Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 18
26. mars 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 18
Opið frá kl. 11–20 alla daga
Engihjalla og Granda
4 þykkir 115 g, stórir hamborgarar með
brauði aðeins 999 kr.
999kr. pk
4 x 115
g ham
borgar
ar og b
rauð
/Ú FÆ
R[ M
EIRA
FYRIR
PENI
NGIN
N
Í ICEL
AND
Á EINSTÖKU VER[I
BORGARAR
NAGGAR
HAKK
Á
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t
1.389kr. kg
Kjarnafæ
ði nautgr
ipahakk
verð áður
1.578
100%
nautgrip
ahakk
998kr. pk
Iceland
kjúkling
anaggar
verð áðu
r 1.149
Þær hafa verið í meira
lagi skáldlegar fyrirsagn-
irnar og yfirlýsingar fólks
í fjölmiðlum undanfarna
daga eftir að það virtist
verða því ljóst að Lagar-
fljót hefði breyst við það
að Jökulsá á Dal var veitt
þangað. Undirrituð hefur
búið á bökkum Lagar-
fljóts í á fjórða áratug
og veit því fullvel hvaða
áhrif vatnaflutningarnir
höfðu á þetta fagra vatn.
Fljótið er á sínum stað en
ásýnd þess hefur breyst og lífríki
sömuleiðis þó að það sé fjarri því
„dautt“ eins og sumir halda fram.
Hvað gengur mönnum til með
þessum yfirlýsingum? Koma upp-
lýsingar um ástand lífríkis Lag-
arfljóts stórkostlega á óvart? Það
er harla ólíklegt nema kannski
fólki sem býr utan svæðisins og á
sjaldan – eða aldrei leið um Fljóts-
dalshérað. Væri ekki nær að fólk
kynnti sér raunveruleikann og
reyndi að horfa á málið frá sjón-
arhorni íbúa á svæðinu?
Ákvörðunin um byggingu
Kárahnjúkavirkjunar og fram-
kvæmdir í framhaldinu voru
hugsaðar til að styrkja atvinnu-
líf og búsetu á Austurlandi. Fram-
kvæmdirnar ollu gríðarlegum
deilum, bæði innan fjórðungs
og utan og enn er umræðuefn-
ið eldfimt í sumum fjölskyldum.
En horfum á stöðuna árið 2013.
Finnst þeim sem gráta Lagar-
fljót skipta einhverju að atvinnu-
tækifærin sem framkvæmdirn-
ar sköpuðu gerðu fjölda
fólks kleift að snúa aftur
til sinna heimahaga og
nýta margvíslega mennt-
un sína? Finnst þeim ein-
hverju skipta að um 800
manns á Austurlandi hafa
atvinnu í álverinu eða við
afleidd störf. Finnst þeim
einhverju skipta að nú
eru að verða mögulegar
almenningssamgöng-
ur á Austurlandi vegna
stærðar atvinnusvæðis-
ins? Skiptir einhverju að
atvinnuleysi á Austurlandi er
aðeins um 3%? Er það til hins
verra fyrir lífríki landsins að
Jökulsá á Dal stefnir í að verða
góð laxveiðiá?
Rangar fullyrðingar
Í umræðunni undanfarna daga
hafa menn dregið ýmislegt fram
máli sínu til stuðnings um að á
Fljótsdalshéraði sé allt á fallandi
fæti; svo mjög að þar standi fjöldi
auðra bygginga – með myglu-
sveppi. Það er dapurlegt að menn
skuli ekki einu sinni hafa fyrir
að afla sér upplýsinga þannig að
farið sé með rétt mál. Hér eru
íbúðir, líkt og á höfuðborgarsvæð-
inu, sem ekki er búið í. Hér, eins
og annars staðar, ætluðu menn
sér um of og byggðu umfram
þörf. Fullyrðingar um að húsnæði
sé allt undirlagt af myglusveppi
eru beinlínis rangar.
Oft er talað um umræðuhefð
á Íslandi og notkun gífuryrða.
Fullyrðingar um að Lagarfljót
sé „dautt“ eru dæmi um slíkan
málflutning og engum til fram-
dráttar.
Rannsóknir voru gerðar og
ályktanir dregnar um umhverf-
isáhrif sem margar hafa gengið
eftir. Segja má að ýmislegt hefði
mátt rannsaka betur sem hugsan-
lega hefði leitt til ákvörðunar um
frekari mótvægisaðgerðir. Það
er þó ekki hægt að segja nú hvort
frekari upplýsingar hefðu breytt
einhverju um lokaákvörðunina.
Margt hefði þurft að undirbúa
betur í framkvæmdaferlinu, t.d.
að styrkja heilbrigðisstofnanir,
vinnueftirlit og heilbrigðis eftirlit
til að takast á við stóraukin verk-
efni. Starfsfólk margra stofnana
vann þrekvirki meðan á fram-
kvæmdunum stóð en stofnanirnar
sitja að nokkru leyti enn uppi með
fjárhagshalla sem erfitt hefur
reynst að fá leiðréttan.
Staðreyndin er sú að á bökkum
Lagarfljóts lifir fólk ágætu lífi.
Að tala eins og sumir undan farið
er fjarstæða. Hér er fádæma
náttúrufegurð og gott mannlíf
sem við njótum og bjóðum öðrum
að njóta með okkur við fljótsins
dreymnu ró.
Um tilfi nningar og staðreyndir
Öryggi og gæði í
heilbrigðisþjón-
ustunni hafa verið
mjög í brennidepli
fjölmiðla undan-
fa r n a r v i k u r.
Landlæknir fagn-
ar slíkri umræðu. Í
samræmi við hlut-
verk embættisins
er starf þess fjöl-
breytt og umfangs-
mikið á þessu sviði
eins og sjá á má í
nýlegri samantekt sem er að finna
á heimasíðu embættisins landla-
eknir.is.
Það hefur kynt undir þessa
umræðu að Íslendingar hafa nokk-
ur undanfarin ár gengið í gegnum
mikinn niðurskurð í opinberum
rekstri, m.a. í heilbrigðiskerfinu.
Þá þarf að huga sérstaklega að því
að öryggi sjúklinga sé ekki ógnað
og að gæði þjónustunnar haldist
þrátt fyrir breytt skipulag. Rann-
sóknir hafa sýnt að þættir eins og
álag á starfsfólk, óánægja í starfi
og óánægja með starfsumhverfið
geta haft neikvæð áhrif á gæði og
öryggi þjónustunnar.
Heilbrigðisstarfsfólk hefur á
liðnum misserum lýst áhyggjum
sínum af því að heilbrigðiskerfið
sé nú komið að þolmörkum sökum
niðurskurðar. Starfsfólki hefur
fækkað og álag þar með aukist.
Úrræði til að veita þjónustu hafa
einnig breyst en þróun þekkingar
og tækniframfarir hafa haft í för
með sér að sjúklingar liggja skem-
ur á sjúkrahúsum og glíma við erf-
iðari og flóknari vanda en áður.
Einstaklingum sem bíða vistunar
á hjúkrunarheimilum hefur einn-
ig fjölgað. Nokkrir tugir þeirra
bíða nú á Landspítalanum og ein
birtingarmynd þess eru ganga-
innlagnir. Slíkt hefur í för með
sér álag á starfsfólk og þá sem
njóta þjónustunnar. Einnig hafa
kjör versnað, ekki síst í saman-
burði við nágrannalöndin. Því hafa
margir leitað út fyrir landstein-
ana til skemmri eða lengri tíma
sem hefur áhrif á þjónustuna hér
á landi. Framtíðarskipulag Land-
spítala er einnig í óvissu en niður-
staða í því máli snertir óneitanlega
gæði þjónustunnar og öryggi sjúk-
linga þegar til lengri tíma er litið.
Góður árangur
Í umræðu um núverandi vanda
heilbrigðisþjónustunnar er auðvelt
að gleyma því að hún er þrátt fyrir
allt góð. Nýjustu tölur frá Hag-
stofu Íslands staðfesta að enn einu
sinni er ungbarnadauði lægstur á
Íslandi í samanburði við önnur
lönd í Evrópu. Íslenskir karlmenn
lifa karla lengst í álfunni og með-
alaldur kvenna er í fremstu röð.
Einnig má minna á að þjónustan
hér á landi var metin sú þriðja
besta í Evrópu árið 2012. Slík-
ur árangur kemur ekki af sjálfu
sér enda niðurstaða þrotlausrar
vinnu margra á liðnum árum, líka
á tímum efnahagslegrar niður-
sveiflu.
Öryggisbragur
Öryggisbragur í heilbrigðisþjón-
ustu er flókið hugtak, en felur í sér
sameiginleg gildi og viðhorf sem
ásamt skipulagi og stjórnun stofn-
unar leiða til ákveðins vinnulags
og hegðunarmynsturs um öryggi
þjónustunnar. Góður öryggisbrag-
ur er fyrir hendi þar sem öryggi
sjúklinga er sett í öndvegi og
áhættustjórnun er samofin öllu því
sem gert er. Slíkur öryggisbragur
einkennist af opnum samskiptum
og gagnkvæmu trausti milli starfs-
manna og sjúklinga.
Þar sem öryggisbragur er þró-
aður eru atvik í þjónustunni skoð-
uð ofan í kjölinn, reynt að læra
af þeim og beita markvissum
aðgerðum til að koma í veg fyrir
að þau gerist aftur. Aftur á móti
ef öryggis bragur er vanþróaður
er atvikum sópað undir teppið eða
áhersla lögð á að finna sökudólg í
stað þess að leita lausna. Fjölmarg-
ar rannsóknir hafa sýnt að orsakir
atvika eru í flestum tilfellum
margþættar og tengjast í mörgum
tilvikum ágöllum í skipulagi. Því
er mikilvægara að spyrja: Hvað
gerðist, í stað þess að leita söku-
dólgs með spurningunni: Hverjum
er það að kenna?
Að lokum
Heilbrigðisstarfsfólki ber lagaleg,
fagleg og siðfræðileg skylda til að
veita góða heilbrigðisþjónustu og
bera hag notenda þjónustunnar
fyrir brjósti. Stjórnendum heil-
brigðisstofnana ber síðan skylda
til að fylgjast með mælikvörðum
varðandi gæði þjónustu, öryggi
sjúklinga og öryggi starfsfólks,
m.a. varðandi álag og bregðast
við með viðeigandi hætti til að
tryggja gæði og öryggi þjónust-
unnar.
Gæði og öryggi heilbrigðisþjón-
ustu koma ekki af sjálfu sér og því
þurfa Embætti landlæknis, heil-
brigðisstarfsfólk, heilbrigðisstofn-
anir, notendur þjónustunnar og
allur almenningur að taka hönd-
um saman við að stuðla að góðri
heilbrigðisþjónustu. Landlækn-
ir hvetur starfsfólk og notendur
þjónustunnar til að koma ábend-
ingum um það sem betur má fara
hvað varðar gæði og öryggi til
stjórnenda heilbrigðisstofnana og
ef þeir eru ekki sáttir við viðbrögð
þeirra geta þeir leitað til Embætt-
is landlæknis með áhyggjur sínar.
Öryggi og gæði
heilbrigðisþjónustu
NÁTTÚRU-
VERND
Sigrún
Blöndal
bæjarfulltrúi á
Fljótsdalshéraði
➜ Oft er talað um umræðu-
hefð á Íslandi og notkun
gífuryrða. Fullyrðingar um
að Lagarfl jót sé „dautt“ eru
dæmi um slíkan málfl utning
og engum til framdráttar.
HEILBRIGÐISMÁL
Geir
Gunnlaugsson
landlæknir
Anna Björg
Aradóttir
sviðsstjóri Eft irlits
og gæða
Laura Sch.
Thorsteinsson
hjúkrunarfræðingur
➜ Góður öryggisbragur er
fyrir hendi þar sem öryggi
sjúklinga er sett í öndvegi og
áhættustjórnun er samofi n
öllu því sem gert er. Slíkur
öryggisbragur einkennist
af opnum samskiptum og
gagnkvæmu trausti milli
starfsmanna og sjúklinga.