Fréttablaðið - 27.02.2013, Blaðsíða 70
27. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26
Hverjir eru hvar á
plötusamningi?
Færst hefur í aukana að íslenskir tónlistarmenn semji við erlendar plötu útgáfur.
Á árum áður mátti telja þá á fi ngrum annarrar handar sem skrifuðu undir
útgáfu samning erlendis en núna hefur mikil breyting orðið þar á. Samninganir
sem hljómsveitirnar gera eru að sjálfsögðu eins mismunandi og þeir eru margir
og hljóða sumir upp á eina plötu á meðan aðrir hljóða upp á fl eiri útgáfur.
Bandaríkin:
Universal
Of Monsters and Men
Ólafur Arnalds
Sony
Jón Jónsson
XL Records
Sigur Rós
Small Stone
Brain Police
Western Vinyl
Úlfur
Evrópa: Austurríki
Napalm Records
Skálmöld
Frakkland:
Season of Mist
Sólstafir
Ísland:
Les fréres Stefson
Retro Stefson
England:
One Little Indian
Björk
Ólöf Arnalds
Ásgeir Trausti
Rough Trade
Emilíana Torrini
Touch
Hildur Guðnadóttir
4AD
Jóhann Jóhannsson
Grape Records
Hafdís Huld
Wall of Sound
Sykur
Þýskaland:
Morr Music
Amiina
Borko
FM Belfast
Múm
Pascal Pinon
Seabear
Sin Fang
Sóley
Kompakt
GusGus
RETRO STEFSONSKÁLM-
ÖLD
GUS
GUS
Aðspurður segir Sigtryggur Baldursson, fram-
kvæmdastjóri ÚTÓN, útflutningsskrifstofu
íslenskrar tónlistar, að margir samverkandi þættir
valdi því að svona margir Íslendingar séu með
plötusamninga erlendis.
„Gæði og magn tónlistar á Íslandi hefur farið
mjög vaxandi. Fólk sér að aðrir geta farið úr landi
með sína tónlist og hugsa með sér að þetta geti
þeir nú líka. Fólk trúir því að þetta sé hægt og þar
byrjar þetta allt. Trúin á verkefnið. Fyrirmyndir
sem eru að gera hlutina á eigin forsendum,“ segir
Sigtryggur. „Þetta er hluti af útflutningsbylgjunni
sem hefur farið vaxandi síðustu ár. Það er margt
sem kemur til, þekking íslenskra tónlistarmanna á
erlenda geiranum fer vaxandi og „kontaktar“ í leið-
inni. Iceland Airwaves og ÚTÓN hefur líka áhrif
og þekkingin í bransanum vex.“
Eins og gefur að skilja hafa slíkir samningar
mikla þýðingu, bæði fyrir samfélagið og fyrir
listamennina. „Íslenska tónlistin er orðin hör-
kufín útflutningsvara eins og fiskur, skyr, kjöt og
rafmagn. Ef fólk heyrir að eitthvað er frá Íslandi
sperrir það eyrun. Þetta hefur jákvæð áhrif á
ímynd og efnahag landsins, því tónlistin kynnir
landið mikið út á við, því hún er svo áberandi og
fer svo víða. Túristar trúa því að hér búi skapandi
og áhugavert lið.“ - fb
Trúin á verkefnið skiptir mestu
Sigtryggur Baldursson hjá ÚTÓN segir að gæði og magn tónlistar hafi aukist.
SIGTRYGGUR BALDURSSON Margir samverkandi þættir
valda þessum aukna fjölda erlendra plötusamninga.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég horfi nú ekki mikið á sjón-
varpsþætti en fylgist reyndar með
Modern Family. Þeir þættir standa
alltaf fyrir sínu.“
Heiðdís Inga Hilmarsdóttir hönnunarnemi
hannaði herðatré sem er í laginu eins og
yfirvaraskegg og kallast Herra Tré.
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Save the Children á Íslandi
kík
tu við
–
við er
um al
ltaf á
sama
stað
í Skip
holtin
u
Vinsamlega athugið að pantanir
þurfa að berast fyrir kl. 15
daginn fyrir afgreiðslu
Skipholt 50 C
Pöntunarsími: 562 9090
www.pitan.is
Minnum á vinsælu
pítubakkana
...allta
f
fer
sk
mini
Við er
um síf
ellt að
hugsa
um þ
ig og
þína
Nýjar
og
spenn
andi
pítur.
..
„Þetta hefur verið svo lengi í bígerð
hjá okkur og ég er spenntur að hefj-
ast loksins handa,“ segir Kristófer
Dignus um sjónvarpsseríuna Fólkið
í blokkinni, en hann er bæði leik-
stjóri og handritshöfundur.
Á dögunum auglýsti framleiðslu-
fyrirtækið Pegasus eftir krökk-
um á aldrinum 7 til 14 ára til að
fara með hlutverk í sjónvarpsþátt-
unum. Nú þegar hafa 350 vongóð-
ir krakkar sótt um, en áheyrnar-
prufur verða um helgina. „Okkur
vantar þrjá krakka sem þurfa að
vera góðir því þetta eru lykilhlut-
verk. Það eru systkinin Óli, 8 ára,
og Vigga, 12 ára og svo Sara, 16 ára,
stóra systir þeirra,“ segir Kristófer.
Hann er ánægður með viðtökurnar.
„Það hefur skapast hefð fyrir svona
áheyrnarprufum. Þetta er Idol-kyn-
slóðin og margir krakkar sem eru
á fullu í leik- og sönglist og vilja
láta ljós sitt skína, sem er frábært.
Þetta verða heljarinnar prufur.“
Fólkið í blokkinni verða sex hálf-
tíma langir þættir sem eru byggðir
á smásögum Ólafs Hauks Símonar-
sonar. Tökur hefjast í lok maí.
Þættirnir eiga svo að fara í loftið
í haust á Rúv. „Þetta verða þættir
fyrir alla fjölskylduna enda löngu
kominn tími á að Ríkissjónvarpið
sýni svoleiðis efni. Það hefur tekið
smá tíma að koma þessu heim og
saman og ég er gríðarlega spenntur
fyrir þessu verkefni.“
Enn er opið fyrir skráningu og
geta áhugasamir skráð sig til leiks
á vefsíðunni Folkidiblokkinni.is.
„Ég er smá stressaður með að finna
stráka, tvíbura, á aldrinum 8 til 9
ára, en þeir eiga að leika bestu vini
Óla. Því hvet ég tvíbura á þessum
aldri til að skrá sig.“ - áp
350 vongóðir krakkar freista gæfunnar
Kristófer Dignus undirbýr sjónvarpsþættina Fólkið í blokkinni og vantar aðalleikara á aldrinum 7 til 14 ára.
SPENNTUR Kristófer Dignus fyrir utan
blokkina sem verður sögusvið þáttanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI