Fréttablaðið - 09.03.2013, Qupperneq 6
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
ATVINNULÍF Ríkisstjórnin sam-
þykkti á fundi sínum í gærmorg-
un tillögu Ögmundar Jónassonar
innanríkisráðherra um að fresta
útboði á strandsiglingum við
Ísland. Bæði Samskip og Eimskip
hafa tilkynnt fyrirætlanir um
strandsiglingar sem hefjast munu
á næstu vikum. Ráðherra segir að
með því megi ætla að markmið
verkefnisins nái fram að ganga og
í því ljósi lagði hann til að útboði
yrði frestað en áfram fylgst með
framvindu málsins.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í gær töldu forsvarsmenn skipa-
félaganna hugmyndir um útboð
á ríkisstyrktum strandsiglingum
undarlegar eða með öllu óþarfar;
markaðurinn hefði séð um að leysa
málið. Þá kom fram að hugmyndir
ríkisins um strandsiglingar væru
engan veginn í takt við það sem nú
gerist í þessum flutningum.
Innanríkisráðherra skipaði nefnd í
maí 2011 til að vinna að verkefninu
en þá benti ekkert til þess að
strandsiglingar við Ísland myndu
hefjast að nýju án ríkisstuðnings,
segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Samskip munu hefja sínar siglingar
18. mars og Eimskip 14. mars. Því
er útboði ríkisins frestað og látið á
það reyna „hvort markmið fyrir-
hugaðra strandsiglinga um að auka
flutninga á sjó og draga jafnframt
úr því álagi sem er á vegakerfinu
muni nást til frambúðar,“ segir í til-
kynningu. - shá
Innkoma skipafélaga ýtir út hugmyndum um ríkisstyrktar siglingar:
Útboði strandsiglinga frestað
SUNDAHÖFN Útboði ríkisstyrktra strandsiglinga hefur verið frestað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Skemmtun f unayrir alla fjölskyld
INNEIGNARKORT
Safnar tívolípun
ktum og allir fá
vinning
6000
ÞÚ BORGAR
OG FÆRÐ
kr.
10.000
kr.
TÍMAKORT
1,5 klst í öllum
tækjunum nem
a tæki
sem gefa vinnin
ga
2990
ÞÚ BORGAR
OG FÆRÐ
kr.
1.5 klsT.GILDIR fyrir 1 einstaklingSafnar ekki
tívolípunktum
Skemmtun f yrir a l unala fjölskyld
NÁM Í
DANMÖRKU
EÐA SVÍÞJÓÐ
Námskynning verður í Sunnusal á Hótel Sögu
laugardaginn 9. marsfrá kl. 12–16.
Við hliðina á Hótel Sögu, beint á móti Háskólabíó.
Eftirfarandi háskólar munu kynna:
- Syddansk Universitet, www.sdu.dk
- Högskolan í Skövde, www.his.se
- Luleå Tekniska Universitet, www.ltu.se
Ennfremur munu eftirfarandi danskir háskólar, sem eru með lengri
og styttri nám á háskólastigi kynna sína skóla:
- Erhvervsakademi Kolding, www.eakolding.dk
- Erhvervsakademi Lillebælt, www.eal.dk
- Erhvervsakademi Sydvest, www.easv.dk
- Københavns Erhvervsakademi, www.kea.dk
- University College Sjælland, www.ucsj.dk
- VIA University College, www.via.dk
Margir skólanna kenna á ensku. University College Sjælland mun
kynna alþjóðlegt kennaranám á ensku, sem er nýjung hjá þeim,
sjá nánar á www.ucsj.dk/ite
VENESÚELA, AP Tugir ráðamanna frá
öllum heimshornum lögðu leið sína
til Venesúela í gær til að kveðja Hugo
Chavez forseta, sem lést á þriðjudag-
inn eftir erfiða baráttu við krabbamein.
Að jarðarförinni lokinni tóku þeir
þátt í annarri athöfn, þar sem Nicolas
Maduro sór embættiseið sem forseti til
bráðabirgða, eða þangað til að loknum
forsetakosningum.
Samkvæmt stjórnarskrá landsins
þarf að kjósa nýjan forseta í síðasta
lagi þrjátíu dögum eftir fráfall fyrri
forseta. Chavez hafði gefið þjóð sinni
skýrt til kynna að hann vildi að hún
kysi Maduro í embættið þegar þar að
kæmi.
Almenningur fjölmennti einnig til
útfararinnar. Göturnar voru þéttskip-
aðar fólki og um tíma var tveggja kíló-
metra biðröð eftir því að fá að líta Cha-
vez augum.
Dagurinn í gær var hápunkturinn á
þriggja daga minningarhátíð sem efnt
hefur verið til í landinu aftir að for-
setinn dó. Skólum hefur verið lokað
og fjölmörg fyrirtæki gáfu starfsfólki
sínu frí.
„Þetta er sögulegt, ég hef aldrei séð
annað eins,“ segir Edila Ojeda, 57 ára
húsvörður í höfuðborginni, sem var frá
sér numinn eins og margir aðrir lands-
menn, einkum þó stuðningsmenn for-
setans nýlátna.
Líkið af Hugo Chavez var hins vegar
ekki grafið niður í jörð, heldur verður
það smurt og haft til sýnis um aldur
og ævi. Eða þangað til annað verður
ákveðið.
Maduro segir að líkið verði geymt
í kristalkistu í Byltingarsafninu,
skammt frá forsetahöllinni Miraflores.
Ekki voru þó allir íbúar Venesúela
á eitt sáttir með þessa ráðstöfun: „Í
alvöru? Er þetta ekki brandari?“ spurði
Juan Ferreira, 51 árs gamall götusali.
Nokkur kommúnistaríki tuttug-
ustu aldarinnar gripu til þess ráðs að
smyrja lík látinna leiðtoga sinna og
hafa almenningi til sýnis. Þetta var
gert við líkið af Vladimír Lenín í Sov-
étríkjunum, Ho Chi Minh í Víetnam og
Mao Zedong í Kína.
Chavez hafði stjórnað Venesúela í
fjórtán stormasöm ár. Hann skapaði sér
vinsældir meðal fátækra landsmanna
með því að nota olíuauð landsins til að
styrkja stöðu þeirra. Á hinn bóginn
var hann gagnrýndur fyrir mannrétt-
indabrot og lélega efnahagsstjórn, sem
sögð er eiga eftir að koma arftaka hans
í koll. gudsteinn@frettabladid.is
Chavez kvaddur og
Maduro sór eiðinn
Strax eftir að útför Hugo Chavez, forseta Venesúela, lauk í gær sór útnefndur
arftaki hans embættiseið til bráðabrigða. Venesúelabúar eru ekki allir sáttir við þá
ákvörðun að smyrja lík hins látna og hafa það til sýnis eins og Lenín og Maó.
CHAVEZ SYRGÐUR Mikill mannfjöldi fyllti göturnar í Caracas í gær að kveðja
hinn nýlátna forseta. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Þó að íslensk stjórnvöld
neyðist til að breyta lögum og heim-
ila innflutning á hrárri ófrystri
kjötvöru breytir það engu um inn-
flutningshömlur á erlendu kjöti þó
að líklegt sé að framboðið myndi
breytast, segir Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóri Samtaka versl-
unar og þjónustu.
ESA, eftirlitsstofnun EFTA,
hefur komist að þeirri bráðabirgða-
niðurstöðu að bann á innflutningi á
hráu kjöti standist ekki EES-samn-
inginn. Íslensk stjórnvöld hafa tíma
fram á vor til að rökstyðja bannið.
Andrés segir líklegt að vöru-
úrval í verslunum breytist þurfi
íslensk stjórnvöld að gefa eftir.
Neytendur vilji frekar ferska mat-
vöru en frosna.
Neytendur geta reiknað með
aukinni fjölbreytni verði innflutn-
ingur á fersku ófrosnu kjöti leyfð-
ur, segir Finnur Árnason, forstjóri
Haga. Hægt verði að bjóða upp á
fjölbreyttara úrval af gæðanauta-
kjöti sem ekki sé framleitt mikið af
hér á landi. - bj
Kröfur ESA um innflutning á hráu kjöti breyta engu um innflutningshömlur:
Neytendur geti valið ferska vöru
Þetta er sögu-
legt, ég hef aldrei
séð annað eins.
Edila Ojeda húsvörður.
Í alvöru? Er
þetta ekki brandari?
Juan Ferreira götusali
HRÁTT Heimilt er að flytja inn hrátt
kjöt en það verður að hafa verið frosið í
30 daga áður en það er sett á markað.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR