretti til valdar
gjafir. Góð götu- og fjallahjól eru
líka skemmtilegar gjafir og línu-
skautar eru holl og skemmtileg
íþrótt fyrir sumarið. Veiðistöng
og nauðsynlegustu veiðigræjur
gætu líka vakið lukku.
Fermingin er tilvalin til að
skipta um húsgögn í herbergi ferm-
ingarbarnsins. Unglingsárin eru fram
undan auk þess sem smekkur barnsins
breytist á þessum tíma. Ofarlega á
lista margra fermingarbarna er því
nýtt rúm og skrifborð.
Þótt bækur séu ekki endilega efstar
á óskalista margra fermingarbarna
eru þær bæði góðar og gagnlegar
gjafir. Orðabækur nýtast í mörg ár,
jafnvel áratugi, og nú fást þær margar
í netáskrift. Fermingar börnin munu
læra að meta klassísk íslensk skáld-
verk seinna meir. Undanfarin ár hafa
bókaforlög gefið út nokkur skáld-
verk sama rithöfundar í einni bók sem
hentar sérstaklega vel til gjafa.
Utanlandsferðir eru sjálfsagt ofar-
lega á óskalista margra fermingar-
barna, hvort sem það ferðast eitt eða í
fylgd foreldra. Sum fermingarbörn fá
ferð á fótboltaleik með uppáhalds liðinu
sínu en tónleikar með uppáhaldshljóm-
sveitinni gætu frekar hentað öðrum.
Tungumálanámskeið erlendis gætu
líka ratað í fermingarpakkann.
Vinsælar fermingargjafir
20% afsláttur
af mjúkum ferðatöskum
í millistærð
FERMINGAR-
TILBOÐ
Verð áður 13.100 kr.
Verð nú 10.480 kr.
Dreifingaraðili: YD Design Heildverslun • Fossháls 5-9 • 110 Reykjavík • Sími: 587 9393 • Yd.is
Söluaðilar:
Reykjvík:
Hárgreiðslustofan Touch
Hárgreiðslustofan Zoo.is
Blómahönnun
OXXO butik
Femin
Urðarapótek
Landsbyggðin:
Verslunin Bjarg Akranesi
Póley Vestmannaeyjum
Blómsturvellir Hellissandi
GS Akureyri
Hárgreiðslustofan Mensí Selfossi
Sveitabúðin Sóley
Hárgreiðslustofan Flikk Höfn í Hornafirði