Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 110
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 82
HANDBOLTI Bikarúrslitahelgi HSÍ
heldur áfram í dag og nú er komið
að konunum, en undanúrslit karla
fóru fram í gær. Bestu lið lands-
ins í kvennaflokki, Valur og Fram,
mætast ekki í undanúrslitum og er
því eðlilega spáð að þau komist í
úrslit.
Fréttablaðið fékk Ágúst Þór
Jóhannsson, landsliðsþjálfara
kvenna, til þess að spá í spilin
fyrir leiki dagsins.
„Það væri mjög óeðlilegt að spá
öðru ef menn skoða töfluna. Þetta
eru tvö bestu lið landsins og hafa
haft yfirburði á önnur lið undan-
farin ár,“ segir Ágúst en hann
reiknar engu að síður með nokkuð
spennandi leikjum.
„Ef við skoðum Val á móti ÍBV
þá er ÍBV alls ekki með slakt
byrjunar lið. Það er mjög gott.
Ester Óskarsdóttir er komin aftur
inn og Guðbjörg Guðmannsdóttir
er þarna líka. Svo er Florentina
í markinu og Simone á miðjunni
þannig að þetta er sterkt lið,“ segir
Ágúst en hvað með Valsstúlkur?
Mikil sigurhefð hjá Valsliðinu
„Það er mikil reynsla og mikil sig-
urhefð aftur á móti í Valsliðinu.
Þær hafa spilað frábærlega síð-
ustu fjögur ár og vart stigið feil-
spor. Þetta lið hefur sýnt mikinn
stöðugleika. Liðið hefur misst út
leikmenn í vetur en samt haldið
gæðunum í leik sínum. Ég tek hatt-
inn ofan fyrir þeim að halda velli
miðað við þau áföll sem hafa dunið
á liðinu. Það er mikill karakter í
þessu Valsliði og ég held að þetta
geti orðið hörkuleikur en grunar
að sigurhefðin og reynslan í Vals-
liðinu fleyti liðinu í úrslit.“
Grótta er aðeins í sjöunda sæti
N1-deildar kvenna en Ágúst gerir
ekki ráð fyrir að Fram valti yfir
liðið.
„Fram er eðlilega sterkara lið
en Grótta hefur verið á uppleið og
leikið betur eftir áramót. Íris Sím-
onardóttir hefur komið inn í leiki
og varið vel. Hún spilar væntan-
lega þennan leik og hún gæti strítt
Fram-liðinu. Hún lék með þeim og
þekkir þær vel. Það gæti því verið
smá von fyrir Gróttuna. Þegar
allt er tekið saman hef ég trú á að
Fram klári dæmið. Ég held samt
að það verði ekki auðvelt og að
þetta verði hörkuleikur.“
Úrslit jafnvel framlengd
Úrslitaleikurinn verður þá á milli
Vals og Fram og þar getur allt
gerst að mati landsliðsþjálfarans.
„Liðin eru jöfn og eru bæði
orðin mjög reynd. Það er kannski
örlítið meiri breidd hjá Fram en
að sama skapi er Valur með val-
inn mann í hverju rúmi. Valsliðið
spilar líka gríðarlega sterka vörn
og svo er liðið með Jenný í mark-
inu, en hún er okkar besti mark-
vörður. Hún hefur oft fleytt þessu
liði langt. Þessi lið spila ekki mjög
líkan handbolta en eru samt í svip-
uðum gæðaflokki. Bæði lið vel
þjálfuð og skipulögð,“ segir Ágúst
en leikir þessara liða eru oftar en
ekki hörkuleikir.
„Þau þekkjast mjög vel og ekk-
ert hægt að koma á óvart þannig
séð. Ég held að hið klassíska dags-
form komi til með að ráða úrslitum
í þessum leik. Þetta verður hörku-
leikur og það kæmi mér ekki á
óvart ef hann yrði framlengdur.“
henry@frettabladid.is
Valur og Fram eru
tvö bestu lið landsins
og hafa haft yfirburð á
önnur lið undanfarin ár.
Ágúst Þór Jóhannsson
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
LEIÐIN Í UNDANÚRSLIT
16-LIÐA ÚRSLIT
Haukar - Grótta 22-24
ÍBV - Afturelding 24-15
Fram og Valur sátu hjá.
8-LIÐA ÚRSLIT
ÍBV2 - Fram 15-42
FH - ÍBV 20-24
Selfoss - Valur 23-32
Grótta - HK 25-23
UNDANÚRSLIT
Laugardagur 9. mars kl. 13.30 ÍBV - Valur
Laugardagur 9. mars kl. 15.45 Grótta - Fram
ÚRSLITALEIKIR
Sunnudagur 10. mars ÍR - Stjarnan kl. 13.00
Sunnudagur 10. mars Úrslit kvenna kl. 16.00
TIL HAMINGJU, JÓN!
Jón Ólafsson hlaut Viðurkenningu Hagþenkis 2012
fyrir bókina Appelsínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch,
Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu
2012
2012
SPORT
Valur og Fram í úrslit
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna, spáir því að Valur og Fram fari
alla leið í úrslit Símabikars kvenna, en undanúrslitin fara fram í dag. Ágúst býst
við því að undanúrslitaleikirnir verði ekki eins ójafnir og margir búast við.
BARÁTTA Einhver þessara fyrirliða mun lyfta bikarnum á morgun. Frá vinstri; Arn-
dís María Erlingsdóttir, Gróttu, Birna Berg Haraldsdóttir, Fram, Hrafnhildur Skúladót-
tir, Val, og Ester Óskarsdóttir, ÍBV. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÚRSLIT
SÍMABIKAR KARLA
Selfoss - ÍR 25-36 (12-17)
Mörk Selfoss (skot): Hörður Másson 7 (15), Einar
Sverrisson 6/2 (13/2), Sverrir Pálsson 2 (2), Hörður
Bjarnason 2 (5), Matthías Örn Halldórsson 2 (7),
Ómar Helgason 1 (1), Andri Sveinsson 1 (2), Örn
Þrastarson 1 (2), Einar Pétursson 1 (3), Gunnar
Jónsson 1 (3), Sigurður Guðmundsson 1 (3).
Varin skot: Helgi Hlynsson 13/1 (46/3, 28%).
Mörk ÍR (skot): Sturla Ásgeirsson 8/2 (10/3),
Ingimundur Ingimundarson 5 (6), Brynjar Valgeir
Steinarsson 4 (4), Ólafur Sigurgeirsson 3 (3), Jón
Heiðar Gunnarsson 3 (5), Guðni Már Kristinsson
3 (5), Máni Gestsson 2 (2), Sigurjón Friðbjörn
Björnsson 2 (4), Björgvin Hólmgeirsson 2 (8),
Sigurður Magnússon 1 (1), Davíð Georgsson 1 (4).
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmundsson 21
(42/2, 50%), Aron Daði Hauksson 1 (5, 20%).
Akureyri - Stjarnan 24-26 (12-10)
Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzsson 12/4
(12/4), Guðmundur H. Helgason 6 (14), Valþór
Guðrúnarsson 2 (6), Halldór Örn Tryggvason 1 (1),
Heimir Örn Árnason 1 (3), Andri Snær Stefánsson
1 (4), Geir Guðmundsson 1 (4), Heiðar Þór Aðal-
steinsson (2).
Varin skot: Jovan Kukobat 12 (36/2, 33%), Stefán
Guðnason 2 (4, 50%).
Mörk Stjörnunnar (skot): Guðmundur Guð-
mundsson 5 (9), Þröstur Þráinsson 4/1 (6/1),
Jakob Októsson 3 (3), Andri Hjartar Grétarsson 3
(3), Hilmar Pálsson 3 (4), Egill Magnússon 3 (5),
Víglundur Jarl Þórsson 3 (7), Bjarni Jónasson 2/1
(5/1), Finnur Jónsson (3).
Varin skot: Svavar Már Ólafsson 20 (43/3, 47%),
Brynjar Darri Baldursson (1/1, 0%).
N1-deildarlið ÍR mætir 1. deildarliði Stjörnunnar
í úrslitaleik karla á sunnudaginn klukkan 13.00.
DOMINOS-DEILD KARLA
Fjölnir - ÍR 79-70 (44-32)
Christopher Smith 22/22 fráköst, Tómas Heiðar
Tómasson 15, Magni Hafsteinsson 15, Isaac Miles
12– Eric James Palm 21, Sveinbjörn Claessen 17,
D‘Andre Williams 9.
DOMINOS-DEILD KVENNA
Snæfelli - Grindavík 73-76 (39-32)
Kieraah Marlos 21, Hildur B. Kjartansdóttir 19,
Hildur Sigurðardóttir 15– Crystal Smith 36/13
fráköst, Petrúnella Skúladóttir 13.
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu mátti þola 6-1 tap gegn
Svíum á Algarve-mótinu í Portúgal í
gær. Hólmfríður Magnúsdóttir skor-
aði mark Íslands með skalla undir lok
leiksins en Svíar skoruðu mörk sín á
fyrstu 65 mínútum leiksins.
Ísland tapaði fyrir Bandaríkjunum,
3-0, í fyrsta leik sínum á mótinu á
miðvikudagskvöldið og er því enn
án stiga í B-riðli. Ísland mætir Kína
á mánudaginn og þarf sigur til að
komast upp í þriðja sæti riðilsins og
spila um fimmta sætið í mótinu.
Kosovare Asllani skoraði tvö mörk
fyrir Svía og Sara Thunebro, Lotta
Schelin, Marie Hammarström
og Susanne Moberg eitt hver.
Þetta er versta tap Íslands
í stjórnartíð Sigurðar Ragnar
Eyjólfssonar landsliðsþjálfara
og það versta síðan Ísland
tapaði fyrir Þýskalandi,
6-0, árið 2000 í leik í
undankeppni HM.
„Það má finna
ýmsar ástæður
fyrir þessu tapi
og frammistöðu
okkar en heilt yfir
var munurinn á
þessum tveimur
liðum einfaldlega allt of mikill,“
sagði Sigurður Ragnar við Frétta-
blaðið í gær. „Stærsti munurinn
er sá að líkamlegt form okkar
leikmanna er ekki jafn gott og hjá
Svíunum. Of margir leikmenn
hjá okkur eru eftir á.“
Þess má geta að
Ísland spilaði til úr-
slita á þessu móti
fyrir tveimur árum en
hafnaði í sjötta sæti á
mótinu í fyrra. Ísland
keppir í úrslitakeppni
EM í Svíþjóð nú í
sumar. - esá
Stærsta tap Íslands í tæp þrettán ár