Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 43
ÞRIÐJUDAGUR 26. mars 2013 | MENNING | 27 Olnbogavík á sér sirka tíu, fimmtán fyrirmyndir en ég vil ekki segja að þar sé nein ein meira metin en önnur,“ segir Hermann Jóhannes- son spurður hvort sögusvið skáld- sögunnar Olnbogavík eigi sér raunverulega fyrirmynd. „Ég hef reyndar aldrei búið í sjávarþorpi en ég er vel kunnugur á ýmsum Oln- bogavíkum.“ Verður ekki ríkur Þetta er þín fyrsta skáldsaga, hvað kom til að þú valdir glæpasögu- formið, var það gróðavon? „Nei, ég sé ekki fram á að verða ríkur af þessu, en ég hef alltaf verið tölu- vert veikur fyrir glæpasögum. Mér hefur reyndar mislíkað hve margar þeirra eru húmorslausar og leggja meira upp úr spennu og subbugangi, en það var tilviljunin sem réði því að þetta skyldi verða glæpasaga.“ Ertu búinn að vera lengi með hana í smíðum? „Ég byrjaði á þessari sögu fyrir mörgum árum en lagði hana svo niður í skúffu og gleymdi henni. Tók hana svo upp úr skúffunni aftur fyrir ekki alveg eins mörgum árum, kláraði hana og sýndi nokkrum útgefendum sem allt að því hristu hausinn og töldu þetta ekki geta orðið sér að féþúfu, þannig að hún fór enn í salt. Loks umsaltaði ég hana svo í vetur og gaf út sjálfur.“ Aðalpersóna sögunnar er endur- skoðandi, er það ekki skrýtið val á sögumanni í glæpasögu? „Mér datt í hug að sviðsetja bókhaldsglæpi og til þess að geta gert það af einhverju viti þarf maður náttúrulega að hafa endurskoðanda. Þannig hangir það nú saman.“ Endurskoðandi og prestur Önnur áberandi persóna í sög- unni er dálítið sérstakur prestur, þú þekkir greinilega skemmtilega presta? „Ég þekki fullt af skemmti- legum prestum, en líka dálítið af leiðinlegum en það á enginn þarna neina beina fyrirmynd. Ég býst við að allar persónurnar séu eitthvað skyldar sjálfum mér en ég held það sé ekki náinn skyldleiki við neina aðra raunverulega persónu.“ Það vekur athygli hversu vand- aður textinn er í bókinni, hefurðu skrifað mikið fyrir skúffuna? „Ég hef skrifað nokkuð af smásögum og kveðskap en ætli mín mesta skól- un hafi ekki verið að skrifa alveg urmul af ráðuneytisbréfum, en lengst af starfsævinni var ég deild- arstjóri í menntamálaráðuneytinu. Þar fyrir utan hef ég verið bóndi, blaðamaður, kennari og þingfrétta- ritari og í síðastnefnda starfinu komst maður í kynni við virkilega vondan texta, bæði í frumvörpum og greinargerðum þannig að það skerpti enn trú mína á mátt vel skrifaðs texta.“ fridrikab@frettabladid.is Mislíkar húmors- lausar glæpasögur Hermann Jóhannesson hefur sent frá sér skáldsöguna Olnbogavík, glæpasögu sem gerist í sjávarþorpi úti á landi og hefur endurskoðanda sem aðalpersónu og sérkenni- legan prest í aukahlutverki. Hann segir persónurnar aðallega skyldar honum sjálfum. OLNBOGAVÍK Hermann segist þekkja vel til á ýmsum Olnbogavíkum landsins og hafi því valið sögunni það sögusvið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Ég þekki fullt af skemmtilegum prestum, en líka dálítið af leiðinlegum. Vantar unglinginn á heimilinu smá bíópening? Við einföldum millifærslur í snjallsímanum margfalt. Með nýja Íslandsbanka Appinu má nálgast stöðuna á reikningum og færa smærri fjárhæðir á vini og vandamenn með fáeinum smellum. Þjónusta í gegnum Appið: Hraðfærslur á þekkta viðtakendur Staða reikninga með einum smelli Myntbreyta og gengi gjaldmiðla Upplýsingar um útibú og hraðbanka Aðgengi að Netbanka o.fl. sem opnar á fleiri möguleika Kynntu þér nýja Appið betur á www.islandsbanki.is/farsiminn Veldu eða skráðu inn upphæð Millifærsla framkvæmd! Þjónustan er í boði fyrir fjárráða einstaklinga með aðgang að Netbanka Íslandsbanka. tveir þrír!og. Verið hjartanlega velkomin að fagna með okkur útgáfu ljóðabókarinnar Bjargs eftir Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur í Eymundsson Skólavörðustíg í dag klukkan 17.00. Léttar veitingar, höfundur les úr bókinni og hljómsveitin Klassart leikur nokkur lög. Láttu sjá þig! Útgáfuboð!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.