Fréttablaðið - 09.03.2013, Page 64
| ATVINNA |
Fræðsluþjónusta Hafnarfjarðar
Skólastjóri grunnskóla
Staða skólastjóra Víðistaðaskóla í Hafnarfirði er laus til
umsóknar.
Víðistaðaskóli er heildstæður grunnskóli og eru horn-
steinar skólastarfsins ábyrgð, virðing og vinátta.
Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki
og stöðugleiki er í starfsmannahaldi.
Mikil áhersla er lögð á samvinnu, teymisvinnu, skapandi
hugsun og starfsgleði. Í skólanum er unnið samkvæmt
SMT-skólafærni og grænfánaverkefni er í gangi.
Umsækjandi þarf að hafa leiðtogahæfileika og góða og
víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennarapróf, kennslu- og stjórnunarreynsla
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis-
eða kennslufræði
• Frumkvæði og skipulagshæfileikar
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sé reiðubúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi
• Reynsla og/eða þekking á SMT- skólafærni æskileg
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækj-
anda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau verkefni
sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á færni hans
til að sinna skólastjórastarfi.
Upplýsingar um starfið veitir Magnús Baldursson, sviðs-
stjóri fræðsluþjónustu Hafnarfjarðar í síma 585 5800,
netfang magnusb@hafnarfjordur.is og Sigurður Björg-
vinsson, skólastjóri Víðistaðaskóla í síma 595 5800, netfang
sigurdur@vidistadaskoli.is
Umsóknir berist Fræðsluþjónustu Hafnarfjarðar, Strand-
götu 6, 220 Hafnarfjörður fyrir 25. mars 2013.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2013 en
æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf með fráfarandi
skólastjóra í maí/júni vegna undirbúnings næsta skólaárs.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar
jafnt sem konur hvattir til að sækja um stöðuna. Laun
og kjör eru samkvæmt samningum KÍ og launanefndar
sveitarfélaga.
Sviðsstjóri fræðsluþjónustu
Auðlind-Náttúrusjóður auglýsir eftir
umsóknum um styrki úrsjóðnum fyrir árið 2013.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til endurheimtar
votlendis.
Hámarksfjárhæð styrkja fyrir hvert verkefni er kr 500.000.
Upphæð styrks getur numið allt að 50% hluta kostnaðar.
Rannsóknarverkefni eru almennt ekki styrkt. Umsókn-
areyðublöð eru á www.audlind.org. Upplýsingar má fá
hjá raga@nett.is.
Umsóknafrestur er til og með 28. mars 2013. Umsóknir
skal senda á: Auðlind-Náttúrusjóð, Biðpóstur, 800
Selfoss.
Sölufulltrúi
Útgáfufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir
sölufulltrúa í fullt starf. Um er að ræða sölu- og
kynningastarf fyrir verk sem fyrirtækið gefur út.
Fyrirtækið gefur jafnframt út fjöldann allan af
ýmis konar ritum, sjá heimasíðuna www.sagaz.is
Krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi.
Reynsla af sölu og kynningarmálum æskileg en
ekki skilyrði. Árangurstengd laun.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
umsokn@sagaz.is fyrir 15. mars nk.
Eigin atvinnurekstur
- spennandi tækifæri!
Trausti fasteignasala, trausti@trausti.is,
s.546-5050, Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Lítið fyrirtæki í smásölu, með snyrtivörur og heimilistengdar
heilsuvörur.
Fyrirtækið rekur verslun i stórri verslunarmiðstöð þar sem
sérframleitt eigið vörumerki er í aðalhlutverki.
Hagstæð viðskiptasambönd við framleiðendur snyrtivaranna
erlendis með hagstæðum pönutunar og afhendingar skilmálum.
Miklir framtíðarmöguleikar fyrir ákveðin og fjársterkan aðila með
möguleikum á stækkun og/eða eigin framleiðslu. Framleiðslan
er græn með viðurkennda vottunarstimpla. Fyrirtækið er með
úthugsaða hugmyndafræði sem er markaðsvæn og arðbær.
Framtíðin er í grænni framleiðsla á snyrtivörum, fyrir réttu aðilanna
eru miklir útvíkkunar möguleikar fyrir hendi á vörumerkinu fyrir bæði
íslandsmarkað sem og að fara með vörumerkið erlendis.
Fyrirspurnir og nánari upplýsingar: kristjan@trausti.is
eða í síma: 867-3040
Save the Children á Íslandi
9. mars 2013 LAUGARDAGUR14