Fréttablaðið - 27.02.2013, Page 62
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 18MENNING
LEIKLIST ★★★★ ★
Fyrirheitna landið
Höfundur: Jez Butterworth. Mikael
Torfason þýddi. Aðalhlutverk: Hilmir
Snær Guðnason. Leikstjóri: Guðjón
Pedersen.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þegar tjöldin sviptast frá stóra
sviðinu blasir við mikið laufskrúð
og niðurníddur langferðabíll. Út
úr bílnum skjögrar drykkjulú-
inn maður, leikinn af Hilmi Snæ
Guðnasyni.
Söguþráður Fyrirheitna lands-
ins – Jerúsalem þjónar fyrst og
fremst því hlutverki að draga
upp þessa persónu, nútímaútlag-
ans Johnny Rooster Byron. Smám
saman kynnast áhorfendur honum
betur, sjá á honum fleiri hliðar og
skilningur þeirra á honum dýpkar.
Í verkinu verður bræðingur hins
forna enska dulmagns, í formi
risa, orkulína og Stonehenge og
kúltúrs, bæði unglingadrykkju og
atvinnuleysis, sem er svo áberandi
í bresku samfélagi í dag. Úr þessu
verður óvenjustór heild, heimur
verksins verður allt um lykjandi.
Þýðing Mikaels Torfasonar var
oftast nær mjög fín, óheflað orð-
bragð án þess að verða tilgerðar-
legt.
En þó við sjáum stöðugt fleiri
hliðar á Johnny Byron má velta því
upp hvort rúm hefði mátt finna í
sýningunni til þess að spila betur
á tilfinningar áhorfenda í hans
garð?
Maðurinn er auðvitað gjörsam-
lega óþolandi, hann selur ólög-
ráða börnum fíkniefni, kynslóð-
um saman, hann hýsir krakka sem
strjúka að heiman, hann hleypur
undan öllum skyldum, hann lend-
ir í slagsmálum, gerir eignaspjöll
og er óþolandi í samfélaginu, en þó
er erfitt að fá á honum almenni-
lega óbeit nokkurs staðar í verk-
inu. Hann er heillandi en breyskur,
sjálfum sér verstur, en umhyggju-
samur í garð annarra.
Eins þverstæðukennt og það
hljómar eftir þessa upptalningu er
Johnny Byron of heilsteypt pers-
óna frá upphafi, það hefði verið
skemmtilegra að kynnast honum
ögn hægar.
Verkið er tækifæri fyrir góðan
leikara til þess að brillera. Og það
má alveg slá því föstu að Hilm-
ir Snær geri það. Göngulagið og
raddbeitingin draga fram þennan
rúmlega miðaldra dópsala strax
í fyrstu senunni og áhorfendur
kokgleypa þennan hæfileikaríka
gallagrip strax frá upphafi.
Önnur hlutverk eru ómótaðri.
Baldur Trausti Hreinsson lék
gamlan drykkjubróður, kráareig-
andann Wesley, sem gaf ágæta
hugmynd um það hvernig menn á
borð við Johnny geta spjarað sig
þegar best lætur: Ekki mjög vel.
Baldur Trausti fór vel með þennan
látlausa hliðarharmleik.
Af krakkastóðinu sem sækir í
Johnny er Ævar Þór eftirminnileg-
astur í hlutverki slátrara sem var
vart af barnsaldri, dró upp áleitna
og eftirminnilega mynd af ungum
manni í blindgötu. Því þar er allt
þetta fólk – í blindgötu. Allir binda
vonir sínar við að einn úr hópnum
sleppi úr landi, en jafnvel það virð-
ist feigðarflan.
Sýningin er hálfur fjórði klukku-
tími með tveimur hléum. Þetta er
ansi vel í lagt af hálfu höfundar,
þó það sé heillandi að dvelja heilan
sólarhring í félagsskap Johnnys og
drykkjusystkina hans. Drykkju-
rausið verður stundum langdreg-
ið og eitthvað fækkaði nú í salnum
eftir seinna hlé. En þeir sem eftir
sátu fengu laun erfiðisins, Johnny
Rooster Byron grefur um sig í hug-
skotinu og situr þar dögum saman.
Sviðsetning Guðjóns Peder-
sens er mjög flott og leikmynd
Finns Arnars Arnarsonar algjört
listaverk. Strætisvagn Johnny er
þar mættur í fullri stærð, upp úr
honum vex myndarlegt eikartré
og úr verður heillandi blanda
hins náttúrulega og niðurníðslu
af mannavöldum. Dálítið eins og
Johnny sjálfur.
Arndís Þórarinsdóttir
NIÐURSTAÐA: Hilmir Snær sýnir
stjörnuleik í heillandi mannlýsingu
þó verkið sé eflaust ekki allra.
Fegurðin í ljótleikanum
Þetta kom nú þannig til að ég gekk á milli leik-
húsa í London í maí í fyrra og kynnti mig og verk-
efni sem mig langaði að setja upp,“ segir Jón
Gunnar. „Þeir hjá Old Vic höfðu séð sýningu sem
ég gerði í London fyrir nokkrum árum þannig að
þeir þekktu mig en keyptu ekki hugmyndina sem
ég var með. Kevin Spacey, listrænn stjórnandi
Old Vic, bað mig þá að skoða undirgöngin, Old
Vic Tunnels, og gá hvort ég fengi ekki einhverja
aðra hugmynd. Ég gekk þarna um göngin og sá
að þetta rými er alveg óskaplega spennandi og
þá sérstaklega fyrir Macbeth. Þeim leist vel á þá
hugmynd og voru til í að vera meðframleiðendur.
Síðan hefur hugmyndin þróast, það er kominn
annar framleiðandi til viðbótar og ég er kominn
með samning og fer út í september til að gera
þennan draum að veruleika.“
Hefurðu leikstýrt Macbeth áður? „Nei, en þetta
verk hefur einhvern veginn verið fast við mig í
langan tíma. Ég hef tvisvar sinnum verið aðstoð-
arleikstjóri við uppsetningar á því og einu sinni
sett það upp í skólanum mínum í Drama Center.
Þannig að þetta er verk sem ég þekki mjög vel
og hef alltaf ætlað að setja upp í atvinnuleikhúsi.
Það eru svo margar nálganir við það sem heilla
mig.“
Hafðirðu hitt Kevin Spacey áður? „Já, við
kynntumst þegar ég var í náminu úti. Ég hef
náttúrulega oft séð hann leika og hann kom og
sá útskriftarverkefnið mitt þannig að ég kynnt-
ist honum í kringum það. Núna kom ég svo aftur
og við endurnýjuðum kynnin og það er bara
mjög spennandi. Hann er búinn að vera listrænn
stjórnandi Old Vic frá 2003 og verður til 2015.“
En þessi undirgöng, Old Vic Tunnels, hvernig
rými er það? „Reyndar var það í fréttum í síðustu
viku að það væri verið að loka Old Vic Tunnels en
ég fer í annað samsvarandi rými sem er gömul
lestarstöð, alveg risastór. Rýmið sem ég er að
fara að vinna í er um 30.000 fermetrar þannig að
þar er hægt að gera ýmislegt.“
Þú situr ekkert auðum höndum á meðan þú
bíður eftir að fara til London, frumsýning á
verkinu þínu Djáknanum á Myrká hjá Leikfélagi
Hörgdæla er á fimmtudaginn, ekki satt? „Jú, það
skemmtilega er að djákninn á Myrká er nátengd-
ur Macbeth. Ég er bara í einhverjum myrkra-
verkum í ár. Ég notast til dæmis við þrjár nornir í
Djáknanum og það eru nornirnar „okkar“ Urður,
Verðandi og Skuld sem ég held einmitt að Shake-
speare hafi verið að vitna til í Macbeth. Draug-
arnir í þessum sögum eru líka svipaðir, þetta eru
allt saman draugar sem koma með skilaboð úr
öðrum víddum, þannig að allt er þetta nátengt.
Ég fór í grunninn á þjóðsögunni um djáknann og
komst að því hver fyrirmyndin var, maður sem
hét Böðvar Ögmundsson og var frá Kristnesi,
þannig að við erum að segja alvöru söguna, ekki
þjóðsöguna.“
Ertu ekki orðinn myrkfælinn af þessari sam-
veru við drauga og illvætti? „Nei, nei, ég var líka
að leikstýra Einu sinni var ég frægur fyrir ára-
mótin og nú erum við að leggja upp í leikferð um
allt Norðurland með þá sýningu, þannig að ég fæ
nóg af gleði á móti.“ fridrikab@frettabladid.is
Leikstýrir Macbeth
í Old Vic Tunnels
Jón Gunnar Th. leikstjóri hefur skrifað undir samning um að leikstýra Macbeth
í einu frægasta leikhúsi Bretlands, Old Vic í London. Listrænn stjórnandi þar er
leikarinn Kevin Spacey sem Jón Gunnar þekkir frá fornu fari.
LEIKSTÝRIR Í OLD VIC Jón Gunnar hafði allt annað verkefni
í huga en Kevin Spacey bauð honum að sýna eitthvað annað í
Old Vic Tunnels og hann valdi Macbeth. MYND/HEIÐA.IS
The Old Vic er leikhús skammt frá
Waterloo-lestarstöðinni í London.
Það var stofnað árið 1818 og hét
upphaflega The Royal Coburg
Theatre. Um 1880 breyttist nafnið
svo í The Royal Victoria Hall og
síðar festist gælunafnið The Old
Vic við leikhúsið.
Leikhópur The Old Vic var
kjarninn í The National Theatre
of Great Britain sem stofnað var
1963 undir stjórn Laurence Olivier
og fór starfsemi The National
fram í húsinu til 1976 þegar það flutti í nýbyggt þjóð-
leikhús á suðurbakka Thames.
Árið 2003 var bandaríski kvikmyndaleikarinn Kevin
Spacey ráðinn listrænn stjórnandi The Old Vic og þykir
hann hafa unnið gott starf við að hefja leikhúsið til vegs
og virðingar á ný.
Í febrúar 2010 var opnað nýtt leikrými á vegum leik-
hússins The Old Vic Tunnels, undirgöng undir Waterloo-
stöðinni, Þar sem fara fram jöfnum höndum leiksýningar,
listsýningar, gjörningar og tónleikar.
Old Vic-leikhúsið
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2013
Upplestur
18.00 Jónína Rós Guðmundsdóttir les
20. Passíusálminn í Grafarvogskirkju í
tilefni föstunnar.
Kvikmyndir
16.30 Konfúsíusarstofnunin Norður-
ljós sýnir kvikmyndina Villta Kína III í
sal 101 í Lögbergi HÍ. Um er að ræða
þáttaröð frá BBC um Kína og eru nú
Tíbet og Himalayafjöllin til umfjöllunar.
Enskt tal og aðgangur ókeypis.
Dans
14.00 Boðið verður upp á síðdegisdans
hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík,
Stangarhyl 4. Stjórnendur eru Matt-
hildur og Jón Freyr.
Tónlist
12.00 Flautuleikarinn Guðrún Birgis-
dóttir og píanóleikarinn Anna Guðný
Guðmundsdóttir flytja Parísar-tónlist
á síðustu hádegistónleikum vetrarins í
röðinni Líttu inn í hádeginu í Salnum,
Kópavogi. Miðaverð er kr. 1.00.
20.00 Tónleikaröðin Jarðarber býður
upp á tónleika í Hafnarhúsinu tileinkaða
Þránófónum.Þráinn Hjálmarsson, hönn-
uður og hugmyndasmiður hljóðfærisins
er á meðal þeirra sem fram koma.
21.00 Hljómsveitin Sunny Side Road
skemmtir á Café Rosenberg.
21.30 Hljómsveitin Monterey heldur
útgáfutónleika á KEX Hostel. Tónleik-
arnir eru í tilefni plötunnar Time Pass-
ing Time sem kom út fyrir jólin og eru
líka kveðjuhóf fyrir gítarleikarann Baldur
Sívertsen sem flyst nú til Berlínar.
Fyrirlestrar
16.30 Ólöf Guðný Valdimarsdóttir,
arkitekt, heldur fyrirlestur í félagsmið-
stöðinni að Aflagranda 40 um sjálfbæra
þróun, hugtakið, meginstoðir þess og
hvernig má nota sjálfbæra þróun í
ákvarðanatöku. Jafnframt um tengsl
sjálfbærrar þróunar og íslensks veru-
leika. Aðgangur er ókeypis.
20.00 Félag íslenskra fræða heldur rann-
sóknarkvöld í Hannesarholti, Grundar-
stíg 10. Þar ræðir Bjarki Karlsson um
rím og ýmis álistamál því tengdu.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
GUÐRÚN BERGMANN þekkir af eigin reynslu hversu mikilvægt það er að
takast á við bólguþáttinn í líkamanum. Á stuttu en skilvirku námskeiði
sýnir hún einfaldar en áhrifaríkar leiðir til að takast á við þessa kvilla.
Fimmtudaginn 7. mars
Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5,
kl. 18:30 - 21:00. Námsgögn með víðtækum
upplýsingum innifalin. Verð 4.900 kr.
Nánari upplýsingar og skráning á
ung@gudrunbergmann.is
og www.ungaollumaldri.is
Guðrún Bergmann
hefur haldið fjölda
fyrirlestra og námskeiða,
og skrifað bækur um heilsu,
náttúrulækningar
og umhverfisvitund
Á námskeiðinu verður farið yfir:
• Hvernig þekkja má bólgueinkennin og finna leiðir til bata
– en ekki bara bæla.
• Hvaða fæðutegundir valda bólgueinkennum í líkamanum.
• Hvaða fæðu, krydd og bætiefni má nota til að draga úr bólgum.