Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 90
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 62
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
EIRÍKUR JAKOB HELGASON
fyrrverandi verkstjóri,
andaðist miðvikudaginn 27. febrúar á
heimili sínu, Kelduhvammi 22, Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 12. mars kl. 13.00.
Ólafía Erlingsdóttir
Haukur Eiríksson Brynja Björk Kristjánsdóttir
Helgi Eiríksson Berglind Gylfadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar , tengdamóðir,
amma og langamma,
SÓLVEIG MAGNÚSDÓTTIR
áður Efstasundi 76,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn
3. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Starfsfólki á Skjóli er
þakkað fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Magnús Sigurðsson Þórhildur Karlsdóttir
Emil Þór Sigurðsson Sigrún Baldursdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn og besti vinur,
ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON
myndlistarmaður og rithöfundur,
sem lést 23. febrúar, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju föstudaginn 15. mars kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helena Jónsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSTHEIÐUR FJÓLA
GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Skagafirði
Brekkubyggð 17, Garðabæ,
lést í faðmi ástvina og fjölskyldu sinnar á bráðadeild
Landspítalans fimmtudaginn 28. febrúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þóra Valný Yngvadóttir Júlíus Ingólfsson
Gunnar Jón Yngvason
Inga Hildur Yngvadóttir Vignir Baldur Almarsson
Aðalsteinn Dalmann Stefánsson Þórdís Másdóttir
Aðalheiður, Yngvi Marinó, Birta Rós, Gabríel, Sara Dögg,
Ottó Freyr, Valný, Hildur, Daníel Bjarni og langaömmubörn:
Dagur Logi, Matthías Freyr, Emil Fannar og Bjarni Gunnar
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýju og vináttu við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
KRISTINS SIGURÐSSONAR
fyrrv. flugumferðarstjóra,
Skógarseli 43.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hrafnistu,
Boðaþingi, fyrir einstaka umhyggju, alúð og vináttu.
Edda Magndís Halldórsdóttir
Sigurður Kristinsson Anna Dís Bjarnadóttir
Hjálmar Kristinsson
Helgi G. Kristinsson Hildigunnur Bjarnadóttir
Jóhann Örn Kristinsson Edda Björg Benónýsdóttir
Halldór Ívar Guðnason Ása M. Blöndahl
Edda Guðrún Guðnadóttir Sveinn Vignisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐMUNDA PETERSEN
STEFÁNSDÓTTIR
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 7. mars.
Hún verður jarðsungin frá Áskirkju
þriðjudaginn 12. mars kl. 15.00.
Steinar Petersen Greta B. Petersen
Birna Petersen Ken Håkon Norberg
Gunnar Petersen Elva Gísladóttir
Eva Petersen Gunnar Arnar Gunnarsson
Viktor, Emilia, Anna Alexandra, Steinar, Oliver og Brynjar.
Við þökkum innilega fyrir hlýhug og
samúð við andlát elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU MAGNÚSDÓTTUR
Klapparstíg 5a.
Þórunn Ingólfsdóttir
Georg Heide Gunnarsson Hilda G. Birgisdóttir
Hinrik Gunnarsson Guðrún Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁRMANN EIRÍKSSON
Hörgsholti 33, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 3. mars í faðmi
fjölskyldunnar. Útförin fer fram
frá Víðistaðakirkju Hafnarfirði mánudaginn
11. mars kl. 15.00.
Sigrún Gísladóttir
Jón Gestur Ármannsson Ásta Birna Ingólfsdóttir
Steinunn Eir Ármannsdóttir Timothy William Bishop
Hermann Ármannsson Birna Rut Björnsdóttir
Hildur Hinriksdóttir Ingólfur Níels Árnason
Helgi Hinriksson Bryndís Fanney Guðmundsdóttir
Gísli Pétur Hinriksson Kristjana Vignisdóttir
og barnabörnin sextán.
Tveir menn fórust en
tíu var bjargað þegar
flutningaskipið Dísarfell
sökk þennan dag árið
1997.
Leki hafði skyndi-
lega komið að skipinu
þar sem það var statt um
hundrað sjómílur suðaustur
af Stokksnesi. Leki hafði komið að skipinu þannig
að ekki varð við neitt ráðið en skipverjum tókst þó að
senda út neyðarkall. Fjögur
skip sem stödd voru í nágrenninu lögðu
þegar af stað og einnig TF-Líf, þyrla Land-
helgisgæslunnar sem kom fyrst á slys-
staðinn. Þá var aðeins stefni Dísarfells
upp úr en allir mennirnir komnir í
sjóinn. Þeir höfðu sópast af skipinu
þegar brot reið yfir og tíu þeirra héldu
hópinn. Áhöfninni á TF-Líf tókst að ná
öllum mönnunum nema einum en einn af
þeim var látinn þegar hann kom í þyrluna.
„Markmiðið með vikunni er að draga
heimafólk fram á svið en við reynum
líka að skreyta hana með einhverj-
um landsþekktum kröftum,“ segir
Kristinn Reimarsson, sviðsstjóri frí-
stunda- og menningarsviðs Grinda-
víkurbæjar. Hann hefur verið að
skipuleggja menningarvikuna sem
formlega verður sett í dag klukkan
14.00 í Grindavíkurkirkju. Auk tón-
listaratriða þar verða afhent menn-
ingarverðlaun 2013. „Í kvöld eru ansi
áhugaverðir tónleikar með banda-
rískri söngkonu sem óskaði eftir að
fá að spila í Grindavík, í kaffihúsinu
á bryggjunni. Svo má ekki gleyma
systrunum Hófí og Grétu, dætrum
Samúels Arnar Erlingssonar íþrótta-
fréttamanns. Hólmfríður er búsett
hér í Grindavík, kennari við grunn-
skólann og knattspyrnuþjálfari með
meiru. Maðurinn hennar er einn af
þeim sem ætlar að sýna myndlist
í vikunni en þær systur troða upp
í Kvikunni í kvöld, ásamt tveimur
öðrum hljómsveitum,“ segir Kristinn
og nefnir líka Vocal Project, poppkór
Íslands, sem poppar upp annað kvöld.
Kristinn segir marga bíða spennta
eftir þessari viku. „Ef við förum
yfir stóru stjörnurnar sem verða hjá
okkur þá eru náttúrlega tónleikar með
Skálmöld 16. mars og Magnúsi og
Jóhanni þann sautjánda. „Þetta eru
viðburðir sem enginn má missa af,“
tekur hann fram.
Þótt Kristinn hafi aðallega talið upp
tónlistarviðburði segir hann mynd-
listina eiga sinn sess á menningar-
vikunni og minnir líka á grindvískt
vísna- og sagnakvöld á föstudag. „Við
byrjuðum með svona sagnakvöld í
fyrra og húsið troðfylltist þannig að
ég geri ráð fyrir að það verði vel sótt
aftur enda leynist víða frásagnargáfa
meðal Grindvíkinga.“ Þetta er fimmta
menningarvikan í Grindavík. Kristinn
segir þær ávallt þjappa fólki saman
og blása jákvæðni í fólk eftir myrka
vetrar daga og heimafólkið finni þar að
það þurfi ekki að sækja alla menning-
arviðburði til höfuðborgarinnar. Hann
hvetur sem flesta til að kynna sér dag-
skrá vikunnar á heimasíðu Grindavík-
urbæjar og svo auðvitað að mæta.
gun@frettabladid.is
Víða frásagnargáfa
meðal Grindvíkinga
Menningarvika hefst í Grindavík í dag. Þar rekur hver viðburðurinn annan. Dagskráin er
mest í höndum heimafólks en landsþekktir listmenn koma líka við sögu.
HÓFÍ OG GRÉTA Hólmfríður Samúelsdóttir er ein þeirra heimamanna sem troða upp á
menningar vikunni í Grindavík. Hún kemur fram með systur sinni Grétu í Kvikunni í kvöld.
Leikfélag Dalvíkur frumsýndi í
gærkveldi leikritið Eyrnalangur og
annað fólk, eftir þær systur Iðunni
og Kristínu Steinsdætur. Það
gerist á Dalvík í dag og segir frá
því þegar flóttamenn frá eyjunni
Sebrakabra koma í bæinn með nýja
siði og annað útlit en bæjarbúar og
á ýmsu gengur.
Margir taka þátt í sýningunni og
syngja, dansa og leika af hjartans
lyst. Tónlist í verkinu er eftir Ragn-
hildi Gísladóttur og leikstjóri er
Saga Jónsdóttir.
Næstu sýningar eru í kvöld,
laugardag klukkan 20 og á morgun,
sunnudag á sama tíma.
Nýir siðir og annað útlit
Dalvíkingar taka á móti fl óttafólki frá Sebrakabra – á sviðinu – nú um helgina. Leiksýn-
ingin Eyrnalangir og annað fólk var frumsýnt þar í gærkveldi.
Á SVIÐINU
Andrea Sól
Þórðardóttir
og Sunneva
Halldórsdóttir
í hlutverkum
sínum.
MYND/PÉTUR SKARPHÉÐINSSON
ÞETTA GERÐIST: 9. MARS 1997
Flutningaskipið Dísarfell fórst