Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 118

Fréttablaðið - 09.03.2013, Blaðsíða 118
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 90 „Er á batavegi. Takk þið öll sem hélduð mér gangandi í kvöld. Bestu aðdáendur í heimi. Það er verið að finna út hvað er að mér núna.“ SKILABOÐ SÖNGVARANS JUSTIN BIEBER Á TWITTER, EN HANN VAR SENDUR MEÐ SJÚKRABÍL Á SPÍTALA FRÁ MIÐJUM TÓNLEIKUM Í LONDON Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ VEGNA ÖNDUNARERFIÐLEIKA. www.me rkismen n.is HVAÐA RYAN? Piltarnir í Sigur Rós voru í London fyrir helgi og deildu þar hóteli með stórstjörnu. Stjarnan heitir Ryan en það fer tvennum sögum af því hvaða Ryan það er. Bassaleikarinn Georg Holm segir að það hafi verið Ryan Giggs– velska goðsögnin hjá Manc- hester United– en söngvar- inn Jónsi tjáði vinum að hann væri á hóteli með bandaríska leikaranum og hjartaknúsaranum Ryan Gosling. Hvað sem er rétt í málinu er ljóst að á þessu hóteli mætt- ust stórstjörnur, hverjar á sínu sviði. - sh „Þetta er búið að vera frekar pirrandi og komið á það stig að við erum farnir að dansa snjódansinn hérna á hverju kvöldi,“ segir Davíð Óskar Ólafsson hjá framleiðslufyritækinu Mystery sem heldur utan um myndina Málmhaus. Málmhaus er nýjasta mynd leikstjórans Ragnars Bragasonar, en tökur á henni hófust seint á síðasta ári undir Eyjafjöllum. Tökuliðið hefur hins vegar verið í biðstöðu síðan um áramótin, þar sem snjó- leysi á Suðurlandi hefur sett strik í reikninginn á tökunum. Þrír tökudagar eru eftir og segist Davíð aldrei hafa fylgst jafn vel með veðurspánni og undanfarnar vikur. „Okkur vantar að klára þessa þrjá tökudaga til að koma myndinni í fyrsta klipp, þannig að við erum að verða frekar óþolinmóðir. Við erum í daglegu sam- bandi við bónda undir Eyjafjöllum sem segir okkur hvernig veðrið er þar, en þegar snjóaði hér mikið í vikunni féll ekki eitt einasta snjókorn hjá þeim,“ segir Davíð, sem heldur þó í von- ina um að geta klárað í næstu viku. „Margir þurfa að hverfa frá í önnur verkefni bráðum og við verðum að hafa skilning á því. Það er pirrandi að geta ekki stjórnað veðrinu en svona er þetta.“ Áætluð frumsýning á Málmhaus er í október, en með aðalhlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson, Halldóra Geir- harðsdóttir og Þorbjörg Helga Dýr- fjörð. - áp Snjóleysi tefur bíómynd Ragnars Tökur á kvikmyndinni Málmhaus tefj ast því það snjóar ekki nóg á Suðurlandi. BIÐJA FYRIR SNJÓ Davíð Óskar Ólafsson og Ragnar Bragason er farið að lengja eftir að geta klárað tökur á Málmhaus en snjóleysi á Suðurlandi setur strik í reikn- inginn. MEÐ ANNAN FÓTINN HEIMA Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjáns- son hyggst flytja heim á klakann innan skamms, ef marka má heimildir Fréttablaðsins. Þorvaldur Davíð hefur verið búsettur í Bandaríkjunum und- anfarin ár, en hefur verið með annan fótinn á Íslandi á meðan hann sinnir ýmsum verkefnum á sviði leiklistar. Heyrst hefur að hann hafi í hyggju að gera samning við Borgarleik- húsið og velta einhverjir því fyrir sér hvort hann komi til greina í titilhlut- verkið í Hamlet sem sett verður á svið leikhússins næsta ár. - sm GLUTEUS OCEAN Dúettinn Gluteus Maximus, sem skipað- ur er þeim Margeiri Steinari Ingólfssyni plötusnúði og Stephan Stephensen úr GusGus, hefur tekið sig til og endur- hljóðblandað lagið Pink Matter með ný- stirninu Frank Ocean, en sá vakti heilmikla lukku með frumraun sinni, Channel Orange, á síðasta ári. Frítt niðurhal af laginu er að finna á Facebook-síðu Gluteus Maximus og geta aðdáendur beggja því vel við unað. „Ég hef oft unnið með Hópkaupum áður og finnst það frábært þar sem þeir ná til svo breiðs hóps,“ segir Ólafur Geir Jónsson, plötusnúður og tónleikahaldari. Ólafur Geir stendur fyrir tón- leikahátíðinni Keflavík Music Festival sem haldin verður í Kefla- vík dagana 5.-9. júní, en athygli vakti að miðar á hátíðina voru til sölu á 40% afslætti á afsláttarsíð- unni Hópkaup í gær. Fréttablaðið hafði samband við Óla Geir, sem sagðist ekki hafa staðið fyrir söl- unni sjálfur heldur væri hún á vegum síðunnar. „Við gerðum með okkur samn- ing og þeir keyptu af mér miða á meðan þeir voru enn á forsöluverð- inu og kostuðu 9.900 krónur,“ segir Óli Geir. Nú eru miðar á hátíðina komnir upp í 13.500 krónur en í gær buðu Hópkaup miða til sölu á 8.100 krónur, eða á 40% afslætti, en 40% afsláttur er lág- marksafsláttur sem þarf að bjóða til að selja vöru á síðunni. Samkvæmt upp- lýsingum frá Óla Geir virðast Hópkaup því taka á sig þennan 1.800 króna mismun sem er á kaupverði miðanna í forsölu og sölu- verði þeirra á síðunni núna. „Síður eins og Hópkaup ganga auðvitað bara upp þegar þær eru með nóg af notendum og ef fólk ætlar að kaupa eitthvað á síð- unni þarf það alltaf að gerast notendur. Ég lít bara á það sem heiður að þeir hafi viljað nota miðana í þessum tilgangi, þeir Miðar á tónleikahátíð með afslætti á netinu Tónleikahaldara og Hópkaup greinir á um ástæður þess að miðar á Kefl avík Music Festival eru nú seldir með 40% afslætti á síðunni. Dagskráin á hátíðina verður glæsilegri með hverjum deginum og hefur nú verið tilkynnt um komu dönsku strákana í Outlandish. Sveitin samanstendur af þeim Isam Bachiri, Lenny Martinez og Waqas Qadri og hafa þeir verið lengi að, þrátt fyrir ungan aldur. „Þetta er ein stærsta hljómsveit Danmerkur um þessar mundir. Það er svo merkilegt að það eru komin hátt í 20 ár síðan þeir byrjuðu en eru núna fyrst að slá rækilega í gegn,“ segir Óli Geir og hljómsveitin því sönnun þess að þrautseigja borgar sig stundum. Fimmta og nýjasta plata sveitarinnar, Warrior/Worrier, hefur náð gríðarlegum vinsældum og titillag plötunnar eitt vinsælasta lag þeirra frá upphafi. Einnig náði hljómsveitin miklum vinsældum fyrir nokkrum árum með útgáfu sinni af lagi rapparans Khaled, Aïcha. Allir meðlimir hljómsveitarinnar eru uppaldir í Danmörku en eiga rætur að rekja til mismunandi landa. Isam er frá Marokkó, Waqas frá Pakistan og Lenny frá Hondúras og Kúbu. Allir eru þeir líka trúaðir en á meðan Isam og Waqas eru íslamstrúar er Lenny kaþólikki. Þrátt fyrir þennan menningar- mun hafa strákarnir verið vinir frá blautu barnsbeini og þykja góð fyrirmynd í baráttunni. Outlandish nýjasta atriðið á hátíðinni hafa greinilega séð fyrir hvað hátíðin yrði glæsileg og vin- sæl,“ segir Óli Geir og bætir við að almenn miðasala gangi vonum framar. „Mér finnst ótrúlegt hvað miðarnir rjúka út, sérstaklega þar sem aðeins hefur verið tilkynnt um 20 atriði af 120. Ég hefði greinilega komist upp með að vera helmingi metnaðarminni,“ segir hann og hlær. Óli Geir segist þó ekki geta gefið upp neinar sölutölur að svo stöddu vegna þess að miðarnir á hátíðina séu seldir víða og erfitt sé að henda reiður á innkomunni. Salan virðist einnig hafa gengið vel á síðu Hópkaupa í gær og höfðu vel yfir 200 manns keypt miða seinnipartinn, þegar enn voru sjö klukkustundir eftir af tilboðinu. Fréttablaðið leitaði eftir við- brögðum frá aðstandendum Hóp- kaupa vegna málsins en fékk engin formleg svör. Talsmaður þeirra fullyrti þó að Óli Geir færi ekki með rétt mál og Hópkaup tæki ekki á sig neinn kostnað vegna miðasölunnar. tinnaros@frettabladid.is TÓNLEIKAHALDARI Ólafur Geir Jónsson stendur fyrir Keflavívík Music Festival.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.