Fréttablaðið - 09.03.2013, Side 10
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
ÖRYGGISMÁL Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra segir netörygg-
ismál vera afar mikilvægan mála-
flokk og stjórnvöld hafi unnið mark-
visst og með vönduðum hætti að
honum síðustu ár. Hann þvertekur
fyrir að andvaraleysi hafi einkennt
þá vinnu.
Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi
þegar stofnað sérstaka netöryggis-
sveit (CERT-teymi) er smíði reglu-
gerðar um starfsemi sveitarinnar
ekki lokið, og heildstæð stefna fyrir
Ísland í netöryggismálum verður
vart tilbúin fyrr en á næsta ári.
Ögmundur segir að hér sé um
að ræða nýjan og mikilvægan þátt
varðandi framtíð öryggis þjóða og
samfélaga, en hafnar því að and-
varaleysi einkenni verk stjórnvalda.
„Þvert á móti, þá hefur þetta
verið tekið föstum tökum. Menn
geta flýtt sér um of í þessum efnum
og það sem skiptir máli er að stíga
markvisst til jarðar.“
Ögmundur segir að reglugerð-
in varðandi CERT-teymið sé nú til
umsagnar hjá Persónuvernd, enda
vegist á ýmis sjónarmið í þessum
málum. Mikið sé lagt upp úr vönd-
uðum undirbúningi.
Ögmundur segir að lokum að
Ísland sé ágætlega statt í netörygg-
ismálum miðað við aðra. „Ég full-
yrði að við erum ekki aftar á mer-
inni en aðrar þjóðir í þessum efnum.
Það eru allir að skoða hvernig er
best að bregðast við og til hvaða
ráðstafana er hægt að grípa og við
erum að gera nákvæmlega það.“ - þj
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2013
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr
Lýðheilsusjóði
Lýðheilsusjóður starfar samkvæmt lögum um landlækni
og lýðheilsu, nr. 41/2007, og reglugerð um lýðheilsusjóð,
nr. 1260/2011.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja lýðheilsustarf sem
samræmist markmiðum laga um landlækni og lýðheilsu,
bæði innan og utan embættisins, í þeim tilgangi að
stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Styrkir eru veittir til
verkefna eða afmarkaðra hagnýttra rannsókna.
Áhersla er lögð á að verkefnin séu til eflingar lýðheilsu
með áherslu á eftirfarandi þætti: Áfengis- og vímuvarnir,
tóbaksvarnir, heilbrigða lifnaðarhætti eða geðrækt.
Mikilvægt er að verkefnin hafi raunhæf og skýr markmið.
Stjórn Lýðheilsusjóðs úthlutar úr sjóðnum samkvæmt
úthlutunarreglum sjóðsins.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 7. apríl 2013 og skal sótt
um á vef Lýðheilsusjóðs: http://lydheilsusjodur.sidan.is
Styrkja sem veittir eru á árinu skal vitjað fyrir 31.10 2013.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vef
sjóðsins. Nánari upplýsingar í síma 510 1900 hjá Embætti
landlæknis eða á vef sjóðsins.
Óska eftir að kaupa enskt english course
tungumálnámskeið
Ég borga 30.000 fyrir námskeiðið
Upplýsingar í 865-7013
STJÓRNMÁL Björt framtíð kynna í
dag kosningaáherslur sínar. Þar
kennir margra grasa en segja má
að mesta áherslan sé lögð á að
auka fjölbreytni í samfélaginu.
Þar er vísað til skapandi greina og
græns iðnaðar en einnig fjölbreyti-
legri rekstrarforma í velferðar-
kerfinu og ólíkrar skólastarfsemi.
Heiða Kristín Helgadóttir, annar
formanna Bjartrar framtíðar,
segir að flokkurinn sé ekki tilbú-
inn að taka þátt í pólitískum hrá-
skinnaleik, heldur vilji flokkurinn
leysa alvarleg vandamál án fyrir-
framgefinna kredda. Hún segir að
mikilvægt sé að taka á sóun.
„Það er allt of mikil sóun í þessu
litla samfélagi okkar, hvort sem
það er í raforkukerfinu, pening-
um eða hæfileikum. Við þurfum
að taka alvarlega ábendingar, eins
og úr McKinsey-skýrslunni, að
Íslendingar vinni allt of mikið og
fái of lítið borgað fyrir það.“
Heiða segir að auka þurfi fjöl-
breytileika í atvinnugreinum og
byggja betur undir þær. „Það þarf
ekki að þýða ríkisstyrki. Það má
auðvelda, eins og þegar kemur
að því að svara erindum til hins
opinbera, og minnka þetta vesen
og rugl. Það er stór hluti af þessu
líka.“
Heiða segir að flokkurinn hafi
stutt fjárfestingaáætlun ríkis-
stjórnarinnar og lagt þar áherslu
á að fjármunir færu í skapandi
greinar og rannsóknarsjóði. Það
sé mikilvægt.
Hún segir að hegðun annarra
flokka í kosningabaráttunni muni
ráða því með hverjum Björt fram-
tíð vilji helst starfa. Fólk verði að
tala saman af lágmarksvirðingu.
„Auðvitað erum við með ákveð-
in mál sem við viljum sjá klárast.
Við setjum það töluvert á oddinn
að klára aðildarviðræðurnar við
ESB og fá úrlausn í þeim málum.
Það er fyrir neðan allar hellur að
ætla að halda þessu debatti um
Evrópusambandið áfram næstu
þrjátíu ár í viðbót.
Eins viljum við búa í frjálsu sam-
félagi, sem þýðir að við þurfum að
hleypa öðrum hingað inn og fá leið-
beiningar og hjálp frá öðrum. Það
er í alvöru þannig að næstu fjögur
ár geta orðið ansi erfið og það skipt-
ir máli með hverjum maður er að
fara að vinna.“ kolbeinn@frettabladid.is
Fjölbreytni og sátt í
stað sóunar og vesens
Björt framtíð vill auka fjölbreytni í samfélaginu og breyta umræðunni um stjórn-
mál. Hegðun stjórnmálaflokka í kosningabaráttunni mun hafa áhrif á með
hverjum flokkurinn vill starfa. Setur á oddinn að klára aðildarviðræður.
FORMENNIRNIR Heiða Kristín Helgadóttir, sem er formaður flokksins ásamt Guð-
mundi Steingrímssyni, segir hegðun annarra stjórnmálaflokka í kosningabaráttu
ráða miklu um það með hverjum flokkurinn vilji starfa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
➜ Meiri fjölbreytni
➜ Minni sóun
➜ Meiri stöðugleika
➜ Minna vesen
➜ Meiri sátt
Fimm lykilmarkmið
HEILBRIGÐISMÁL Framkvæmda-
stjórn Sjúkrahússins á Akureyri
segir að öryggi sjúklinga á geð-
deild sjúkrahússins sé tryggt og
þeir veikustu fái þjónustu fyrir-
varalaust. Boltinn sé hjá stjórn-
völdum hvað varðar húsnæðismál.
Í umfjöllun fjölmiðla um nýlega
úttekt landlæknisembættisins kom
fram að aðbúnaður á legudeild
geðdeildarinnar væri óviðunandi
og starfsfólk hefði áhyggjur af
öryggi sjúklinga vegna manneklu.
Framkvæmdastjórnin tekur
undir að brýn þörf sé á umbótum í
húsnæðismálum. Þar eigi Alþingi,
velferðarráðuneyti og fjármála-
ráðuneyti hins vegar leik.
Þá sé rétt að skortur sé á geð-
læknum og ekki hafi tekist að fylla
allar stöðuheimildir.
Varðandi frásagnir af tveimur
sjálfsvígum á deildinni síðustu tvö
ár segir framkvæmdastjórnin að
samkvæmt frummati stjórnenda
og fagaðila sé ekki hægt að rekja
tilvikin til „óeðlilegra aðstæðna á
deildinni“. - þj
Svör frá Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna umfjöllunar um aðstöðu á geðdeild:
Boltinn hjá þingi og ráðherrum
SJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Fram-
kvæmdastjórn sjúkrahússins hafnar því
að öryggi sjúklinga á geðdeild sé ógnað,
en brýn þörf sé á umbótum í húsnæðis-
málum.
Ráðherra segir mikið hafa unnist síðustu ár:
Ekkert andvaraleysi
í netöryggismálum
Ég
full yrði að við
erum ekki
aftar á
merinni en
aðrar þjóðir í
þessum
efnum.
Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra