Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 46
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR28 ● fréttablaðið ● fermingar
Óðinn Eldon Ragnarsson
tók þá ákvörðun síðastliðið
haust að fermast ekki. Hann
ætlar í staðinn að læra að kafa
ásamt móður sinni Móeiði
Helgadóttur. Hina nýfundnu
kunnáttu ætla þau að nýta á
sólarströnd í sumar.
„Ég er viss um að guð sé ekki til
í raunveruleikanum,“ segir Óðinn
um ástæðu þess að hann ætli ekki
að fermast nú í vor. Hann viður-
kennir að krökkunum í bekknum
þyki ákvörðunin skrítin. „Já, þau
eru alltaf að spyrja af hverju?“
Óðinn telur að allir í sínum ár-
gangi ætli að fermast nema hann.
Tveir ætli að fermast borgaralega.
En hann hefur ekki langað til að
fermast borgaralega eins og þau?
„Nei, ég hafði ekki mikinn áhuga
á því,“ svarar Óðinn og bætir við
að vissulega hafi gjafirnar heillað.
„En ekki nógu mikið.“
Í stað fermingar og ferming-
arveislu ætlar Óðinn í ferðalag
með móður sinni, Móeiði Helga-
dóttur, í sumar. Hvað finnst henni
um að sonurinn ætli ekki að ferm-
ast? „Mér finnst mjög gott að
hann taki þessa ákvörðun sjálfur
því það er mun auðveldara að taka
hana ekki,“ segir Móeiður. Hún
bætir við að ákvörðunin um ferða-
lagið hafi eiginlega byggst á mis-
skilningi. „Ég var búin að benda
honum á að það væri ekki skylda
að fermast og að hann gæti tekið
ákvörðun um það. Sagði honum
líka að ef hann myndi fermast
gæti einn möguleikinn verið að
fara í ferðalag í stað þess að halda
veislu. Hann krafði mig síðan um
það hvort við myndum ekki fara
í ferðalag burtséð frá því hvort
hann fermdist eða ekki. Og mér
fannst það bara ágætis hugmynd,“
segir Móeiður og hlær.
Þau mæðginin hafa ekki ákveð-
ið hvert skuli halda í sumar en
stefnan er sett á sólarströnd þar
sem auðvelt er að kafa. „Mig
hefur alltaf langað til að læra
að kafa,“ segir Óðinn en hann og
Móeiður hafa þegar keypt bækur
um köfun og borgað köfunarnám-
skeið sem þau ætla að nýta sér í
vor. „Eftir það fáum við einhvers
konar skírteini og þá getum við
leigt okkur búnað og kafað sjálf
upp að einhverju dýpi,“ útskýrir
Móeiður.
Óðinn segist hlakka mikið til.
En finnst honum ekkert asna-
legt að vera einn á ferðalagi
með mömmu? „Nei, það er bara
gaman,“ svarar hann keikur. - sg
Ætlar ekki að fermast
Óðinn Eldon Ragnarsson og mamma hans Móeiður Helgadóttir ætla að læra að kafa og fara í ferðalag í sumar. MYND/ANTON
Þórður Hallgrímsson æfir
frjálsar íþróttir með Ármanni
og spilar á trompet í
Skólahljómsveit Austurbæjar.
Þann 14. apríl næstkomandi
mun hann stíga á svið í
Háskólabíó og fermast
borgaralegri fermingu hjá
Siðmennt.
Þórður byrjaði að æfa frjálsar
íþróttir með Ármanni fyrir einu ári
og hefur verið í trompetnámi síð-
ustu fimm ár hjá Guðmundi Haf-
steinssyni í Tónskóla Sigursveins.
„Frjálsu íþróttirnar eru hlaup,
stökk og trompetinu fylgja alls kyns
tímar, eins og tónfræði og svo er ég
líka í Skólahljómsveit Austurbæjar,“
segir Þórður sem fermist borgara-
legri fermingu í apríl næstkomandi.
„Það kom reyndar aldrei neitt
annað til greina hjá mér en að ferm-
ast borgaralegri fermingu,“ segir
Þórður og bætir svo við. „Í fyrsta
lagi er ég trúleysingi og svo fannst
mér það sem Siðmennt er að gera
spennandi og mig langaði að prófa.
Ég sé ekki eftir því. Ég held líka að
það sé mikilvægt að krakkar hafi
val.“
Hjá Siðmennt hefur Þórður
mætt einu sinni í viku frá áramót-
um þar sem kennslustjóri Siðmennt-
ar, Jóhann Björnsson, hefur frætt
hann ásamt fermingar systkinum.
„Fræðslan er mjög fjölbreytt. Við
höfum verið að læra um gagn-
rýna hugsun og svoleiðis. Svo kom
til okkar maður frá Tollgæslunni
í Reykjavík um daginn og sagði
okkur frá þeirra störfum og fræddi
okkur um skaðsemi fíkniefna. Á
næstunni munu svo fleiri koma í
heimsókn.”
Fermingarathöfn Siðmenntar
verður haldin í Háskólabíói þar sem
fjöldi unglinga mun taka við viður-
kenningarskjölum auk þess sem
haldnar verða ræður. „Þetta verð-
ur með afar hátíðlegu sniði og við
tökum á móti viðurkenningarskjali.
Með því erum við ekki að skrá okkur
í nein samtök eða söfnuð heldur er
þetta bara þessi kynning og fræðsla
sem við fáum.“ Nokkrir munu koma
fram með atriði og er Þórður farinn
að huga að því. „Já, það getur verið
að ég spili á trompet inn í athöfninni
og fæ ég sennilega einhvern undir-
leik með.“
Veislan verðu svo í tónlistar-
skólanum Tóney í Síðumúla. „Afi
minn á tónlistarskólann þar sem
veislan verður og ég held að það
verði svona um 80 manns í henni.“
Þórður kemur að skipulagningu
veislunnar og segir ekkert sleppa
inn í veisluna öðruvísi en að hann
ákveði. „Þetta verður hefðbundið;
kökur og kaffi. Svo getur verið að ég
spili á úkúleleið mitt fyrir gestina.“
Fermingarfötin eru klár en Þórð-
ur nældi sér í þau í janúar. „Þetta
eru frekar flott jakkaföt úr Herra-
fataverslun Kormáks og Skjaldar.“
Það er því ekki við öðru að búast en
að hann verði flottur á fermingar-
daginn.
Gjafir eru oft mikið í umræðunni
þegar kemur að fermingum og oft
ein stór gjöf sem foreldrar gefa.
„Ég veit ekkert hvað ég fæ og vil
helst ekkert vita það. Það er miklu
skemmtilegra að það komi á óvart.“
- vg
Fermist hjá
Siðmennt
Nokkrir munu koma fram með atriði á fermingarathöfninni og er Þórður farinn að
huga að því. „Já, það getur verið að ég spili á trompetinn og fæ sennilega einhvern
undirleik með,“ segir Þórður ánægður. MYND/GVA
Það er skemmtilegt að eiga minningar
um fermingardaginn á einum stað. Hægt
er að fá skrautskrifaðar möppur hjá
nunnunum í Karmelklaustrinu í Hafnar-
firði. Í möppuna skrifa gestir nafnið sitt
en auk þess er hægt að geyma myndir,
kort og skeyti. Nunnurnar skrautskrifa
eftir óskum viðskiptavina. Einnig er
hægt að fá þær til að skrautskrifa á kort, í sálmabækur eða á fermingar-
kerti.
Hægt er að skoða hvað er í boði á heimasíðu klaustursins karmel.is
Verslunin færir nunnunum tekjur en þannig reyna þær að sjá fyrir sér.
Falleg minning
Útvarpsþátturinn
Snorri með Orra
frá hádegi alla
virka daga