Fréttablaðið - 09.03.2013, Side 67
| ATVINNA |
Straumur – Leiga á húsnæði - rekstrar-
hugmyndir.
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum, merkt
“Straumur – Leiga á húsnæði - rekstrarhugmyndir”.
Hafnarfjarðarbær óskar eftir hugmyndum frá áhugasömum
aðilum um að taka á leigu Straum og reka þar starfsemi.
Um er að ræða 133,2 fermetra hús og smiðjur alls 392,5
fermetrar að stærð.
Við val á samningsaðilum verður sérstaklega horft til
áætlana um að glæða þessi hús lífi og hvernig fyrirhuguð
starfsemi fellur að umhverfi og aðstæðum á svæðinu.
Mikilvægt er að hugmyndunum fylgi upplýsingar um
aðila, reynslu þeirra af rekstri og annað sem skipt getur
máli. Hafnarfjarðarbær áskilur sér á síðari stigum að
kalla eftir ítarlegum upplýsingum um fjárhag, tæknilega
getu og reynslu frá rekstraraðilum.
Áhugasamir aðilar skulu leggja inn tilboð um leigu frá
15. apríl og til allt að fjögurra ára. Ef leigusali og leigutaki
verða sammála um áframhaldandi leigu að leigutíma
loknum er heimilt að framlengja leigutíma um eitt ár í
senn allt að þrisvar sinnum.
Leiguverð mun fylgja vísitölu neysluverðs frá 1. apríl 2013.
Aðilum verður boðið til viðræðna hjá Hafnarfjarðarbæ
um það hvernig leigutaki ætlar að útfæra hugmyndir
sínar um rekstur eignanna.
Leigusali áskilur sér rétt til að hafna tilboðum sem ekki
þykja ásættanleg. Farið verður með allar upplýsingar
sem trúnaðarmál.
Húsnæðið er til sýnis í samráði við Sigurð Haraldsson í síma
5855631 og Bergmund Ella Sigurðsson í síma 6645633.
Áhugasamir aðilar skulu skila inn tilboðum sínum í
tveimur umslögum, annars vegar með hugmyndum
sínum að útfærslu og upplýsingum um tilboðsgjafa
og hins vegar með leiguverði í afgreiðslu Umhverfi
og framkvæmda að Norðurhellu 2 fyrir klukkan 14:00
þriðjudaginn 26. mars 2013, merkt “Straumur – Leiga á
húsnæði - rekstrarhugmyndir”.
ÚTBOÐ
UPPSETNING STOÐVIRKJA Í HAFNAR-
HYRNU V/SNJÓFLÓÐAVARNA SIGLUFIRÐI
ÚTBOÐ NR. 15418
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Fjallabyggðar, óskar eftir tilboðum í
framkvæmdir við uppsetningu stoðvirkja í Hafnarhyrnu á Siglufirði.
Verkið felur í sér að setja upp stoðvirki úr stáli, (snow bridges),
einnig kallaðar stálgrindur eða grindur, á upptakasvæðum snjóflóða
til snjóflóðavarna í N - Fífladölum og Hafnarhyrnu/Gimbraklettum
ofan byggðar á Siglufirði. Alls um 1585 m. Uppsetning stoðvirkjanna
skal vera í samræmi við reglur svissnesku snjóflóðarannsókna-
stofnunarinnar (WSL) ásamt séríslenskum viðbótarreglum við þær.
Verkið verður unnið á þremur sumrum þ.e. 2013-2015.
Helstu magntölur eru:
Stoðvirki (Dk 3,5 m) 345 m
Stoðvirki (DK 4,0 m) 441 m
Stoðvirki (Dk 4,5 m) 624 m
Stoðvirki (Dk 5,0 m) 175 m
Fótplötur (300x300 mm) 138 stk
Fótplötur (635x630 mm) 388 stk
Fórplötur (800x800 mm) 38 stk
Vettvangsskoðun verður haldin 2. apríl kl. 13:00 að viðstöddum
fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en september 2015.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500.-hjá Ríkiskaupum,
Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með miðvikudeginum 13.
mars. Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 16.04.2013 kl. 11:00
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
ÚTBOÐ
Hús íslenskra fræða, Arngrímsgötu 5, Reykjavík
Húsbygging
ÚTBOÐ NR. 15401
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd mennta- og
menningarmálaráðuneytis óskar eftir tilboðum
í verkið „Hús íslenskra fræða – Húsbygging“,
Arngrímsgötu 5, Reykjavík.
Fyrirhugað Hús íslenskra fræða verður á þremur
hæðum auk kjallara undir hluta hússins. Opinn bíla-
kjallari verður sunnan- og vestanmegin við húsið.
Byggingin er sporöskjulaga og er formið brotið upp
með útskotum og inngörðum. Að utan er byggingin
klædd opnum málmhjúp. Helstu stærðir eru:
Lóð: 6.500m²
Brúttó flötur byggingar án bílakjallara: 6.490 m²
Stærð bílakjallara: 2.250 m²
Brúttó rúmmál: 28.065 m³
Byggingarmagn ofanjarðar: 5.165 m²
Verkefnið er leiðsöguverkefni þar sem unnið hefur
veriðmeð nýjungar á sviðum hugmyndafræði
upplýsingalíkana mannvirkja (Building Information
Modeling - BIM) og aðferðafræði vistvænnar
hönnunar. Stefnt er að því að byggingin verði
vottuð sem vistvænt mannvirki samkvæmt
alþjóðlega vottunarkerfinu BREEAM.
Verkinu skal vera að fullu lokið í 30. mars 2016.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá
Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með
miðvikudeginum 13.mars 2013. Tilboðin verða opnuð
hjá Ríkiskaupum, þriðjudaginn 30. apríl 2013 kl.14:00
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Námskeið í skoðun rafrænna upplýsingateikninga í útboðum hjá FSR
Eins og fram kemur í annarri auglýsingu auglýsir Framkvæmdasýsla
ríkisins eftir tilboðum í verkefnið „Hús íslenskra fræða – Húsbygging“
(HÍF). Bygging þessi er hönnuð með aðferðafræði sem nefnist
„Upplýsingalíkön mannvirkja“ sem í daglegu tali er nefnd BIM
(Building Information Modeling). Þetta felur í sér að til verða þrívíddar
líkön hjá hönnuðum hvers sviðs (arkitekt, burðarþol, lagnir og raflagnir)
sem hafa að geyma mun meiri upplýsingar um mannvirkið en almennt
má finna á hefðbundnum teikningum á pappír.
Fram til þessa hafa teikningar í útboðsgögnum hjá FSR verið á pdf
formi, en nú hefur orðið breyting á þessu og í útboðsgögnum vegna
HÍF verða afhentar rafrænar upplýsingateikningar á útboðsdiskum.
Bjóðendur geta því ekki lengur notað hefðbundna pdf skoðara til
að skoða viðkomandi teikningar, heldur þurfa þeir að hlaða niður
sérhæfðum skoðara af netinu (gjaldfrjáls).
Þar sem um er að ræða nýja tækni við skoðun upplýsingateikninga
býður Framkvæmdasýslan væntanlegum bjóðendum á eins dags
námskeið í þessari nýju tækni. Námskeiðsdagarnir eru 20. og 21.
mars og geta bjóðendur valið hvorn daginn þeir sitja námskeiðið.
Kennslustaður er Iðan fræðslusetur, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Ekki eru sett nein takmörk á fjölda fulltrúa frá hverjum bjóðanda og
undirverktökum hans, en allir þurfa að skrá sig með því að senda
tölvupóst á netfangið utbod@fsr.is Námskeiðin eru gjaldfrjáls.
LAUGARDAGUR 9. mars 2013 17