Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 8
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
HÖGNUÐUST SAMANLAGT UM 66 MILLJARÐA
*TEKJUSKATTUR, VIÐBÓTARTEKJURSKATTUR, BANKASKATTUR, VIÐBÓTARBANKASKATTUR, SÉRSTAKUR SKATTUR Á LAUN BANKASTARFSMANNA, KOSTNAÐUR VEGNA FJÁRMÁLAEFTIR-
LITSINS, KOSTNAÐUR VEGNA UMBOÐSMANNS SKULDARA OG GREIÐSLUR Í TRYGGINGASJÓÐ INNSTÆÐUEIGENDA.
VIÐSKIPTI Landsbanki, Arion banki
og Íslandsbanki högnuðust samtals
um 66 milljarða króna á síðasta ári.
Hagnaður þeirra meira en tvöfaldað-
ist á milli ára. Þetta kemur fram í árs-
reikningum bankanna fyrir árið 2012
sem gerðir hafa verið opinberir á und-
anförnum dögum.
Alls hafa stóru viðskiptabankarnir
þrír hagnast um 216,3 milljarða króna
síðan þeir voru stofnsettir í október
2008. Hagnaðurinn er þó ekkert í lík-
ingu við það sem gömlu viðskipta-
bankarnir þrír, Kaupþing, Landsbanki
og Glitnir, höluðu inn á ári þegar þeir
risu sem hæst. Á árinu 2006 var heild-
arafkoma þeirra jákvæð um 164 millj-
arða króna. Ári síðar var hún jákvæð
um 138 milljarða króna.
Íslandsbanki hagnaðist samtals
um 23,4 milljarða króna í fyrra. Það
er mun meira en þeir 1,9 milljarðar
króna sem hann græddi árið áður.
Ástæða þess að afkoman var svona
miklu lægri á árinu 2011 var fyrst
og fremst sú að niðurfærslur vegna
gengislánadóma námu 12,1 milljarði
króna á því ári. Íslandsbanki hefur
hagnast mest allra bankanna frá
stofnun, um 81,1 milljarð króna.
Landsbankinn hagnaðist mest allra
banka á síðasta ári, um 25,5 milljarða
króna. Hann græddi 16,9 milljarða
króna árið áður þrátt fyrir að hafa
fært niður eignir fyrir 38 milljarða
króna vegna áhrifa af gengislána-
dómum.
Arion banki hagnaðist um 17,1
milljarð króna í fyrra, sex milljörðum
króna meira en árið áður. Árið 2011
færði bankinn niður virði eigna vegna
gengislánadóma upp á 13,8 milljarða
króna. thordur@frettabladid.is
Hafa halað inn 216 milljarða
Viðskiptabankarnir þrír hafa hagnast um 216 milljarða króna frá því að þeir voru stofnsettir. Í fyrra bættust 66
milljarðar króna í sarpinn. Íslandsbanki hefur hagnast mest. Allir hafa afskrifað mikið vegna gengislánadóma.
Stórhunda
kynning
oPið Til 21:00
ölL kVölD
DýrAdaGaR í gArðhEimUM
Vinnuhundadeildin og Íþróttadeildin
vErðA á SvæðiNu LaUgaRdAg Og suNnUdaG Frá 14 – 17
lAuGarDaG oG SunNuDag
Frá 12:00 Til 17:00
Yfir 30 tegundir stórra hunda sýndar
MeðaL aNnaRs: sT. bErNhaRðs, rOtTweIlEr, aFghAn,
bRiaRd, dObErmANn, ÍsLenSkUr FjárHunDUr, lEoNboRgEr,
oLD eNgLisH sHeEpdOG
Kynnist dráttarhundunum!
dRátTarHuNdaR DraGa krAkKa Frá 13:30 LauGaRdaG oG
sUnnUdAg
15% AfsLátTur
aF ölLu FóðrI
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
ness hefur dæmt rúmlega fer-
tugan Grindvíking í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að sitja hest ölvaður og
ráðast svo á lögreglu.
Hann gerðist sekur um
umferðarlagabrot og brot gegn
lögreglulögum með því að
stjórna hesti á Suðurstrandavegi
„undir svo miklum áhrifum
áfengis að hann gat eigi stjórnað
hestinum örugglega,“
og fyrir að hafa
ekki hlýtt lög-
reglu þegar hún
skipaði honum af
baki.
Í kjölfarið hótaði
hann tveimur lög-
reglumönnum lík-
amsmeiðingum og
olli öðrum þeirra
áverkum í andliti. - sh
Hestaferð endaði illa:
Ölvaður knapi
réðst á lögreglu
LÖGREGLA Astmalyfjum var stolið
úr bifreið konu á Suðurnesjum í
vikunni. Konan hafði skilið bif-
reiðina eftir ólæsta í tíu mínútur
þegar hún skaust heim til sín.
Þegar hún kom til baka var veski
hennar horfið, ásamt lyfjum,
greiðslukorti og ökuskírteini.
Konan lét þegar loka kortinu en
var uggandi vegna lyfjanna. Lög-
reglu var svo tilkynnt um þjófnað
úr annarri bifreið. Úr henni var
stolið DVD-spilara. - hj
Þjófnaður á Suðurnesjum:
Astmalyfjum
stolið úr bíl