Fréttablaðið - 27.02.2013, Síða 54

Fréttablaðið - 27.02.2013, Síða 54
27. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR36 ● fréttablaðið ● fermingar ● BLÓM Í KRUKKUM OG FLÖSKUM Krukkur sem áður geymdu sultur, síld og pestó eiga það til að safnast upp í hillum fólks enda ekki allir sem tíma því að henda svo heillegum ílátum í ruslið. Oft og tíðum gera þær lítið gagn og safna aðeins ryki og taka pláss. Þær eru þó til ýmissa hluta nytsamlegar og geta til að mynda nýst ágætlega í fermingarveislum. Borðskreytingar þurfa þannig ekki að vera dýrar með hjálp endurnýttra krukkna og flaskna. Með því að kaupa nokkur blóm í blómabúð eða jafnvel tína páskaliljur í garðinum er hægt að búa til ódýrar en afar fallegar og náttúrulegar skreytingar. Einu eða fleiri blómum er stungið í hverja krukku eða flösku og dreift á borðin. Stærstu krukkuna mætti síðan nota undir páskaliljubúnt og nota sem borðskreytingu á gjafa- eða matarborðið. ● ÓMISSANDI Á BORÐIÐ Kransakaka þykir nánast ómiss- andi á fermingarborð enda afar góð með kaffinu auk þess sem hún er oftast falleg á að líta. Margir kaupa hana í bakaríi en sumir myndast þó við að gera hana sjálfir og má benda á Leið- beiningastöð heimilanna í því sambandi en þar er að finna góða uppskrift og afar greinar- góða aðferðarlýsingu. Börnin eru þó oft hrifnari af Rice Crispies- útgáfunni sem er tals- vert einfaldara að gera upp á eigin spýtur. Hér er skotheld uppskrift: 500 g suðusúkkulaði 1 lítil dós síróp (454 g) 150 g smjör 280 g Rice Krispies Setjið súkkulaði og smjör í pott og hitið. Hrærið stöðugt þar til bráðnað. Bætið sírópinu við. Hellið Rice Krispies út í og hrærið með sleif. Takið fram 18 kransakökuform og fóðrið með plastfilmu (þau fást til dæmis í Húsasmiðjunni og BYKO). Fyllið hvert form með Rice Krispies-blöndunni. Fyllið stærsta formið síðast og sleppið því ef uppskriftin dugar ekki til. Kælið og losið svo hringina úr forminu þegar þeir eru orðnir harðir. Raðið kökunni saman. Festið með bræddu súkkulaði ef þarf. Skreytið með hlaupi og sælgæti að eigin vali. Eins er hægt að fylla kökuna að innan áður en síðustu hring- irnir eru settir á. Festið sælgætið á með bræddu súkkul- aði. ● RITNINGARVERS Í ferm- ingarathöfninni fara fermingar- börn með ritningarvers úr Biblí- unni sem þau velja sér. Hér fara nokkur sem gjarnan eru valin. Úr Gamla testamentinu: - Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. (Sálm. 23.1) - Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. (Sálm. 121.2) Úr Nýja testamentinu: - Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. (Matt. 5.7) - Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. (Jóh. 3.16) - Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.“ (Jóh. 11.25) Gefðu sparnað í fermingargjöf Fermingarkortið er inneignarkort sem hentar þeim vel sem vilja gefa sparnað í fermingargjöf. Landsbankinn greiðir 5.000 króna mótframlag þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira inn á Framtíðargrunn. Fermingarkortið er gjöf sem leggur grunn að  árhag framtíðarinnar. Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst án endurgjalds í útibúum Landsbankans. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.