Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 55

Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 55
 | FÓLK | 5FERÐIR Á FERÐALAGI Í ÁRATUG Zapp-fjölskyldan frá Argentínu er æði sérstök. Hún saman- stendur af pabbanum Herman, mömmunni Candelariu og börn- unum fjórum: Pampa átta ára, Tehue fimm ára, Palomu þriggja ára og Wallaby eins árs. Í yfir áratug hefur fjölskyldan ferðast um heiminn í Graham Paige-fornbílnum sínum af árgerð 1928. Þau hafa komið til 44 landa og öll börnin fjögur hafa fæðst í ferðinni, á mismun- andi stöðum í heiminum. Það fyrsta í Bandaríkjunum, næsta í Argentínu, þriðja í Kanada og það fjórða í Ástralíu. Foreldr- arnir sjá um að kenna börnum sínum á ferðalaginu. Á ferðalaginu hefur fjöl- skyldan kynnst 2.500 öðrum fjölskyldum sem allar hafa tekið þeim opnum örmum og leyft þeim að gista. Herman og Candelaria kynntust ung að aldri og hafa verið kærustupar frá fjórtán ára aldri. Þau ákváðu að láta drauma sína um ferðalög rætast áður en þau myndu eignast börn. Þegar börnin fóru að fæðast breyttist draumurinn og börnin urðu hluti af honum. Um þessar mundir er Zapp- fjölskyldan stödd í Suður- Afríku. ZAPP-FJÖLSKYLDAN Öll börnin hafa fæðst á ferðalagi. Ástarlásar eða „Lovelocks“ kallast siður þar sem kærustupör festa hengilás á girðingu, hlið, brú eða annað til að innsigla ást sína. Þessi siður hefur rutt sér til rúms víða í heiminum. Ástarlásar fóru að sjást í Evrópu upp úr árinu 2000. Ekki er ljóst hvað veldur þessum vinsældum. Þó er vitað að í Róm hefur sú venja að festa ástarlása á brúna Ponte Milvio orðið til vegna bókarinnar I Want You eftir ítalska höfundinn Federico Moccia, en síðar var búin til mynd upp úr bókinni sem kallast Ho voglia di te. Ekki eru allir jafn hrifnir af ástar- lásunum. Yfirvöld í París höfðu þannig áhyggjur af áhrifum þeirra á brýrnar Pont des Arts, Passerelle Léopold-Sédar-Senghor og Pont de l‘Archevêché. Raunar hurfu ástar- lásarnir af Pont des Arts yfir nótt í maí 2010. Þar voru þó ekki á ferðinni óánægðir borgarfulltrúar heldur listnemi sem nýtti lásana í skúlp- túragarð. LÁSAR ÁSTARINNAR ÁST Í PARÍS Par á brúnni Pont de l‘Arche- veché sem er alsett ástarlásum. ■ FLOTT Ferðanet miðillinn Fodor‘s hefur valið bestu borgina til að heimsækja vilji maður fara á fræga matar- markaði, kaupa hátískuvarning eða antíkvörur. Fodor‘s bendir ekki lengur á París eða Róm heldur Mílanó á Ítalíu. Fleiri staðir á Ítalíu eru tilgreindir og má þar nefna hina fallegu Amalfiströnd. Mílanó er þekkt viðskipta- og tískuborg. Hún er umkringd fallegu landslagi og auðvelt að komast þaðan til hinna ýmsu staða á Ítalíu. Í Mílanó er stór alþjóðlegur flugvöllur og frábær lestarstöð. Hægt er að skoða gamla listmuni á söfnum í Mílanó og þar er hægt að snæða frábæran mat á fjöl- mörgum veitingahúsum. Ítalskar borgir eru í efsta sæti lista Fodor‘s en París er í fjórða sæti og Brussel í því níunda. MÍLANÓ BESTA BORGIN Staðurinn - Ræktin Ný námskeið að hefjast Hringdu núna til að tryggja þér pláss! Velkomin í okkar hóp! www.jsb.is S&S stutt og strangt Rétta leiðin til að breyta um lífsstíl, komast í kjörþyngd og gott form. 8 eða 16 vikna námskeið – 3x í viku – morgun-, dag og kvöldtímar. TT3 fyrir 16-25 ára. 70 mín 2x í viku, salur + tæki. Vigtun - mæling - matarræði. Frjáls m ting í opæ na kerfið og tækjasal. ar í boði.8 eða 16 vikna námskeið. 10 flokk Sjáðu frábæran TT árangur á jsb.is! Æfingakerfi Báru Magnúsdóttur - aðaláherslan lögð á styrk, liðleika og góðan líkamsburð. Aðeins 15 í hóp. 8 eða 16 vikna námskeið 2x í viku – morgun- og síðdegistímar. Nokkur pláss laus. Nýr tími kl 9:15. Markvissar æfingar í tækjasal með persónulegri leiðsögn og aðhaldi. Hámark 6 í hóp.Tilvalin leið til að koma sér í gang! 2 vikna námskeið – 5x í viku eða 3x í viku í 4 vikur. Skráning alltaf í gangi. Farið í gegnum röð af yogastöðum í heitum sal. Teygjanleiki vöðvanna aukinn, mikill sviti og vellíðan. 8 vikna námskeið – 2x í víku kl 18:30. Líkamsrækt á rólegri nótu 0 ára og eldri. num fyrir konur 6 8 eða 16 vikna námskeið - u kl 9:30.x í vik 2 Nokkur pláss laus. Opnir tímar með fjölbreytilegri líkamsrækt frá morgni til kvölds 6 daga vikunnar. Þrek, þol, liðleiki, pallar, kraft yoga, tabata, zumba... eitthvað fyrir alla! Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi. Frábær leið til líkamlegrar og andlegrar uppbyggingar. 8 eða 16 vikur – 2x í viku – morgun-, hádegis- og síðdegistímar. Nýr tími kl 6:15. Krefjandi æfingakerfi sem miðar að betri líkamsstöðu m.a. með því að st kja djúpvöðva í kvið og baki og lengja vöðva. yr 8 eða 16 vikur – 2x í viku – síðdegistímar. Fullbókað. Örfá pláss laus kl 16:05, nýr tími. Frábær viðbót fyrir korthafa í opna kerfinu: Áherslumiðaður árangur - 35 mínútna hádegistímar. stelpur 16-25 ára TT-Akranes morgun- og síðdegistímar Við tökum þetta á jákvæðninni! Fjölbreyttir tímar í opna kerfinu. Hvað má bjóða þér marga mánuði?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.